Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Side 14
94 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS huganir á hverjum degi og leið- rétta klukkuna eftir því. Engar markverðar breytingar urðu svo á tímamælum langalengi. En næst koma sögur af því að menn hafi fundið upp sigurverk. Er þar helzt tilnefndur munkur, sem Gerbert hét og var bannfærð- ur í Frakklandi árið 966 fyrir að hafa farið með galdur og gert samning við hinn illa. Þessi „gald- ur“ hans var sá, að hann hafði fundið upp sigurverk, sem gekk fyrir lóðaþunga. En sá, sem talinn er hafa fundið upp lóðaklukkuna, var De Vick. Meðan hann var að finna upp klukkuna, hafði hann aðsetur í turni konungshallarinnar í París, og hann var átta ár að fullgera klukkuna. Þetta var hjólaverk mikið, sem knúið var af lóðum og átti gangurinn að vera jafn og stöðugur. En þrátt fyrir þessa snjöllu uppgötvun var gangur klukkunnar ekki nákvæmari en svo, að hún seinkaði sér um tvær stundir á sólarhring. Næstur kemur til sögunnar þýzkur járnsmiður, sem hét Hen- lein. Um 1500 smíðaði hann sigur- verk, sem var knúið af hringfjöður. Við þetta varð klukkan miklu fyr- irferðarminni en áður , en klukka Henleins hafði hinn sama galla op hin fyrri, að hún gekk ekki rétt. Mikil endurbót var það, er menn fundu upp á því að setja dingul á klukkuna. Það var árið 1665 og hugvitsmaðurinn var Hollendingur sem hét Christian Huyghens. Með því að breyta dinglinum alla vega, tókst á nokkrum árum að láta klukkur ganga svo rétt, að ekki munaði nema broti úr sekúndu. ----------------o---- Þegar rafmagnið kom til sög- unnar og hægt var að láta tíðni riðstraums ráða gangi sigurverks, þá komu klukkur, sem voru enn nákvæmari. Þær voru svo ná- kvæmar, að það nægði mönnum ajveg í daglegu lífi. En vísinda- mönnum var þetta ekki nóg. Þeir þurftu að hafa svo nákvæma tíma- mæla ,að ekki gæti skakkað þús- undasta hluta úr sekúndu. Hér kom og nýtt atriði til sög- unnar. Um aldir höfðu menn mið- að gang klukku við snúningshraða jarðarinnar, vegna þess að þeir heidu að það væri hinn öruggi tímamælir náttúrunnar. En nú komust vísindamenn að þeirri nið- urstöðu, að jörðin snýst ekki alltaf jafnhratt. Snúningshraði hennar getur verið mismunandi frá degi til dags. Þessi mismunur halda menn að stafi af því, að jörðin rið- ar nokkuð um leið og hún snýr sér, og eins af því að breytingar verði á hinum fljótandi kjarna hennar. Það kom sem sé upp úr kafinu, að þessi „öruggi tímamælir náttúr- unnar“ var alls ekki öruggur. Fyrir nokkrum árum komust rafmagnsfræðingar að því, að væri kvartskrystallar hlaðnir rafmagni, framleiddu þeir riðstraum með nokkurn veginn nákvæmri tíðni. Með því að gera strauminn sterk- ari og lækka tíðnina, tókst mönn- um að setja hann í samband við sigurverk, og þá var fenginn hinn öruggasti tímamælir, sem til var. Því miður komust menn þó brátt að raun um að tíðni straumsins var bæði háð hitastigi og aldri kryst- alsins. Á hinu fyrra var hægt að ráða bót, með því að hafa alltaf jafnan hita, en svo varð alltaf að skipta um krystalla, þegar þeir elt- ust. Þetta var mikill galli, því að menn vantaði klukku sem gengið gat hárétt langan tíma. Jafnframt þessu jókst stöðugt þörfin fyrir nákvæma klukku. Iðn- aður, stjörnufræði og kjarnorku- vísindi þurftu að fá tímamæli, þar sem ekki gat skakkað meira en svo sem einum milljarðasta hluta úr sekúndu. Eðlisfræðingar þeir, sem fengust við kjarnorkuvísindi, komust að því að útgeislanir frá atómum og sameindum höfðu stöðuga tíðni, sem ekkert gat truflað. Og þá var skammt til þess að hugsa sér, að þessa tíðni mætti nota til þess að knýa sigurverk. En straumurinn var of veikur til þess. Þá hug- kvæmdist mönnum ráð að beina þessum ókvikula straumi fyrst að kvartskrystalli og ná svo straumi frá honum til þess að knýa sigur- verk. Fyrsta sigurverkið af þessari gerð lét „National Bureau of Standards“ í Bandaríkjunum smíða 1948. Það var fyrsta atómklukka heimsins. Þessi klukka var að visu ekki jafn nákvæm og þörf var á, því að hún seinkaði sér um eina sekúndu á þremur mánuðum. En hér var þó fundin aðferð til þess að láta atómið mæla tímann. Svo lét stofnunin smíða annað sigurverk og notaði þá annað atóm með rúmlega helmingi minni tíðni. Árangurinn varð sá, að nú var feng in klukka sem var þúsund sinnum nákvæmari en hin. En það var ekki nóg. Nýasta uppgötvunin á þessu sviði er það sem menn kalla „Maser“ (stytt úr Microwave amplification by stimulated emissi- on of radiation). Þessi Maser- klukka er svo nákvæm, að ekki skakkar nema einum milljarðasta úr sekúndu. En nú þykir það ekki nógu nákvæmt. Menn vilja fá klukku, sem getur gengið svo há- rétt í 300.000 ár, að ekki skakki nema einni sekúndu. Þessi klukka gæti mælt tímann í svo örlitlum brotum úr sekúndu, að allur al- menningur mundi telja það til- gangslaust. En þetta tilgangslausa örlitla brot úr sekúndu getur þó orðið til þess að vísindamenn skilji til fulls atómbyggingu efnisins. l

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.