Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Qupperneq 8
u
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ÞRÆTULANDIÐ KASHMIR
•----------------------------9
K A S H M I R
er eitt af þeim löndum, þar sem
óvtentir atburðir geta hleypt öllu
í bál og brand á svipstundu. Um
10 ára skeið hafa Indland og
Pakistan togast á um landið. —
Vilja bæði ríkin eiga það, eigi
aðeins vegna þess hve frjóvsamt
það er, heldur vegna þess hve
vatnauðugt það er. Bæði ríkin
vilja ná þar í vatn handa hinum
miklu íyrirhuguðu áveitum sín-
um. —•
Höfundur þessarar greinar
heitir Nigel Cameron og er
skozkur að ætt. Hann var áður
tannlæknir, en hætti við það
starf og gerðist langferðamaður
og rithöfundur. Fyrsta ferðasaga
hans mun hafa komið út fyrir
jólin, og önnur er á uppsiglingu.
< ►——-----------------——-4
STÓRMÓGÚLLINN Jahangir keis-
ari og „drottnari heimsins“, lá á
banabeði sínum. Og ráðgjafar hans
spuröu:
„Er það ekkert sem yðar hátign
þóknast?"
Jahangir andvarpaði og mælti:
„Ekkert nema Kashmir".
Og þegar við höfðum verið
nokkra daga í þessu fegursta landi
Mið-Asíu, þóttist eg skilja hvað
hann hefði átt við. Hann var orð-
inn þreyttur á sífelldum ófriði og
þráði nú frið. Og að hans áliti var
Kashmir það land, sem komst næst
því að vera paradís á jörð.
Við Brian Brake ljósmyndari
höfðum komið hingað úr rykinu og
hitanum á skrælnuðum sléttum
Indlands. Við höfðum verið rúmt
Ar á ferðalagi. Við vorum þrcyttir
og við hlökkuðum til þess að livílast
um mánaðar tíma, eða svo, í hinni
jarðnesku paradís Jahangirs.
Ptgu við lögðum af stað frá flug-
vellinum í Delhi, var hitinn 43
stig, en þó var enn heitara inni í
flugvélinni. Svo flugum við norður
yfir hina sólbrunnu flatneskju. Þar
var hvergi vatn að sjá, allir farveg-
ir voru skraufþurrir. Jörðin var
rauðbrún að lit, eins og brauð úr
ofni. Eftir klukkustundar flug,
grillti í eitthvað úti við sjóndeild-
arhring, og er nær dró, sást að þetta
var fjallgarður. Flugvélin hækkaði
flugið, fjöllin urðu greinilegri og
við sáum fannir í efstu giljum
þeirra.
Skyndilega kólnaði. Þá vorum við
að leggja á Banihal-skarðið, eitt af
fáum öruggum flugleiðum tii Kash-
mir, og hina einu þegar komið er
frá Dehli. Skarðið er 9000 feta hátt.
í snævi klæddum fjallahring.
Það er undrasýn að horfa úr lofti
yfir Kashmir-dalinn, einkum vegna
þess, að þar er allt grænt og sting-
ur í stúf við rauðbrúna litinn áður.
Fjöllin opnast og þarna blasir dal-
urinn við manni, 136 km. langur
og 40 km. breiður, en botn hans er
5000—6000 fet yfir sjávarmál. Þar
sér á blikandi vötn og marggreinda
áveituskurði. En umhverfis er fag-
ur fjallahringur snævi þakinn.
Dregur hann til sín mestan ofsa úr
sólarhitanum, svo að í dalnum sjálf-