Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1958, Síða 16
2
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
+ A D G
V G 10 6 4
♦ A 7 5 4
+ 62
+ 9 6 5 4
¥ A 8 3
♦ D 8 3
+ D G 10
N
V A
S
+ -
¥ D 9 7 5 ‘
♦ G 10 9 i
+ 9 8 5 3
+ K 10 8 7 3 2
¥ K
♦ K 2
+ Á K 7 4
Suður gaf. Sagnir voru þessar:
S V N A
1 sp. pass 3 sp. pass
4 gr. pass 5 hj. pass
6 sp. pass pass pass
Út kom L D og S sýndist spilið
unnið. Hann tók slagi á ás og kóng i
laufi og trompaði svo eitt lauf, kom
sér inn á T K og trompaði annað lauf.
Þá kom S Á og nú sást að öll trompin
voru hjá V. Hann hlaut því að fá slag
á tromp og þar með var spilið tapað.
S hefði unnið ef trompin hefði
verið 1—3 eða 2—2 hjá mótstöðu-
mönnum en það hefði hann átt að
rannsaka strax, með því að slá út
trompi. Þegar hann sér að A er tromp-
laus, verður hann að breyta um spila-
aðferð. Hann slær þá út hjarta og V
fær þann slag. Síðan getur hann pint
H D út úr A og fær þá einn slag á
hjarta, en í hann fer lauf af hendi.
Sóla r-
d a g a r
Að undanförnu hefir verið mikið sólskin á suðvesturlandi. Yfir Grænlands-
jökli hefir verið háþrýstisvæði og hefir valdið hægri norðan og norðaustanátt
hér, með heiðríkju hvern dag. En um nætur hefir verið frost og hefir gróðri
því lítt farið fram. En kvenþjóðinni í Reykjavík finnst sumarið vera komið.
og gengur léttklætt, þrátt fyrir kuldann, eins og hér má sjá. — Hægra meg-
in við stúlkurnar tvær má líta eina af þeim nýungum sem hér hafa fest rætur.
Er það járnstólpi með tímamæli. Hjá þessum stólpum geta menn lagt bílum
sinum, sett peninga í mælirinn, og svo segir mælirinn sjálfur til um það hvenær
leigutíminn er útrunninn. Venjulegast greiða menn gjald fyrir hálftíma, eða
eina klukkustund. Þykir þetta gefast vel. — (Ljósm. Ól. K. Magnússon).
ENN UM MANNSÆVINA
Það eru víst til æði margar útgáfur
af þulunni um mannsævina, er enn lifa
á vörum manna. Hér er ein:
Tíu ára, talið barn,
tvítugur umboðsgjarn,
þrítugur þrekinn maður,
fertugur fullþroskaður,
fimmtugur fellir aí,
sextugur brúkar staf,
sjötugur hárahvítur,
áttræður er ónýtur,
níræður niðjaháð,
tíræður grafarsáð.
REIÐ A STAG
1 Eyafirði bar svo við um haustið
(1704), að prófasturinn séra Þórður
Oddsson að Völlum kom heim, nokkuð
drukkinn, og bar þar að sem stag var
millum húsa. Hesturinn var á rennsli,
en strenginn bar undir brjóst prests-
ins, svo að hann fleygðist af hestln-
um, fell til jarðar og stundi sárt, and-
aðist innan fárra daga (Hestsannáll).
Séra Þórður var sonur séra Odds Ey-
ólfssonar í Holti undir Eyafjöllum.
Hann varð fyrst kennari við Skálholts-
skóla og síðan kirkjuprestur þar. Síð-
an var hann kennari við Hólaskóla einn
vetur, en tók við Völlum 1699. Hann
var talinn fyrir öðrum mönnum og
hinn ásjálegasti sýnum. Kona hans
Valgerður Jónsdóttir, andaðist af
harmi eftir hann. Dóttir þeirra, Ragn-
heiður, átti Eggert Bjarnason að Skarði
á Skarðsströnd.