Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Blaðsíða 1
12. tbl. Sunnudagur 3. apríl 1960 XXXV. árg, Birgir Kjaran; Svipast um á Suðurnesjum að morgni Konudags ENN er hæð yfir Gr|Jnlandi — tí- undi dagur rakinnar norðanáttar. Góan er gengin í garð, og það er glampandi sól að morgni þessa Konudags. — -----„Grimmur skyldi Góudag- urinn fyrsti, annar og hinn þriðji, þá mun Góa góð verða“, sagði gamla fólkið. Trúlega sýnir mælir- inn nú nokkur strik fyrir neðan núllið, en „grimmur“ verður hann ekki talinn, þessi góðviðrismorg- unn, svo að ekki spáir vel til um Góuna samkvæmt því. En þeir eru fleiri Góu-spádómarnir. Til dæmis var hún eitthvað á þessa leið vísan, sem hún amma mín sönglaði stund- um: „Ef hún Góa öll er góð, — að því gæti mengi, — þá mun Harpa, hennar jóð, herða á snjóa strengi“. Og svo kunni hún auðvitað öll fræðin um þurran þorra, þeysama Góu, votan einmánuð og gott vor. En það er nú önnur saga. Mitt sögukorn fjallar um smálega ferða- reisu, sem gerð var á þessum milda Birgir Kjaran Konudagsmorgni suður með sjó og hefur nánast að geyma fáeinar svipmyndir af Suðurnesjum í byrj- un Góunnar á því herrans ári 1960, hripaðar niður mér til gamans og öðrum vonandi að skaðlausu. Vesturbæingur, sem heldur úr bænum á slíkum sunnudagsmorgni, hvort heldur förinni er heitið eftir Suðurlands- eða Reykjanesbraut, krusar ekki Vatnsmýrina. Hann rennir sér með höfninni, þótt smá- krókur sé. Sumum kann að virðast þetta tilviljunarkennd fyrirtekt, en því fer víðs fjarri. í þessu felst sjálf erfðasyndin, skilsmunur þess að vera alinn upp á möl sjávar- plássins eða í móum dalabaejanna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.