Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1960, Síða 8
188 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ÉG SAFNA BRÚÐUM segir varaforseti Pan Amer'ican Airways EINHVER kærkomnasta jólagjöfin er brúða. Eg ætti að vita það, því að eg fæ vanalega fjórar eða fimm brúður á jólunum. Eg tekst á loft í hvert skifti, og þó er eg fullorðinn maður. Sannleikurinn er sá, að eg safna brúðum. Og auðvitað hefi eg feng- ið ýmsar háðsglósur hjá kunningj- um mínum, þegar þeir frétta um þessa söfnun mína. En þetta breytist, og áður en lýkur verða þeir stórhrifnir af brúðusafninu mínu. Annars eru þeir margir sem safna brúðum. í Bandaríkjunum hafa þeir félagsskap með sér, og á félagaskránni eru nöfn fjölda margra karlmanna. Guy Mollet, fyrv. forsætisráðherra Frakka, á brúðusafn. Eugene Field, skáldið, safnaði brúðum. Eg veit um brezk- an flotaforingja, sem safnaði brúð- Búin sem hirðmey á dansleik í Vetrarhöll Bússakeisara um á ferðalögum sínum. Fyrver- andi sendiherra Grikkja í Banda- ríkjunum, amerískur öldungadeild- arþingmaður, þýzkur vísindamað- ur — allir safna þeir brúðum í frí- stundum sínum. Ágústa prinsessa af Saxen-Gotha varð að athlægi fyrir það, að hún hugsaði meira um brúður en tign sína. Hertoga- ynjan af Marlborough lét gera brúðu, eftirmynd í fullri stærð af vini sínum, skáldinu William Con- greve, þegar hann lézt 1729. Það er sagt að brúða þessi hafi verið svo nákvæm eftirlíking, að hún hafi haft sár á fæti eins og skáldið, og síðan hafi hertogaynjan látið lækni gera að sári brúðunnar reglulega. Eg ímynda mér að það hafi verið karlmaður, sem bjó til fyrstu brúð- una aftur í grárri forneskju. Senni- lega hefir hún verið heillagripur eða ímynd þess guðs, sem hann dýrkaði. Hann hefir gert hana til þess að gleðja guðinn, alveg eins og brúður eru gerðar nú á tímum til þess að gleðja litlar stúlkur. í Bandaríkjunum eru nú framleidd- ar brúður fyrir 130 miljónir doll- ara ár hvert, og það eru aðallega karlmenn, sem standa fyrir því. Erfði brúðusafn Þegar eg hefi nú þannig gert grein fyrir afstöðu karlmanna gagnvart brúðum, verð eg að við- urkenna, að það var kona sem vakti áhuga minn fyrir þeim. Hún hét frú Ann M. Archibald og var í stjórn Pan American World Air- ways í Washington. Heima hjá henni voru glerskápar hver við Dansmær frá Síam annan og í þeim geymdi hún 300 brúður frá ýmsum löndum. Árum saman kom eg aldrei svo úr ferðalagi, að eg færði henni ekki brúðu. Hún sagði þá stundum brosandi, að eg fengi þær aftur, því að hún ætlaði að arfleiða mig að brúðum sínum. Hún andaðist 1953 og hafði arfleitt mig að öllu brúðusafni sínu. Við hjónin áttum þá heima í Greenwich í Connecticut og urð- um meira en lítið hissa, þegar okk- ur bárust fjölda margar körfur. En upp úr þessum körfum kom alþjóð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.