Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1957, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
201
Matarskömmtun lengir lífið
Elzti gorillaapinn er hraustur enn
aði þarna niður, meðan ég skröngl-
aðist eftir örmjóum og hlykkjótt-
um krákustígum og bíllinn hopp-
aði á grjóti framan í svimhárri og
snarbrattri hlíðinni. Við komumst
þó heilu og höldnu til Mulfalla um
kvöldið.
Þarna kynntist ég soldáninum í
Quaiti, Sir Salih bin Ghalib. Hann
er nú hniginn að aldri, en ern og
tígulegur. Hann á mörg áhugamál
og hefir skrifað um 20 bækur og
hafa sumar verið prentaðar. Þær
fjalla um ýmislegt þar á meðal
lögmál Islams og æðri greinar
stærðfræði. Fram á elliár var hann
mikill íþróttamaður. Kvikmynda-
sýningar eru bannaðar í Mukalla,
en hann á sínar eigin menningar
kvikmyndir, sem hann sýnir vin-
um sínum.
í Mukalla er skóli fyrir eyði-
merkurdrengi, og þar er líka
kvennaskóli og er slíkt einsdæmi
í sunnanverðri Arabíu. Gheil Ba
vezir hefir mikinn áhuga fyrir
skólamálum og hefir komið upp
bæði lægri og æðri skólum. —
Skátar hafa aðgang að æðri skól-
anum.
Nú lá leið okkar til Aden eftir
sjávarsöndum. Þar eru fiskiþorpin
Haura og Irqa og voru þar net
breidd til þerris á sandinn. Ara-
biskir sjómenn á þessum slóðum
veiða um 20.000 lestir af fiski á
hverju ári, og er hann aðallega
seldur til Aden og Ceylon.
Hjá Abyan hafa Bretar komið
upp bómullarrækt með áveitum.
Árið 1953 var framleiðslan tæplega
10.000 baggar, en 1956 var hún
27.000 baggar og verðgildi hennar
um 6.500.000 Sterlingspund. Nú
hafa akrarnir verið stækkaðir fer-
falt.
Á leiðinni til Aden fórum við
fram hjá mörgum úlfaldalestum
sem voru á leið þangað með vörur.
Flugvél sveimaði yfir borginni,
hnitaði nokkra hringa og renndi sér
ELZTI gorilla-api, sem er undir
manna höndum, á heima í dýra-
garðinum x Filadelfíu í Bandaríkj-
unum. Hann er nú 30 ára og heitir
Bamboo.
Áður höfðu tveir gorilla-apar
náð 22 ára aldri. Annar þeirra hét
Bushman og var í dýragarðinum í
Chicago, en hinn hét Gargantua
og var sýningarapi hjá trúðum.
Gargantua dó úr lungnabólgu og
nýrnaveiki, en Bushman þjáðist af
margskonar meinsemdum, svo sem
svo til jarðar. Eg þóttist vita hvað
hún væri að flytja, heilan farm af
„qat“, en það er safamikil jurt,
sem Arabar tyggja sí og æ og verða
hreyfir af. Mikið af henni er flutt
á úlföldum frá Yemen og vestra
verndarsvæðinu. En vegna þess að
hún er bezt meðan hún er alveg
fersk, er nú farið að flytja hana
með flugvélum svo að borgarbúar
geti fengið sinn daglega skammt,
og er sumt af henni sótt til Eþíópíu.
Það er undarlegt að tækni nútím-
ans skuli vera notuð til þess að
fullnægja gömlum ávana Araba.
En um leið og flugvélarnar hafa
sezt, koma þangað tignir Arabar
til þess að ná í sinn skerf.
Eg hafði farið langa leið um land,
sem er í svefnrofunum, og mun
brátt vakna. Eg get tekið undir orð
eins af hinum innfæddu mönnum:
„Við Arabar búum í gömlu húsi
og það hefir hrunið ofan á okkur,
og nú liggjum við hjálparvana und-
ir rústum þess. Þið hvítu mennirn-
ir verðið að grafa okkur upp og
hleypa okkur út, svo að við kom-
umst út í birtuna og getum byggt
okkur betri hús“.
æðakölkun, lifrarveiki, liðagigt,
vörvarýrnun í kálfunum, ólækn-
andi sári á fæti .og meltingarkvill-
um. Báðir þessir apar vógu um
550 pund, en Bamboo vegur ekki
nema eitthvað milli 250 og 300
pund. Það hefir að vísu ekki verið
hægt að vega hann nýlega. Seinast
þegar átti að gera það, gerði hann
sér lítið fyrir og mölbraut vog-
ina.
Bamboo hefir ætíð haft reglulegt
mataræði og hefir verið haldið
rækilega í við hann. Fær hann um
4000 hitaeiningar á dag, en mundi
úða í sig 20.000 hitaeiningar, ef
hann væri sjálfráður. Enginn efi
er talinn á því, að það er matar-
skömmtuninni að þakka, að hann
hefir haldið lífi og heilsu svo lengi.
Því að þótt hann sé þetta gamall
(aldur hans samsvarar 60 ára aldri
hjá manni), þá er hann enn kvik-
ur og fjörugur og segist umsjónar-
maður ekki sjá, að honum sé neitt
farið að fara aftur. Hann leikur sér
til dæmis að því að stökkva hæð
sína.
Bamboo fær mat tvisvar á dag.
Aðalmaturinn er gerður úr möluð-
um mais, hveiti, byggi og höfrum,
baunum, soyabaunum, alfalfamjöli
og saman við það er blandað geri,
undanrennu, skelfiski, joðsalti og
lýsi. Seinni málsverðurinn er á-
vextir, aðallega appelsínur. Eins og
sjá má, er mjög lítið af fituefnum
í matnum.
Reynslan sem fengin er með
fóðrun þessa apa, styður mjög
kenningar náttúrulækningamanna
um að sérstök hófsemi í mat og
drykk og val fæðutegunda stuðli
mjög að líkamlegri heilbrigði, en
ofát og óholl fæða sé undirrót
flestra meinsemda.
t
\
(