Lesbók Morgunblaðsins - 15.03.1959, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
143
Eirikennilegar tölur
TALAN9
Margfaldaðu töluna 9 með hvaða
tölu sem þér sýnist, og þversumm-
an verður alltaf 9. Tvisvar 9 eru
18, en 1 og 8 eru 9. Þrisvar 9 eru 27,
en 2 og 7 eru 9. Ellefu sinnum 9
eru 99, þversumman 18 og 1 og 8
eru 9. Ef teknar eru nú hærri tölur
til dæmis, svo sem 339 sinnum 9,
Þá fæst talan 3051, en þversumman
er 9. 5071 sinnum 9 eru 45639, þver-
summan af því er 27, en 2 og 7
eru 9.
Þannig mætti halda áfram óend-
anlega. Annað er þó einkennilegra.
Dr. Takdir Alisjahbana, vararektor
háskólans í Djakarta í Indónesíu, kom
hingað og flutti fyrirlestur (27.)
Bragi Nielsson læknir tók við hér-
aðslæknisstörfum í Síðuhéraði (27.)
Efnt var til þýzkrar bókasýningar í
Reykjavík (28.)
ÝMISLEGT
Útigönguhestur, sem verið hafði 4 ár
á Mývatnsöræfum, var eltur uppi á bíl
(3.)
Kýr á öndóttsstöðum í S.-Þingeyar-
sýslu eignaðist fjóra kálfa, en þeir
drápust allir. Kýrin er 3 vetra og var
tvíkelfd í fyrra (13.). Önnur kýr í
Reykjadal í Suður-Þingeyarsýslu bar
þremur kálfum dauðum (18.)
Upp komst að miklu áfengi hafði
verið smyglað um borð í Lagarfoss áð-
ur en hann færi frá Hamborg. Skip-
stjóri frétti þetta í hafi og skoraði á
skipverja að koma öllu áfenginu á einn
stað í skipinu. Var það gert og voru
þetta 30 kassar. Skipstjóri lét varpa
þeim útbyrðis (18.)
Á þremur dögum handtók lögreglan
í Reykjavík 9 menn, sem voru ölvaðir
við bílakstur (24.)
Bók, prentuð í Skálholti 1688, var
seld á uppboði í Reykjavík fyrir 15.500
kr. og mun vera dýrust allra íslenzkra
bóka (25.)
Verð á áfengi hækkar um 15% (28.)
Ef þú tekur einhverja tölu og snýrð
henni við og dregur lægri töluna
frá þeirri hærri, þá verður summ-
an af útkomunni 9.
Tökum til dæmis 5071
snúum við.....1705
Útkoman er .... 3366,
en þversumman af Því er 18, og
1 og 8 eru 9. Tökum svo töluna 62,
snúum henni við og drögum 26 frá
62, eftir verða 36, en 3 og 6 eru 9.
Ef þú margfaldar hvora tölu með
sjálfri sér þá koma út tölurnar
676 og 3844. Dragðu lægri töluna
frá og eftir verða 3168. Þversumm-
an af því er 18, en 1 og 8 eru 9.
Skrifaðu hvaða tölu sem þér
sýnist og dragðu frá þversummuna
af henni og þversumman af út-
komunni verður alltaf 9. Tökum til
dæmis:
7.549.132, Þversumma 31
-4- 31
7.549.101, en þversumman af
því er 27, og 2 og 7 eru 9.
TALAN7
Talan 7 getur og verið nógu skrít-
in í meðförum stundum. Ef þú
deilir 999.999 með 7, þá kemur út
talan 142.857. Og taktu svo eftir
þessum tölum:
142857 x 1 er 142857
x 3 — 428571
x 2 — 285714
x 6 — 857142
x 4 — 571428
x 5 — 714285
Við hverja þessa margföldun
koma fram allir sömu stafir í út-
komunni og í sömu röð, nema hvað
fyrsti stafurinn færist alltaf aftur
fyrir.
TALAN 11
Ef þú margfaldar töluna 11 með
sjálfri sér, verður útkoman 121 og
er óbreytanleg hvort hún er les-
in áfram eða aftur á bak. Marg-
faldaðu þessa tölu með 11 og út-
koman verður 1331, sem er alveg
eins lesin aftur á bak. Margfald-
aðu þessa tölu með 11 og útkoman
er 14641, og er sama sagan, hún er
alveg eins lesin aftur á bak.
í samlagningu getur talan 11
einnig verið einkennileg. Ef þú
skrifar í sex raðir tölurnar frá 1
til 36, ýmist frá vinstri eða hægri,
þá verður niðurstaðan Þessi:
1 2 3 4 5 6
12 11 10 9 8 7
13 14 15 16 17 18
24 23 22 21 20 19
25 26 27 28 29 30
36 35 34 33 32 31
111 111 111 111 111 111
JÖFN TALA
Talan 2 getur líka verið ein-
kennileg. Ef þú skrifar upp tölurn-
ar 1—9 í fjórar raðir, ýmist frá
vinstri eða hægri, og bætir svo 2
við, þá verður dæmið Þannig:
123456789
987654321
123456789
987654321
2
2222222222
<*>
Samtal í fangelsi:
— Ertu kvæntur?
— Já.
— Ertu ekki hræddur um að konan
haldi fram hjá þér meðan þú ert hér.
— Nei, það er engin hætta á því.
— Ertu viss um það?
— Já, til þess liggja þrjár ástæður.
í fyrsta lagi er konan mín góða kona.
í öðru lagi þykir henni vænt um mig.
Og í þriðja lagi þá er hún líka í fang-
elsL