Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1957, Page 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 375 er enn djarfur könnuður „Rite of Spring“ frumsýnt 1913. Meðan á fyrri heimsstyrjöldinni stóð, tók hann að gera ákveðnar breytingar á list sinni. Hann sneri baki við viðamiklum hljómsveitum og tók að notast við smærri hljóð- færasveitir. Hann breytti hefð- bundnum samhljómum og tók að gefa tónlist sinni fínlegri, skarp- ari og allt að því rýrari blæ. Hann varð fyrir áhrifum frá bandarískri „ragtime“-tónlist og var himinlif- andi, ef vinir hans færðu honum „ragtime“-plötur að gjöf. Upp úr 1920 hófst hið svokallaða nýklassiska tímabil á tónlistarferli Stravinskys, en þá endurreisti hann tónlistarsnið 18. aldarinnar. Flest- um þótti þessi verk óþýðari og miklu litlausari en hin glæsilegu fyrri tónverk. „Nýklassisismi“ Stravinskys ruglaði áheyrendur, sem höfðu dáðst að „Eldfuglinum“ hans, og setti út af laginu aðdáend- ur nýrri tónlistar, sem töldu „Rite of Spring“ tákn hinnar einu og sönnu aðferðar við tónsmíðar. Það er ekki langt síðan hin „nýklass- iska“ tónlist Stravinskys hlaut al- menna viðurkenningu, en nú er hún oft og víða leikin. Á þriðja tug þessarar aldar gerð- ist Stravinsky einnig hljómsveitar- stjóri og slaghörpuleikari, og hann tók að ferðast um og túlka sín eig- in verk. Hann hefir stjórnað frum- sýningum á nýjum, mikilvægum tónverkum sínum t.d. óperunni „The Rake’s Progress“ og „Cantic- um Sacrum“. CTRAVINSKY fór tónleikaferðir ^ um Bandaríkin 1925, 1935 og 1937. Árið 1935 kom hann fyrst til Los Angeles, sem honum féll vel í geð. Árið 1939 var Stravinsky boðið að flytja fyrirlestra við Har- vardháskólann. Skömmu eftir að hann kom til Harvard, brauzt heimsstyrjöldin út, og Stravinsky ákvað að verða um kyrrt í Banda- ríkjunum. Hann settist að í litlu ★ ★★★★★★★★ Tónskáldið 75 ára leikur sjaldan verk eftir sjálfan sig. ★ ★★★★★★★★ einbýlishúsi í Hollywood, sem hann býr í enn þá, og 1945 gerðist hann bandarískur ríkisborgari. Talsvert liggur eftir StravinsKy á þeim 17 árum, sem hann hefir dvalizt í Kaliforníu: Tvær stórar sinfóníur, ópera, brot úr sinfóníum, konsertar, kantötur og svo mætti lengi telja. En samt sem áður hefir hann aldrei samið tónlist við kvik- myndir. Á hverju ári eru honum boðnir digrir sjóðir fyrir að semja lÖg í kvikmyndir, og á hverju ári lætur hann freistast, fer og horfir á kvikmyndina, sem um er að ræða. Að svo búnu ráðleggur hann kvik- myndaframleiðandanum að eyði- leggja ekki kvikmyndina með tón- list Á RIN VIRÐAST ekki hafa dregið úr andlegum og líkamlegum kröftum Stravinskys. Vinnuaðferð- ir hans virðast bera vott um mjög góða hæfileika til að einbeita sér. Hann vinnur oft og tíðum allt að tíu klukkustundum á dag við tón- listina. Hann semur tónverk 3—4 klukkustundir, venjulega á morgn- ana, en oft seint á kvöldin, 5—6 klukkustundir vinnur hann við hljóðfæri, skrifar nótur, spilar það, sem hann hefir skrifað eða leikur verk eftir önnur tónskáld. ,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.