Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 87 Kvarts, postulín og granít leysast upp í 5000 stiga hita. Við 10.000 stiga hita fara sameindir að leysast upp í atóm, og við 100.000 stiga hita losna rafeindirnar frá atóm- unum. Við miljón stiga hita er ekkert efni til, eins og vér þekkj- um það“. Nýr hitageymir Hér er því auðséð að nauðsyn var á að finna einhvern nýan hita- geymi. Og hann var fundinn þannig, að láta segulmagn halda hitanum í skefjum. Þannig er það þá með Zeta-vélina, að segulmagn er látið halda hitanum 1 skefjum innan í hjólmynduðu hylki. í vél- inni hefir mönnum tekist að fram- leiða 5 miljón stiga hita, þótt það væri ekki nema aðeins brot úr sekúndu. Frumorkan, sem til þessa þarf, kemur frá rafal, sem hleður rafgeyma. Þessir rafgeymar safna í sig raforkunni, en með 10 sekúnda millibili er opnað fyrir hana og brýzt straumurinn þá út í hvelli. Með leiðslu berst svo þessi sterki straumur inn í hinn hjólmyndaða belg, þar sem þungavatnið er geymt í loftkenndu formi, og um- lukt þar segulmagnsstraumi á all- ar hliðar. Hitamagnið, sem Zeta framleiðir, er að vísu lítið. Það er svo lítið, að enn eru ekki fengnar neinar sann- anir fyrir því að hægt sé að beizla vetnisorkuna. En hér er að vísu að- eins um tilraun að ræða, en ekki neina orkustöð. Aðrar tilraunir Svipaðar vetnisorkuvélar hafa verið gerðar í Bandaríkjunum og Rússlandi. Þegar menn bera svo saman reynslu sína, þá má margt af því læra. Bandaríkjamenn kalla vél sína Stellarator og búast við að hafa fullgert hana innan fjögurra ára. Þeir segja að hún geti fram- leitt 50 miljóna stiga hita. Brezku MIKIÐ hefir verið rætt um hvort æskilegt sé að kvenstúdentar leggi fyrir sig læknisfræði. Hafa ýmsir verið mjög á móti því. Þeir benda á, að læknanám sé ákaflega dýrt, dýrara en flest annað nám. Það sé því mjög æskilegt, bæði fyrir þjóðfélagið og einstaklinga að þeir eigi fyrir höndum langan starfs- dag að námi loknu. En þessu sé ekki að heilsa um konurnar. Þær rjúki óðar í að gifta sig, og hafi svo nóg að gera við heimilisstörf, að eiga börn og ala þau upp. Þeim tíma og kostnaði, sem varið sé til þess að gera konur að læknum, sé því algjörlega á glæ kastað. Nú hefir kvenlæknir einn í Chicago, dr. Francis Hannett, kom- ið fram á ritvöllinn til þess að mót- mæla þessu. Hún bendir á, að þeg- ar sé til f jöldi kvenlækna, sem ræk- ir bæði læknisstörf og heimilisstörf með prýði. Það sé ekki umtalsvert þótt þær hindrist við og við vegna vísindamennirnir í Harwell þykj- ast munu geta framleitt 100 miljón stiga hita, þótt það sé aðeins and- artak. Þeir hafa þegar hafið smíði á slíkri vél og búast við að hún verði fullger um 1960. Reynslan af þessum vélum getur svo leitt til þess, að mönnum takist að beizla vetnisorkuna, en tilraunirnar geta staðið í nokkur ár. Það virðast engin takmörk fyrir því hve mikla orku vetnisstöð get- ur framleitt. Ein slík stöð mundi geta fullnægt allri orkuþörf Breta. Og það yrði ódýrasta orkan, því að úr einu tonni af þungavatni, sem kostar nú 250.000 Sterlingspund, fæst jafnmikil orka og úr miljón tonnum af kolum, sem kosta allt að 40 sinnum meira. (Úr ,,Awake“) þess að þær ala börn, en þess muni varla finnast dæmi, að þær hætti að stunda lækningar fyrir því, og þær gefi sér tíma til að hugsa um heimili sín jafnframt. Á hinn bóginn sé það mjög æski- legt að konur gerist læknar, því að þær taki pft að sér þau læknis- störf, sem karlmenn vilji helzt hliðra sér hjá, svo sem tímavinnu í sjúkrahúsum, í læknaskólum, hjá iðnfyrirtækjum o. s. frv. Kven- læknar gefi sig og aðallega við kvensjúkdómum og það sé mjög heppilegt. Hún telur að kvenlæknar ætti að vera dómbærastir á það hve heppi- legt sé að konur gefi sig að lækn- isfræði. Þess vegna hafi verið send- ar fyrirspumir til 1040 kvenlækna og þær beðnar að svara því hvort þær vildu að dætur sínar lærðu læknisfræði. 74 af hverjum hundr- að höfðu svarað játandi. Eiga konur að vera lœknar?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.