Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1957, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1957, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 37 tveimur 14x14 þumlunga ljósmyn um, sem hann hafði tekið rétt fyri dögun. Önnur þeirra var næm fyri rauðu ljósi, hin fyrir bláu. Ef allt hafði gengið vel — e enginn galli var á framkallaranum ef Big Schmidt hafði verið stillt ná- kvæmlega og myndin alveg rétt tekin, þá var mikils að vænta. Þí ættu að koma fram á myndunum heimshverfi, sem eru í allt að biljón ljósára fjarlægð. Á þeim ætti að vera hundruð þúsunda einstakra stjarna, og sennilega ennþá fleiri vetrarbrautir — heil heimshverfi úti í ómælisdjúpi geimsins. Abell athugaði myndirnar vand- lega. Þær voru góðar. Þá slökkti hann ljósin og helt til skrifstofu sinnar. Yfir skrifborðinu hangir hvolfmyndað kort með ferhyrndum reitum. Hver reitur táknar sérstakt svið á himninum, og samtals tákna reitirnir um % af öllu himinhvel- inu. Allir voru reitir þessir nú út krotaðir nema einn. Hann var hvít- ur. Abell tók blákrít og merkti hann eins og hina reitina. Að því loknu skifti hann um föt og gekk út. Hann var léttari í spori en venjulega og hann var í góðu skapi. Hver láir honum það? Eftir nær sjö ára þrot- laust starf hafði hann nú lokið við að mynda himingeiminn. Og svo kemur hér frásögn hans af því hvaða þekkingu þetta starf hefir nú þegar veitt mönnunum um mikilleik himingeimsins. NÝR HEIMUR OPNAST Segja má, að með þessari mynaa- töku hafi mönnum opnazt nýr heimur með fleiri heimshverfum en nokkurn grunaði áður að til væri. Með ljósmyndum, sem ná um biljón ljósára út í geiminn, hefir hann stækkað að minnsta kosti 25 sinnum frá því, sem mönnum var áður kunnugt. Nýar halastjörnur og smástirni hafa komið í Ijós í Hér sést mynd af vetrarbraut og telja menn að hún sé ínjög lík vetrarbraut vorri — eins og hjól. Á neðri mynd- inni sér á rönd hennar og er hún þá líkust fljúgandi krinsflu, eftir því sem þcim er lýst. Neðst á efri myndinni glætudepill, en það »r ve*T«rhniuta- vetrarbraut vom, ver þekkjum hana nú betur en áður. Og hundruð miljóna annara vetrarbrauta hafa komið í ljós. Tugþúsundir vetrarbrautahverfa, hinna stærstu heimshverfa sem til eru, hafa einnig komið í ljós, og það er ef til vill furðulegasta upp- götvunin. Hún hefir gjörbreytt heimsmyndinni, er vér höfðum gert oss, og gert hana miklu marg- brotnaðri en oss hafði grunað. Til þess að gera sér ofurlitla hugmyad um hvernig þessi heims- hverfi muni vera, verðum vér að gera oss ljóst hvað ein vetrarbraut er. Þegar vér horfum upp í himin- inn á björtu vetrarkvöldi, þá virð- ist oss stjörnumergðin óteljandi. En svo er ekki. Það eru ekki nema um 6000 stjörnur, sem svo eru bjartar, að hægt sé að greina þær með berum augum. En í Big Schmidt má sjá hundruð miljóna af sérstökum stjörnum, sem allar eru í vorri vetrarbraut. í þessari vetrarbraut er talið að muni vera um 100 biljónir sólna. Vetrarbrautin er ekki ósvipuð ljóshjólum þeim, sem höfð eru við flugeldasýningar. Hún er svo stór, að ljósið, sem fer 300.000 km. á sekúndu, er hundrað þúsund ár að fara milli jaðra hennar. Til saman- burðar má geta þess, að ljósið frá tunglinu er hér um bil 1% sekúndu á leið sinni til jarðar. Það er ekki nema svo sem hálf öld síðan að flestir stjörnufræðing- ar heldu að þessi vetrarbraut væri alheimurinn. HEIMSPEKINGUR ÁTTI KOLLGÁTUNA En hér ber þess að geta, að þegar árið 1755 lét heimspekingurinn Immanuel Kant sér til hugar koma, að til væri fleiri vetrarbrautir, og óraleið væri til þeirra frá vorri vetrarbraut. Það var þó í rauninni ekki fyr en 1920, þegar stjörnu- stöðin á Wilsonfjalli tók til starfa, að þessi tilgáta reyndist rétt. Og á sumum Ijósmyndum af himin- geimnurn, sjást nú jafn margar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.