Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
139
Bátaflotinn varð að
liggja í höfn mestan
hluta mánaðarins
vegna stórviðra.
Þessi mynd er frá
Keflavík.
grunni og í Kolluál út af Snæfellsnesi
(28.)
SLYSFARIR
Ótemja sló Ágúst Sigurðsson í Birt-
ingaholti svo, að flytja varð hann í
Landspítalann (1.)
Jón Alberts, rafvirkjameistari á ísa-
firði, sem starfaði hjá ratsjárstöðinni á
Straumnesfjalli, fell sofandi fram úr
háarúmi og beið bana af (3.)
Þrír Bandaríkjamenn ætluðu að
klífa Þyril, einn hrapaði og stórslasað-
ist (5.)
Sekkjahleðsla í vörugeymslu SÍS í
Reykjavík hrundi, lenti ó verkamanni
og fótbraut hann (12.)
Herðubreið lá við bryggju í Breið-
dalsvík í rokinu mikla hinn 10., fekk
vír í skrúfuna og stórskemmdi bryggj-
una (15.)
Douglasflugvélin Gunnfaxi laskaðist
mikið á flugvellinum í Vestmannevum
í stórviðrinu 10. Seinna slitnaði hún
afturs frá festum þar og brotnaði
meira, svo óvíst er talið hvort hægt
muni að gera við hana (15., 18.)
Ungur danskur vetrarmaður á Þing-
eyrum beið bana, er ofviðrið þann 10.
hvolfdi vagni undir honum (17.)
Páll Hjálmarsson bóndi á Kambi í
Deildardal, var að reyna að gera að
þaki í ofviðrinu 10., en fauk niður af
þakinu og slasaðist mikið (17.)
Otto H. Guðmundsson, skipverji á
togaranum Þorsteini Ingólfssyni, fell í
stiga niður í hásetaklefa og beið bana
(17.)
Rússneskur dráttarbátur sigldi á
Tröllafoss undan suðurodda Svíþjóðar.
Kom gat á byrðing Tröllafoss og varð
hann að leita hafnar í Trelleborg (19.)
Geirald Gíslason, verkamaður á
Sauðárkróki, slasaðist mikið við upp-
skipun (20.)
Ólafur Jónsson, háseti á togaranum
Ingólfi Arnarsyni, slasaðist um borð
í ofviðri (21.)
Sigurður Kolbeinsson, 2. stýrimaður
á togaranum Þorkeli mána, slasaðist
mikið í ofviðrinu á Nýfundnalandsmið-
um (21.)
Vb. Langanes sökk hjá Vestmanney-
um í fiskiróðri. I.íannbjörg (22.)
Jón Sigurðsson, háseti á Tungufossi,
lenti með fótinn í vírlykkju er skipið
var að leggjast að bryggju í Húsavik,
herti svo á vírnum og skarst fóturinn
í sundur (24.)
Sigurður Jóhannsson stúdent, sem
brenndist á grímudansleik suður í
Þýzkalandi, lézt úr sárum (25.)
Guðmundur Steinsson, nemandi i
Menntaskóla Akureyrar, slasaðist í
sundlauginni þar, rakst í botn er hann
stakk sér og brotnaði við það hálsliður
(27.)
BÍLSLY*S
Ölvaður bílstjóri olli árekstri í
Reykjavík. Ónýttist bíllinn sem hann
ók á, en tveir menn meiddust (3.)
Sjö ára telpa varð fyrir bíl í Reykja-
vík, en meiddist furðu lítið (11.)
Tveir litlir drengir urðu fyrir bílum,
sinn á hvorum stað, en sluppu báðir
furuu vel (22.)
Harður bílaárekstur á Hafnarfjarðar-
vegi, báðir bílarnir stórskemmdust
(20.)
Vörubíll frá Áburð-’rverksmiðjunni
rakst á r' ' '-.v!'’ og
MANNALÁT
1. Sveinbjörg Sveinsdóttir Ottesen,
Reykjavík.
1. Arni Árnason, Reykjavík.
1. Hallur Björnsson, Akranesi.