Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1957, Síða 8
428
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Landnámsbærinn Litli Hvammur, sem bráðum mun hverfa. Tvö húsin til hæg;ri eru Austurbærinn. Þriðja þilið er Vest
urbærinn, þar sem Ingimundur heíir búið í 38 ár. Lengst til vinstri sér á steinhúsið.
LANDNEMAR í LANCHOLTI
SAGT FRÁ FRUMBÝLINGSSKAP OG BÆ, SEM ER AÐ HVERFA
EINN góðan veðurdag komu tröll-
auknar jarðýtur og réðust á suð-
vestanvert Langholtið. Dag eftir
dag og viku eftir viku hömuðust
þær við að bylta þar öllu um. Þær
fláðu kinnina af holtinu og ekkert
atóðst hamagang þeirra. Háir mold-
arbyngir turnuðust víða upp, og
gamalt lábarið fjörugrjót var graf-
ið upp. Undir því var þykkt sand-
lag. Sandinum var safnað saman
sérstaklega til þess að hagnýta
hann. Moldin var sótt á bílum og
fór um allar jarðir, jafnvel suður í
Kópavog til þess að þar gæti orðið
gróðursælir blettir í kringum nýu
húsin. Langholtið lækkaði dag frá
degi. Og svo var komið með önnur
stórvirk tæki og grafnir stórir og
djúpir skurðir fyrir vatnsleiðslur
og skolpræsi. Hér var verið að und-
irbúa ótal byggingarlóðir, og hefir
hvergi í Reykjavík verið gengið að
slíku af öðrum eins jötunmóði.
Þarna var stóru landflæmi gjör-
breytt til þess að auðveldara væri
að reisa þar byggð.
Svo var farið að gera götur og
afmarka byggingarlóðir. Og þá tók
við nýr hamagangur, ’er byrjað var
að grafa fyrir grunnum, slá upp
mótum og steypa. Drunur og skrölt
mokstursvéla, skellir í dælum, bíla-
dynur og hamarshögg hafa kveðið
við látlaust svo að segja nótt og
dag í allt sumar. Þarna er að rísa
upp hvert húsið af öðru, og mörg
þeirra stór.
En í holtinu var áður byggð á
stangli. Staðsetning hennar fór í
bág við hið nýa skipulag. Sum hús-
in standa nú eins og á stöplum eða