Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1959, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1959, Síða 16
112 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE A A 10 ð 7 2 ¥ 6 4 ♦ 10 9 2 ♦ 7 5 4 ------- A D 4 3 N V 10 8 7 5 V A 4 4 3 S + 10 8 6 3 ♦ K G 8 5 V K 3 ♦ K D G 8 6 ♦ A K Vestur hóf sögn með einu hjarta, en S komst í fjóra spaða. LD kom út og var drepin á hendi. S er með 9 tromp alls, þar af tvö hæstu, og það er nær ófrávíkjanleg regla að „spila þá beint“ í þeirri von að ná drottningunni. En hér er nokkur vandi á, því að A má ekki komast inn, til þess að spila hjarta. Bezt er að taka slag á trompás og slá svo út lágspaða og „svína“ gosanum, því að það gerir minna til þótt V komist þá inn. Þegar S kemst inn, getur hann fríað tiglana, og í þá fara hjörtun úr borði. * 6 * ÁDG 92 ♦ A 7 5 4DG92 VIÐ ÞINGKOSNINGARNAR 1886 var séra Jens Pálsson eini fram- bjóðandinn til þingmennsku fyrir Árnessýslu eða Árnesinga og ætluðu kjósendur allir að kjósa hann, þeir sem mættir voru þar á fundarstaðn- um (Hraungerði). Þá helt hann svo langa kosningaræðu á kjörfundinum, að séra Stefán Stephensen taldi ófært að senda svo langorðan mann á þing, og fór að skeggræða við aðra kjós- endur um það, hvort enginn væri mættur þar á fundinum, sem gæti kom- ið til mála að senda á þing. Meðan á ræðu séra Jens stóð, kom þeim sam- an um að reyna að fá Skúla á Berghyl til þess að gefa kost á sér til þing- mennsku fyrir Árnesinga. Skúli gekk FÍFUKVEIKUR — hin ágæta smásaga Guðmundar Friðjónssonar á Sandi, hefir verið þýdd á Norðurlandamálin og birzt i nokkrum blöðum. í sumar sem leið birtist hún í „Landet", sem var sveitarútgáía Berlingske Tidende í Kaup- mannahöfn. Auk þess hefir hún birzt í jólablöðum Aalborg Stiftstidcnde og Fyens Stiftstidende. Þá birtist hún og í jólablaði Dagens Nyheter í Stokkhólmi, en það er stærsta blað á Norðurlöndum. Um leið og sagan var þýdd á sænsku og dönsku, teiknaði Ríkharður Jónsson fjórar myndir í hana. Sú mynd, er hér birtist, kom í sögunni í Dagens Nyheter. að þessu og var kosinn, en séra Jens fell og varð fyrir miklum vonbrigðum. — (Sig. Briem: Minningar). FUNDARLAUN Þegar eg man fyrst, gilti sú regla um fundarlaun úr eftirleitarfé, að finn- andi virti kindina til verðs, og eigand- inn greiddi ákveðinn hluta virðingar- verðsins í fundarlaun. Væri hann ósam- þykkur virðingunni, varð finnandinn annað hvort að breyta henni til sam- komulags, eða kaupa kindina með virð- ingarverðinu. Hluti eftirleitarmanns sem fundarlaun úr hverri kind var þannig: Helmingur úr lambi, þriðjung- ur úr veturgamalli kind, fjórði part- ur úr tvævetrum sauð eða eldri, og eins úr algeldum ám og fullorðnum hrútum. (Sigurður á Arnarvatni), HREINDÝRAMOSI Mosategund þessi vex nær allsstaðar hér á landi. Hann samanstendur af upp- reistum, sívölum, marggreinóttum, upp- réttum bol, ljósgráum og hvítleitum, hvers ytri smágreinar eru tvískiptar, settar kúlumynduðum dökkum vörtum. Er hann líkastur hjartarhorni eða birkikræklu. Vex á þúfum upp til fjalla, heitir líka „tröllagrös“ og „mó- krókur“. Hann er gott lyf móti brjóst- veiki. Mulinn í smátt og blandaður við mjöl má hafa hann til brauðgerðar, eða sjóða hann í mjólk eða súpu, og er þá góður til manneldis. Blandaður saman við hcy með heitu vatni og stráð salti á, gefa kýr þannig aldar hina rjóma- mestu mjólk og ljúffengara kjöt. Líka er hann þannig góður handa ungviði, svo sem kálfum, grísum og lömbum. — Hér á landi er hann hæstur í hrauninu úr Skaftárgljúfri, allt að 6 þumlung- um. (Eftir handriti Bjarna Jóhannesson ar 1860). GÖMUL VÍSA Um þá stund var Isa-grund æfð í þægðar vana; nú er mund og lýða lund límd við skildingana.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.