Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.1957, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
175
Guðbjartur Ólafsson
Þar sem nokkur spölur var til
kútterans, sem eg hafði fyrir stafni,
var öllum árum stungið í kjöl og
lempað á árunum, sem kallað var.
Menn töluðust nú við og tóku ræki-
lega í nefið eftir langan og hvíld-
arlausan róður; þess skal hér getið
til gamans að 6 eða 7 tóbaksílát
voru á lofti í einu.
Gekk nú ferðin greiðlega og
skírðist skipið fljótt. Sáum við segl
þess í gegnum sjórokið og snjó-
komuna, einnig sáum við að þar
myndi vera orðið gestkvæmt, því
tvö skip voru fest aftaní kútter-
ann, sexmannafar og áttæringur.
Á leið út að skútunni, en svo köll-
uðum við kútterinn, samanber
skútukallar, réðum við ráðum okk-
ar hvernig við ættum að leggja að
skipinu.
Eins og gefur að skilja var ekki
áhættulítið að koma að skipshlið
í þvílíku veðri og sjógangi. En lífs-
von okkar var undir því komin að
engin mistök kæmu fyrir. Þetta fór
svo með guðs hjálp og góðra manna
að allir af skipi mínu komust um
borð í skútuna heilir á lífi og lim-
um.
Eg minnist þess að þegar ég
ásamt öðrum var að ganga frá
fangalínu og farviði bátsins, var
kallað til okkar að flýta okkur uppá
skútuna, því enn nálgaðist bátur,
sem hleypt hafði frá landi.
Eg leit upp og sá að þar var
kominn allnærri áttæringur, sem
hafði stefnt beint á okkur. Við
flýttum okkur eftir mætti að kom-
ast uppí skútuna, en bátur minn
var festur aftaní með sterkum
kaðli. Nú hófst björgun fjórðu
skipshafnarinnar og fór það á sama
veg að allir náðust ómeiddir.
Voru nú 38 sjóhraktir menn af
4 áraskipum, öllum frá Grindavík,
komnir heilu og höldnu um borð í
kútterann. Var nú kl. 6 að kvöldi.
Við þóttumst nú hólpnir að kom-
ast um borð í stærra skip en við
vorum á. En eg sé strax að miklir
erfiðleikar voru framundan. Skipið
var þrauthlaðið af fiski svo að það
var að mestu á kafi í sjó á hlé-
borða og satt að segja leizt mér
ekki allskostar vel á, enda aldrei
fyrr komið um borð í skútu út á
rúmsjó.
KÚTTER „ESTHER“
Svo hét skipið, sem við nú vor-
um komnir á. Var það frá Reykja-
vík, eigandi þess hinn alkunni út-
gerðar- og sæmdarmaður Pétur J.
Thorsteinsson. Skipstjóri þess var
Guðbjartur Ólafsson núverandi
forseti Slysavarnafélags íslands
(hafnsögumaður í Reykjavík), þá
ungur að árum, nýlega 27 ára
gamall, þróttmikill, enda hygg ég
að næstu stundir hafi reynt mjög
á þrek hans og sjómenskuhæfileika,
því miklir erfiðleiðkar höfðu skap-
ast við komu allra þeirra gesta,
sem nú bættust við á skip hans.
Gestirnir voru fleiri en áhöfn skips-
ins, en fullþröngt mun hafa þótt í
vistarverum þess af skipshöfninni
einni saman.
Esther var 84 brúttó rúmlestir. f
hásetaklefa var 20 manna rúm og
7 manna í káetu eða alls fyrir 27
manna áhöfn, en nú voru saman-
komnir í þessar vistarverur 65
manns, má því nærri geta hvernig
umhorfs hefur verið.
Þegar ég og piltar mínir komu