Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1959, Síða 16
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE ♦ 9 8 5 4 3 2 V 10 9 6 4 ♦ 53 ♦ 4 ♦ K D G ¥ 3 ♦ 10 8 4 2 ♦ 9 8 7 2 N V A S ♦ A 6 ¥ A ♦ 976 + KDG10 6 5 3 10 ♦ 7 ¥KDG8752 ♦ A K D G ♦ A Spilalegan er einkennileg. Sagnir voru þessar: A S V N 1 lauf 2 lauf pass 2 sp. 3 lauf 4 hjörtu pass pass V sló út L4 og þann slag fekk S á ás. Hann sló svo út H G, en A drap og sló út laufi. S trompaði með H 8, en V lét hærra tromp. Hann kom svo A inn á S Á, og þá kom lauf, en með því var V enn tryggður slagur á tromp. S þurfti ekki að tapa. Hann hefði átt að fleygja af sér S 7 þegar A sló út laufi en drepa svo næsta lauf með lágtrompi. — Að vísu drepur V með hærra trompi, en síðan á S alla slagina. ILLVÍGUR STORGRIPUR 1 bókinni „Faðir minn“ segir Helgi Valtýsson rithöfundur frá því er faðir hans vann bjarndýr austur í Loðmund- arfirði. Skaut hann á björninn skammt frá Seljamýri. Rásaði björninn undan helsærður og eitu þeir hann tvær bæ- arleiðir að prestsetrinu Klyppstáð. „Var þar allt á kafi í snjó, og fór björninn að húsabaki rétt framhjá fjós- dyrunum. Mun hann ósjálfrátt hafa hægt skriðinn, er hann fann kúaþefinn út um hálíopnar dyrnar. En í sömu svifum kom þar út fjósamaðurinn, „Sveinn gamli“ nærsýnn karl og dap- ureygur, og hafði hann fjósrekuna í PRESTBAKKI t HRÚTAFIRÐI — Sá sem lítur snöggvast á þessa mynd, mun halda að hann „sjái tvöfalt“. Hér eru tvær kirkjur og tvö hús eins. En þetta er engin missýning. Myndin er tekin fyrir tveimur árum. Þá var verið að reisa þar nýa kirkju, en gamla kirkjan stóð enn við hlið hennar. Nú er gamla kirkj- an horfin og prestsetrið einnig. Þessi tvö hús, sem virðast bæði stæðiieg op voru ekki nema 20 ára gömul, voru rifin og byggt þar nýtt prestsetur. Nú er því öðru vísi að horfa heim á staðínn, heldur en þegar myndin var tekin. (Ljósm. Gunnar Rúnar). hendi sér. Karl sér þarna einhvern stórgrip hvítan fyrir dyrum úti, og hyggur sennilega hest nokkurn þar kominn og þykir hann gerast harla nærgöngull kúaumboði sínu. Bregður hann síðan fjósrekunni tvíhendis og rekur skell mikinn á „lend“ skepn- unnar. Bangsi gerir sér lítið fyrir, skákar sér niður á endann og slæmir öðrum hramminum til Sveins, svo að klær nema við brjóst karls og svifta sundur treyugarmi hans ofan frá hálsi og niður úr. En í sama vetfangi ber þá þar að föður minn og hina tvo, og varð þá ekki meira úr viðskiptum þeirra Sveins og bangsa". PÁLL VÍDALlN lögmaður var talinn bæði forspár og skygn. Um það segir Jón Ólafsson frá Grunnavík svo m. a. í ævisögu Páls: „Síra Þorvarður Ólafsson skírði Pál og vildi fyrirbyggja það hann ram- skyggn yrði, og stoðaði lítt þótt hann bæri skírnarvatnið í augu honum. Eg man þar um nokkra hluti, sem hann sagði um það þá honum var sendur fyrsti draugur, sem var Skotta, þ; er hann var skólameistari í Skálholti' FÆÐI UNGBARNA FYRRUM í hallærum, þegar börnin fá hvork brjóst né kúamjólk, er ástandið hörmu- legt, og þegar svo stendur á, hefir ef til vill einhver séð fátæka móður gefa barni sínu vatnsblandaða mysu. Ann- ars er þess getið, að það hafi komií fyrir í hallærum, að börnum hafi verií gefið volgt vatn með nýu fisksoði ú' í, eða vatnið hefir verið litað met einhverri mjólkurögn. — (E. Ól. Ferða bók). EGG OG BÖRN Sagt er, að jafnan standi á stök rjúpueggin, og ef maður finni fyrst eg| á ævi sinni í rjúpuhreiðri, eigi hann að eignast jafnmörg börn á síðan. Aðrii segja, að einu gildi, hvaða hreiður maður finni fyrst, barnatalan fari eins eftir eggjafjöldanum fyrir það. — (Þjóðs. J. A.) I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.