Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1961, Side 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
65
stólum í búðum, sem versla með
alls konar nýar matvörur. Ekki
fara sögur af því hve mikið er
keypt af þessu, en til eru þeir
menn, sem telja það borgaralega
skyldu sína að hvetja fólk til að
læra átið, og eru það einkum
menn, sem kynnzt hafa mat úr
skordýrum meðal framandi þjóða
Og telja þetta herramannsrétti.
Þetta er ef til vill byrjunin á
því að hvítir menn leggi niður
fordóma sína. Ggtur þá farið svo
að skordýrin verði „björg í bú“
er fram líða stundir og fólkið er
orðið svo margt á jörðinni, að
matarskortur þrengir að.
Kartöflurækt á Héraði
1 LESBÓK 6. des. 1959 er brot úr
búskaparsögu Stefáns Filippussonar,
sem bjó 20 ár í Brúnavík við Borgar-
fjörð eystra. Stefán segist brátt hafa
tekið að rækta þar jarðepli, en slíkt
hafi þá ekki þekkzt í Borgarfirði „og
mjög óvíða á Héraði, ef nokkur hefir
verið þar. Enginn kartöflugarður var
á búnaðarskólanum á Eiðum er við
komum þar 1897, og hvergi sá eg
kartöflugarð á Héraði og fór eg þó
vítt um það“.
Vera má að Stefán segi rétt frá
þessu um Borgfirðinga, að þeir hafi
enga jarðeplarækt haft um þetta
leyti, en hitt er víst, að á Héraði voru
víða matjurtagarðar um aldamót. Þeir
voru til, þegar eg man fyrst eftir um
1887 og allvíða. Meira mun á þeim
árum hafa verið gjört að því að rækta
rófur, en þær vildu bregðast, vegna
þess að fræið kom seint eða aldrei
upp í þurviðrasömum vorum, en þau
eru tíð á Héraði. Hinsvegar gekk bet-
ur með jarðeplin. Af því leiddi svo
að fleiri og fleiri bændur lögðu stund
á að rækta þau svo að um aldamót
voru kartöflugarðar komnir þó nokk-
uð víða. Auðvitað voru þeir líka á
Eiðum. Sá eg þar settar niður kart-
öflur vorið 1895, hvað sem verið hef-
ir tveimur árum seinna. Auðvitað var
þetta allt í mjög smáum stíl hér.
Auðheyrt var á Skaftfellingum, sem
i
\
Hinn nukli himinskygnir
STÆRSTI himinskygnir (Radio,-
Telescope), sem gerður hefir ver-
ið, er nú á Jodrell Bank í Eng-
landi. Skál hans er 250 fet að
þvermáli. En nú er hafin smíði á
nýum himinskygni í Bandaríkj-
unum og verður hann rúmlega
fimm sinnum stærri en þetta.
Skál hans verður 600 fet að þver-
máli og samsvarar það sjö ekrum
að flatarmáli. Þessi skál verður
þakin með aluminium og er talið
að í hana muni fara 2 miljónir
punda af aluminium. Undir þess-
ari skál er stálgrind, sem er á hæð
við 60 hæða hús, og í hana fara
um 20.000 lestir af stáli.
Þessi himinskygnir á að taka
við radiobylgjum, sem koma utan
úr geimnum, og er talið að hann
muni ná bylgjum sem komnar eru
um þúsunda miljóna ljósára veg.
Þó er enn ekki vitað hve langt út
í geiminn hann muni ná, en talið
víst að það verði lengra en beztu
stjörnusjár geta náð. Aluminium-
skálin á að henda radiobylgjurnar,
og með þessu móti hyggjast vís-
indamenn geta kannað geiminn
enn lengra en áður og fengið
betri vitneskju um aldur vetrar-
brautanna.
hingað fluttust um þessar mundir, að
garðrækt var komin á hærra stig hjá
þeim. Einkum mun jarðeplaræktin
hafa verið allmikið stunduð í vestur-
sýslunni, og oft gefið gott búsílag.
Því miður hefi eg ekki gögn í hönd-
um til þess að geta sagt um það,
hvenær jarðeplum var fyrst stungið
í mold á Héraði, en eg mótmæli því
eindregið, að það hafi dregizt fram
yfir síðastliðin aldamót.
12. des. 1960.
Gísli Helgason.
Það er kunnugt að radiobylgjur
stafa af öllum hlutum, þar sem
ekki er helkuldi (-;- 273 st. C) Eftir
því sem hlýnar, aukast bylgjurnar
og verða styttri og styttri, þangað
til þær verða að lokum að ljósi.
Oftast eru þessar bylgjur ósýni-
legar, en himinhnettirnir verða
sjálflýsandi vegna hins mikla út-
streymis. Þessum rafsegulbylgj-
um rignir stöðugt yfir jörðina ut-
an úr geimnum, og með því að
mæla þær, geta menn orðið margs
vísari. Þá verður til dæmis hægt
að mæla fjarlægðir milli himin-
hnattanna og jafnvel gera sér
grein fyrir hvernig yfirborð þeirra
er.
Nú er þessi nýi himinskygnir
hafður svo stór, vegna þess að
með því móti er hægt að ná
meira af „skeytum“ utan úr
geimnum, en tekizt hefir fram til
þessa. Honum er valinn staður í
fjalllendi í vesturhluta Virginíu
og mun ganga undir nafninu „U.
S. Naval Radio Research Station“.