Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.1957, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
179
Elzti núlifandi maður er ekki
Parr, sem segist vera 140 ára —
því að vísindamenn hafa ekki vilj-
að fallast á að sá aldur sé réttur
— heldur Walter W. Williams fyrr-
verandi herforingi í Texas. Hann
átti 114 ára afmæli 14. nóvember
1956.
Hvert er mesta ferðamannaland
í heimi? Það er Ítalía. Þangað koma
rúmlega 9 milljónir ferðamanna að
meðaltali á ári.
Jean I. konungur í Frakklandi á
14. öld á met í því hvað hann ríkti
skamma hríð — 120 klukkustundir.
Til samanburðar má geta þess, að
Viktoría Englandsdrottning ríkti
í 63% ár.
Af forsetum Bandaríkjanna var
Abraham Lincoln hæstur, 6 fet og
4% þuml., William Howard Taft
þyngstur, vóg 354 pund, James
Madison léttastur, vóg aðeins 100
pund.
Wayne Morse, öldungardeildar-
þingmaður frá Oregon, hefir hald-
ið þá lengstu þingræðu, er sögur
fara af. Hann talaði í 22 klukku-
stundir.
í fsrael eru flestir læknar að
tiltölu, einn læknir fyrir hverja
380 íbúa. En í Súdan er ekki nema
einn læknir fyrir hverja 86.000
íbúa.
írar eru mestar kartöfluætur.
Að meðaltali etur hver maður þar
í landi rúmlega eitt pund af kart-
öflum á dag. Uruguaymenn eru aft-
ur á móti mestar kjötætur, eta að
meðaltali % pund á dag.
Stærsta gjáldþrot sem sögur fara
af var það, er Samuel Insull í
Chicago fór á hausinn 1932. Talið
er að viðskiptamenn hans hafi þá
crðið fyrir 2000 milljóna dollara
tjóni.
Bandaríkjamenn eiga ekki metið
í því að sækja kvikmyndasýning-
ar, þótt margir haldi að svo sé.
Englendingar eiga þar metið. Þar
fer hvert mannsbarn að meðaltali
k
ennar mömmu
Ét; leita þín um langan veg,
sem liggur falinn hér
þvi blessunin hún mamma mín
svo mikiff unni þér.
Hún fægffi glasið gerffi aff kveik
og geymdi ljósiff þitt.
í birtu þeirri glöff og góff
hún gekk um húsið sitt.
Ég lifi upp aftur liðna tíff
er lít ég þig á ný,
sem Ijósið vermi lítinn dreng
viff lampabrosin hlý.
Vió' bleika glóff frá brunnum kveik
hið blíffa rökkur sér,
sem gerffi öllum gott og hlýtt,
við geislabros frá þér.
Sú tíð er löngu liffin fjær
meff leik og æfintýr.
Og sofnuð burt hún mamma min,
í minning sem þar býr.
Því gef ég sæll mitt sonarljóð,
og syng tll hennar nú,
er lét sér annt um lampann sinn
í lífi, starfi og trú.
KJARTAN ÓLAFSSON
í bíó á 14 daga fresti, en í Banda-
ríkjunum á 22 daga fresti.
Mannskæðasti jarðskjálfti, sem
sögur fara af, er jarðskjálftinn í
Japan 1923. Þá fórust þar rúmlega
142 þús. manna, en eignatjón var
talið 5000 milljónir dollara.
Mesta regn, sem sögur fara af,
mældist í Jefferson í Iowa hinn
10. júlí 1955, var 6.69 þuml. á einni
mínútu.
Þrumuveður eru tíðust á Jawa
— 322 daga á ári.
Síðan 1852 hefir Everest verið
talið hæsta fjall á jörð. Mauna Kea
é Hawaii er þó 'hærra, en mestur
hluti þess er á kafi í sjó. Það er alls
30.750 fet á hæð.
Níl er lengsta á í heimi, 4145
enskar mílur. Næst kemur Amazon
4900 mílur og Missouri-Mississippi
3892 mílur.
Hæsti foss í heimi er Englafoss-
inn í Venezuela, 3312 fet. Næst-
hæsti foss er Yosemite í Bandaríkj-
unum, 2425 fet.
Bjartasta stjarna á himni et
Siríus, eða Hundastjarnan (eða
Lokabrenna). Hún er 26 sinnum
bjartari en sólin.
Stærsta stjarna, sem mæld hefir
verið, er Epsilon Aurigae. Hún er
svo stór, að ef sólin væri komin
inn í miðju hennar, mundi hún ná
yfir allt sólhverfið út að Satúrnusi.
Stærstu lifandi skepnur eru blá-
hvelið, 131 lest, og afríkanski fíll-
inn, 7 lestir.
Mesta sjóorusta í heimi var háð
hjá Filippseyum 1944. Áttust þar
við 166 bandarísk skip og 65 jap-
önsk. Bandaríkin misstu 6 skip,
Japanar 26.
Mestur hiti hefir mælzt í Lybíu,
136 stig í skugganum, en mestur
kuldi í Síberíu, 108 stig F.
Fljúgondi kringlur
AÐ FRUMKVÆÐI nokkurra vísinda-
rnnna hefir nú verið stofnuð sér-
stök nefnd í Bandaríkjunum, til þess
að íannsaka hvað hæft sé í sögunum
um fljúgandi kringlumar. í þessari
nefnd eiga sæti eðlisfræðingar, kjarn-
orkufræðingar, kennarar og aðnr
menntamenn.
Formaður nefndarinnar hefir sagt
að nefndarmenn hafi ekki skapað sér
neina fyrirfram sannfæringu um
hvort fljúgandi kringlur séu til, eða
ekki. En fram að þessu hafi aðallega
gengið allskonar kynjasögur um þetta
efni eða þá snubbóttar opinberar
yfirlýsingar, sem ekkert sé á að græða.
Almenningur vaði því enn í villu og
svima um það, hvort þessar fljúgandi
kringlur sé til. Úr þessu ætli nefndin
sér að bæta og hún muni ekki liggja
á þeim upplýsingum, er hún telur
áreiðanlegar.