Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSmS 187 Þarna hafði aldrei farizt skepna áður í manns minni. Óhapp þetta hafði því skeð með hinum mestu ólíkindum, um há- bjartan sumardag og í glaða sól- skini. Vildu sumir halda því fram, að þetta vðeri hefnd fyrir það, að Völvuleiði hafði verið slegið þá um morguninn. En ekki var mér gefin sök á því, þar sem eg hafði ekki haft hugmynd um álögin. Og ekki hefndist mér fyrir verkið. Menn sögðu að það væri vegna þess, að það hefði verið óviljaverk hjá mér að slá álagablettinn, en einhvers staðar hefði hefndin orðið að koma niður, og þá að sjálfsögðu á ábú- anda jarðarinnar. Seftjörn hjá Skálmarbæ Eg byrjaði búskap um aldamótin á þriðjungnum af Skálmarbæ í Álftaveri. Þar var mjög lítill hey- skapur, og verst af öllu að þar fekkst ekkert nautgæft fóður. En í landi Skálmarbæar er hraun- tjörn, vaxin sefi. Fekk eg fljótt augastað á henni, að þar mundi eg geta fengið ágætt kúafóður. Og svo var það einn sólskinsdag um sumarið, að eg lagði í að slá tjörnina. Það var heitt í veðri og vatnið í tjörninni var ekki kalt til óþæginda, En seinlegt reyndist mér verkið. Sef verður að skera niðri í vatninu, en botninn reynd- ist ærið ósléttur vegna hrauns. Stóð eg annað veifið í mitti, en á næstu stundu ekki nema í hné, og vegna þessa var eg alltaf að reka ljáinn í grjót, svo að það tafði mig. Þegar eg hafði hálfnað að slá tjörnina, eða þar um bil, kemur sambýlismaður minn til mín. Hann hafði gert sér ferð til mín, aðeins til þess að vara mig við að slá tjörn- ina. Sagði hann mér að þau álög hvíldu á henni, að hana mætti aldrei slá'. Eg hafði aldrei heyrt þessa getið fyr, og spurði hann því hvað við lægi, ef tjörnin væri sleg- in. Það kvaðst hann ekki vita, en einhver óhöpp ætti að henda þann, er gengi í berhögg við álögin. Eg þakkaði honum fyrir góðvilja hans og leiðbeiningar. Þótti mér þá hálfleiðinlegt, að eg skyldi hafa byrjað á þessu verki. En á hinn bóginn var mér illa við að hætta við það. Þessi góðviðrisdagur var mér þá með öllu glataður, og mér fannst eg ekki mega við því. Og hvaða myrkravöld var svo sem að óttast í þessu dýrlega veðri? Og á þessum eina stað í allri landareign- inni gat eg útvegað mér ómetan- lega björg í bú. Það varð því úr, að eg hélt verkinu áfram. í þann mund er eg lauk því að slá tjörnina, var komin vestangola og bar sefið allt upp að landi þar sem eg hefði helzt á kosið. Tók eg þá til að kasta sefinu upp á bakk- ann og var komið fram undir kvöld er eg hafði lokið því verki. Var þá enn gott og hlýtt veður, þrátt fyrir goluna. Eg tók nú hest minn og helt heim á leið. En ekki hafði eg langt farið, þegar að mér setti mikinn kulda og skjálfta. Skildi eg ekkert í þessu, því að eg var eng- inn viðvaningur í vötnum og hafði oft svalkað í kaldara vatni en þennan dag, án þess að verða meint af. Mörgum sinnum hafði eg verið við selveiði í Kúðafljótsósi á vorin; þar varð maður stundum að standa mestan hluta dags upp í mitti í ís- köldu vatni, og voru fætur manns þá oft svo dofnar orðnar af kulda að maður fann ekki til þeirra. En aldrei hafði mér orðið meint af slíku, þótt kalt væri þá einnig í veðri, og engan vissi eg hafa kvef- ast af því, hvað þá meira. En á heimleiðinni nú skalf eg eins og festur upp á þráð og svo bættust við sárir verkir innvortis. Eg skal svo ekki orðlengja frekar um það, en síðan hefi eg aldrei losnað við þá meinsemd, sem eg fekk þennan dag. Hefi eg nú gengið ^4 lielÉi uun Fjarri borg og býlum, blárra fjalla vegi, geng ég, gleði hrærður, gullnum vors á degi. Heiði hugann fangar, hjartans lindir óma. Yfir bakka og brúnir bregður töfraljóma. Titra ljós í lyngi, leikur sval) þýður, frjálsa friðararma fjallakyrrðin býður. Útsýn undraheima augans hrifning vekur, byggðadrungann dökkva dýrðaróður hrekur. Hér er gott að gista, gleyma þraut og meinum, langt frá lýðsins boðum, lúta Guði einum Finna í brjósti flæða, fögnuð yndisstrauma, lesa í ljóssins rúnum lífsins óskadrauma. Dul og dásemd vafin dalalöndin skína. Alltaf fjöllin ólu æðstu sælu mína. Angan vors og vinda viljans orku magnar. Týndum sektarsyni sólskinsheiðin fagnar. KNtJTUR ÞORSTEINSSON frá Úlfsstöðum. með hana í 60 ár, og á þessum langa tíma hefi eg leitað óteljandi lækna. Þeir hafa allir skoðað mig vand- lega, en enginn hefir getað upp- götvað hvað að mér gengur, og engin meðul hafa dugað. Nú á seinni árum hefi eg oft ver- ið að velta fyrir mér þessari spurn- ingu: Skyldi vanheilsa mín vera hefnd fyrir það, að eg sló seftjörn- ina? Á. Ó. skráði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.