Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.1958, Qupperneq 15
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 47 Heilbrigðistíðindi ■f í vetur er þiðnað á þorra og þunganum léttir í bráð, þó ennþá sé freri á fjöllum, er fönnin af þekjunum máð, nú langt um er léttara yfir og langdegið fer nú í hönd og þjóðinni þykir það betra að þrauka en kyssa á vönd. Hún ann eigi slavnesku eðli, af ólíkum kjarna hún spratt. Hún valdi ið vestræna frelsi en vélráðum austursins hratt. Þó Spútnik með hundinum hentist um háloft, ei gerðist hún klökk, en Urðar og óheillamáni sem elding í skammdegið sökk. í sjálfu sér skammdegið sýnist nóg svipþungt hjá norðurhafsþjóð, en mannkynið magnar það stórum, úr myrkheim er þylur sín ljóð. Nú heizt er að hætta í bili að hugsa um morðflauga tól, við vitum. að vegurinn stefnir mót vori og hækkandi sól. álGURÐUR NORLAND. MEÐAL GEGN BLÓÐSTÍFLU Eftir margra ára tilraunir hefii vísindamönnum tekizt að finna meðal (töflur) er þynnir blóðið í æðum manns og getur eytt blóð stíflum. Það var þetta meðal, sem bjargaði Eisenhower forseta í fyrra, og hann neytir þess stöðugt síðan til þess að koma í veg fyrir blóðstíflu. Tilraumr, sem gerðai hafa verið seinustu fimm árin a nokkrum hundruðum sjúklinga sýna þó að áhrif meðalsins ná til langs tíma. Af öllum þeim sjúkling um, sem læknaðir voru með því veiktust 14 af hundraði aftur og fimmti hluti þeirra dó. En af sjúk lingum, sem læknaðir voru á ann an hátt, veiktust 60 af hundraði öðru sinni og af þeim dó rúmlega helmingurinn. TILBÚNIR AUGASTEINAR Talið er að tuttugasti hver mað- ur missi sjónina vegna þess að ský kemur á augasteininn. Hefir það verið venja að taka augasteinana úr þeim mönnum og láta þá síðan ganga með mjög þykk og kúpt gler- augu, sem brjóta ljósið líkt og auga -steinninn. En svo kom brezkur læknir, Harold Ridley til sögunn ar, og bjó til augasteina, sem hægt var að setja í stað þeirra, sem tekn- ir voru. Hefir þetta gefizt mjög vel að því er tveir læknar í Filadelfíu segja. Þeir hafa skipt um augastein í 115 sjúklingum, og hafa flestir þeirra fengið ágæta sjón á eftir. HÚÐRANNSÓKN Húðsjúkdóma, sem einu nafni nefnast „eksem“ fá menn oft vegna ofnæmis af hinum fjarskyldustu hlutum, svo sem hundum og kött,- um, fiðri og fuglum, sveppum og blómdufti, ryki í herbergjum, alls- konar fæðutegundum o. s. frv. Nú er fundin upp húðrannsókn til þess að ganga úr skugga um af hverju ofnæmið stafar. Tvær aðferðir eru til þess. Önnur er sú, að gera ofur litla skinnsprettu og bera þar í sér- staka vökva eða duft. Hin er sú, að spýta með nál vökva inn í hörund- ið. Þykir sú aðferðin öruggari, er. er viðsjálli að því leyti, að sjúk- lingnum getur orðið talsvert um þetta. LJÓSLÆKNINGAR í Stanford læknaskólanum í Bandaríkjunum hafa nú um nokk- urt skeið farið fram tilraunir að iækna krabba með sterkara ljós- magni en áður hefir þekkzt Ljós- vélin er þannig, að rafeindastraumi er hleypt með álíka hraða og ljós- hraðanum í gegnum sex feta langa koparpípu, og er straumurinn kem- ur þar út, er honum breytt í X- geisla. Síðan er hægt að hafa ljós- geisian breiðan eða mjóan eftir vild. Gerðar voru tilraunir á mönn- um með krabba í hálsi, lungum, nýrum, blöðru, beinum og heila og kom fyrsta skýrsla um árangurirm nú nýlega. Segir þar, að af 74 sjúk- lingum virðist 48 hafa fengið full- kominn bata. Þó er sagt að vera megi að sjúkdómurinn taki sig upp aftur eftir nokkurn tíma, og þess vegna sé ekki hægt að fullyrða neitt um það fyr en eftir 5—6 ár hvort hér sé um varanlegan bata að ræða.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.