Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 37 Leitað að milljónaerfingja Talið að stúlka, sem þekkir hann, sé hér á íslandi YFIRVÖLDIN í Palestínu leita nú um allan heim að ungri konu af Gyðingaættum, sem érft hefir 20 milljónir dollara í Bandaríkjunum. Sagan um þetta er á þessa leið: Erfinginn að þessum milljónum heitir Ann-Lise Goidberg og fædd- ist í Varsjá 1935. Foreldrar henn ar voru Maria og Sydney (Solo- mon) Goldberg, og áttu þau heima í eigin húsi, nr. 7 við Wiejskastræti beint á móti þinghöllinni. Maria beið bana í innrás Þjóðverja 1939, en Goldberg komst úr landi. Ann litla (á pólsku Hania) var þá tekin í fóstur af nágrönnunum, góðum pólskum hjónum, sem fóru með hana sem sitt barn. Eftir upp- reisnina, sem Stalin flekaði Pól verja til að gera 1944, var þessi fjölskylda flutt til Þýzkalands og höfð þar í fangabúðum. Eftir margs konar hraknmga komst Ann úr landi og giftist. Faðir hennar dó í Bandaríkjun- um 1942 og lét eftir sig 20 milljón- ir dollara, og þar sem hún er einka- erfingi hans, á hún að fá þessar milljónir, en enginn veit hvar húr. er niður komin. Það seinasta, sem menn vita um hana, er þetta, að haustið 1956 kom hún sem ferðamaður til Palestínu. Fósturbróðir hennar frá Varsja rakst á hana af tilviljun í Haifa, þar sem hún sat í langferðabil. ásamt annarri ungri stúlku. Þau töluðust við andartak áður en bíli- inn lagði á stað, en hún lofaði fóst- urbróður sínum að hún skyld: heimsækja hann áður en hún færi úr landinu. Það efndi hún ekki. Það var ekki fyrr en eftir þetta, að fregnin kom um það að hún hefði erfit milljónir föður síns. Og Mynd þessi er sögð iikjast stúlkunni, sem ætlað er að hér sé niðurkomin. nokkru seinna var fósturbróður henndr staddur hjá pósthúsinu i Haifa, sem stendur niður hjá höfn- inni. Þar sá hann unga stúlku, sem hann þóttist kannast við, en kom ekki fyrir sig hver væri. Hún var dökk á brún og brá, meðailagi há lagleg, með stór augu; hún var i hvítri treyu, í rauðflekkóttu pilsi með hvítum bekk að neðan og ofan og svörtum dröfnum þar, og með lága rauða skó á fótum. Hann var að velta fyrir sér hver þetta gæti verið, en það var ekki fyrr en hún var horfin að það rifjaðist upp fyr- ir honum að þetta var sama stúlk- an sem sat í bílnum hjá Ann, þegar hann rakst á hana þarna í borg- inni ívrir nokkru. En nú var um seinan að ná í hana. Þessi unga stúlka, sem var á að gizka 22 ára, var í fylgd með ung- um manni, lágvöxnum, dökkhærð- um og feitum, sem gat verið unn- usti hennar eða maður. Og nú eru yfirvöld Gyðinga að leita að þess- um skötuhjúum líka, og hafa ein- hvern grun um að annað hvort þeirra, eða bæði, hafi farið til ís- lands. Þess vegna hefir verið leit- að hingað með fyrirspurn um þau, því að þau eru einu manneskjurn- ar sem vitað er um að geti gefið upplýsingar um, hvar milljóna- erfingjann er að finna. Er heitið góðum verðlaunum hverjum þeim sem getur gefið einhverjar upp- lýsingar um hvar þau sé niður komin. Að baki járntjaldsins ÁRIÐ 1953 samþykkti rússneska stjóm -in og kommúnistaflokkurinn að feua niður eignaskatt af kvikfé því, er bændur á sameignarbúum áttu sjálfir. Var þetta svo útbásúnað í rússnesku blöðunum, að ætla mátti að hér væri um xáðstöfun að ræða, er mjög bætti kjör bænda. En blöðin létu þess ógetió, að samtímis var skattur á samvinnu- búunum hækkaður sem þessu nam, svo að ríkisvaldið missti engar tekjur vegna skattlækkunar einstakra manna Skattabyrðin, sem hvíldi á samvinnu- búunum var hin sama og áður hafði verið, aðeins innheimt á annan hatt og fyrirhafnarminni. Þetta kom í ljos seinna, þegar birt var skýrsla um tekj- ur ríkisins. Fyrir skömmu var það svo útbásún- að í rússnesku blöðunum af miklum krafti, að nú hefði enn verið bættur hagur samvinnubænda. Stjórnin og kommúnistaflokkurinn hefði orðið ásatt um að fella niður þá kvöð, að þeir yrði að skila ríkim, ákveðnum hluta af afurðum þess kvikfjár, er þeir eiga sjálfir (kjöti og mjólk). Þessi breyting átti að komast á 1. jan. s. 1. Hér er um sömu blekkinguna aó ræða og áður. í mánaðarritinu „Vo- prosi Ekonomiki" (nr. 9, 1957) birtist grein, þar sem sagt er frá því, að kvaðirnar á samvinnubúunum hafl verið hækkaðar hlutfallslega, svo að ríkið missti einskis í. Hér er því að- eins um að ræða nýtt fyrirkomuiag á innheimtu, en ekki neinar réttarbæt- ur Dændum til handa. (Newslettei)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.