Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1959, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1959, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 105 „Heilagir menn“ á Ieið til Amarnat- hellisins. Sá, sem stendur fjaer, er með betlisbauk. þau birtu á snjóhvítan jeppa, sem brúðgumi átti að aka í. Kvenfólkið helt sig í skugga hússins og söng dapurlega söngva. Svo lagði hljóð- færaflokkur fyrst á stað. Menn- irnir voru klæddir í skozka her- búninga og léku á skozkar sekkja- pípur. Brúðgumi steig á bílinn og þá kváðu við fagnaðaróp karla, en vein og grátur kvenna. Nú var haldið heim til brúðurinnar. Þar var brúðgumi niðurlútur og ófram- færinn meðan á átveizlunni stóð, en það þykir kurteisi. Ekki sást brúðurin og engar konur í veizl- unni. Veizlan stóð langt fram á nótt, og henni lauk ekki fyr en brúður- in fór með manni sínum heim til hans. Hár spámannsins. Smám saman kynntumst við sið- um og háttum Kashmirbúa. Við kynntumst „hakim“, eða lækni þeirra, og grasalækningum hans. Svo kom föðurbróðir Ahmeds og kona hans heim úr pílagrímsför til Mekka. Þá fengum við að sjá hvernig virðingamaður getur stór- um aukið á virðingu sina með því að fara slíka pílagrímsferð. Dög- um saman streymdi fólk og sendi- nefndir heim til hans og hann sagði þeim sögur af dásemdum Mekka. Nokkru seinna vorum við við- staddir hátíð „spámannshársins“ í Hazrat Bal musterinu. Hár þetta er óforgengilegt og sagt er að það geti ekki brunnið í eldi. Það er sýnt sannirúuðum einu sinni á ári. Það var hátíðlegur viðburður, en þó ekki með slíkri viðhöfn sem hátíðir eru á Vesturlöndum. Fólkið safn- aðist saman fyrir framan musterið og baðst fyrir. Svo kom kennimað- ur (maulvi) og helt einhverju á loft, en múgurinn æpti hvað eftir annað: „Allah! Allah!“ Þá vissi eg að þetta mundi vera hár spámanns- ins. Svo leystist söfnuðurinn upp og hátíðinni lauk jafn skyndilega eins og kvikmynd, sem slitnar. í stórum shikana fórum við einn dagin til Wularvatns. Og mér fannst það skrítið að okkur nægði þá ekki minna föruneyti en fimm ræðarar, matreiðslumaður, Ahmed og Ramzana sonur hans. Að gamni okkar höfðum við boðið Satara, nuddlækninum, með okkur. Hann kom með allt sitt lækningahafur- task og auk þess vottorð frá mekt- armönnum um að hann hefði lækn- að gigtina í sér. Wularvatn er stærst í Kashmir. Það er um 20 km. á lengd og 8 km á breidd. Það er fyrir neðan Srinegar, svo að auðvelt var að komast þangað, straumur bar bát- inn alla leið. Um veturinn hafði verið óvenjumikil fannkoma í fjöllum, og þess vegna voru nú miklir vatnavextir, og höfðu víða valdið tjóni þar sem þeir brutu stíflugarða og flæddu yfir akra. Sums staðar sáum við kindur og kýr standa á umflotnum hólum, og voru bændur að flytja fóður út til þeirra. Snemma næsta morgun vorum. við komnir út á mitt vatnið. Tind- urinn á Apharwatfjallí teygðist upp í mogunroðann, hátt yfir hin fjöllin enda er hann 13.592 fet á hæð. Á yfirborði vatnsins var mik-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.