Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.1963, Side 10
------ SSMAVIÐTALIÐ ________
Fœrri komasf en vifja
Hver •er;-'' V,..
uppáhaldsmatur
eiginmannsins
í dag svarar spurning-
unni frú Halldóra Guð-
miundsdóttir, eiginkona
Björns L. Jónssonar, lækn-
sem eins og kunnugt er, er
mjög mikill náttúrulækn-
ingamaður, borðar eingöngu
fæðu úr jurtaríkinu. En frú-
in segir að hann hafi ekkert
á móti því að aðrir á heim-
ilinu borði venjulega fæðu,
en hann hefur samt óbif-
anlega trú á jurtafæðunni
og finnst hún gera sér mjög
gott. — Frúin lét okkur í
té tvær uppskriftir að rétt-
um, sem falla Birni mjög
vel í geð og eru aldeilis
prýðilegar:
Baimabuff
1 bolli malaðar, þurrkað-
ar grænar baunir, 1 egg, 3
matsk. heilhveiti, 3 matsk.
haframjöl, 1 peli mjólk, salt
á hnífsoddi.
Þurru efnunum er blandað
saman í skál og hrært út
með mjólikinni og egginu,
sett á pönnu með skeið og
búnar til kringlóttar kök-
ur og þær steiktar ljósbrún-
ar (t.d. í matarolíu). Síðan
eru kökurnar settar í gata-
sigti og gufusoðnar í nokkr-
ar mínútur. — Laukur er
skorinn í þunnar sneiðar og
gufusoðinn þar til hann er
meyr og er honum þá velt
upp úr brúnaðri feitinni.
Með þessu eru borðaðar soðn
ar kartöflur, rauðkál (soðið
á venjuiegan hátt) og soðn-
ar gulrætur.
Grænmetisgratín:
2 meðalstórar gulrætur, 2
—3 púrrur, 1 epli, 2 matsk.
salatolía, Va dl rjómi, 1 egg,
safi úr V-2. sítrónu.
Gulræturnar eru rifnar
niður mjög fínt, og látnar í
eldfast mót, púrrumar
sneiddar niður og látnar
ofan á og loks eplin skorin
í sneiðar og látin ofan á púrr
urnar. Síðan er egginu biand
að saman við rjómann og
olíuna og sítrónusafann og
síðan hellt yfir. Þetta er því
næst bakað í ofni í um það
bil 3 stundarfjórðunga.
— Auglýsingar?
— Nei, þetta er á ritstjórn.
— Ekki takið þið á móti au.g
lýsingum?
— Nei, það gerum við ekki.
Þér verðið að hafa samband við
auglýsingaskrifstofuna.
— Hve lengi er hún opin?
— Ég held að henni sé lokað
á hádegi á laugardögum.
— Þá er ég orðinn of seinn að
koma auiglýsingu í sunnuda-gs-
blaðið?
— Hræddur um það. Þér verð
ið bara að hringja á mánudag-
inn og koma henni í þriðju-
dagsblaðið.
— Fjandans vandræði. Éig
ætlaði endilega að koma henni
í sunnudagsblaðið.
— Því miður, við því er ekk
ert að gera. Var þetta svona á-
ríðandi?
— Já, það má í rauninni ekki
dragast lengur.
— Hvað er á seyði?
— Þetta er í sambandi við
gagnkvæmar heimsóknir ís-
lenzkra og bandarískra ungl-
inga.
— Eruð þið að auglýsa eftir
þátttakendum? Fæst enginn til
að fara?
— Nei, ég held nú síður. Það
komast miklu færri en vilja.
Nú erum við að undirbúa mót-
töku bandarísku unglinganna
og í því sambandi auglýsum
við.
— Má ég heyra?
— Auglýsinguna?
— Já.
— Hún er svona: Frá Arner-
ican Field Service á íslandi. Á
sumri komanda munu banda-
rískir menntaskólanemar korna
hingað til lands á vegum stofn-
unarinnar. Dveljast þeir hér um
tveggja mánaða skeið hjá ís-
lenzkum fjölskyldum....
— American Field Service á
íslandi?
— Já, það er American Field
Service sem boðið hefur ís-
lenzkum unglingum til dvalar
og námis vestra og þessi hópur,
sem nú orðið telur yfir 70
manns, hefur stofnað félag með
sama heiti hér heima til þess
að greiða fyrir heimsóknum
bandarískra unglinga og þann-
ig að nokkru leyti að endur-
gjalda dvölina vestra.
— Hver er formaður þessa
fólags hér?
— Hann heitir Markús Antonr
son, sá sem talar.
— Og hve gamalil?
— Ég er 19 ára.
— Og hvenær varstu úti?
— I fyrravetur.
— Skemmtilegt?
— Mjög skemmtilegt, fróð-
legt og gagnlegt.
— Og allt frítt, eða bvað?
— Svo má það heita. Amer-
ican Field Service eru áhuga-
mannasamtök, í rauninni upp-
runnin á vígvellinum í Evrópu
í fyrri heimsstyrjöldinni. Þetta
woru sjálfboðasveitir hjúkrun
armana. Að ófriðnum loknum
þótti þeim leitt að þurfa að
leysa upp samtökin og tóku þá
að sér þetta verkefni — að
greiða fyrir gagnkvæmum heirn
sóknum bandarískra og er-
lendra unglinga, stuðla að aukn
um aliþjóðlegum samskiptum
og gagnkvæmum skilningi. í
Bandaríkjunum dveljast nú ár
lega á vegum samtakanna yfir
tvö þús. unglingar frá rúml.
50 löndum. í vetur eru þar 17
íslendingar, sem dveljast á
einkaheimilum og ganga í skóia
með jafnöldrum. Þeir greiða
ekkert fyrir húsnæði og fæði,
nemendasjóður í viðkomandi
skóla annast öll útgjöld útlendu
gestanna í skólanum, þ.e.a.s.
vegna bókakaupa, námsgjalda,
máltíða í skólanum o.s.frv. Og
í lok skólavistarinnar býður
stofnunin í bilferð um Banda-
ríkin. Það eina, sem gesturinn
þarf að greiða sjálfur, er far-
gjaldið til og frá Bandaríkjun-
um.
— Og svo fáið þið banda-
ríska unglinga hingað í sumar?
— Já, hér vom tveir í fyrra,
dvöldust á einkaheimilum, ferð
uðust mikið um landið — og
ég held að heimsóknin hafi
heppnazt mjög sæmilega. Nú
viljum við fjölga gestunum og
við auglýsum einmitt til þess
að láta vita af þessu. Okkur
langar nefnilega til þess að
reyna að víkka hringinn —
eitthvað út fyrir fjölskyidur
okkar, sem þegið höfum Am-
eríkuboðin. Ég efast ekki um
að margar fjölskyldur mundu
vilja bjóða unglingunum að
dvelja hjá sér þá tvo mánuði,
sem þeir verða hér, þ.e.a.s. —■
þeir verða ekki saman á heim-
ili, heldur einn á hverju. Ekki
er ætlazt til þess að viðkom-
andi fjölskyldur ferðist með
unglingunum um þvert og endi
langt landið, því þá kemur tid
kasta okkar félags. Við ætlum
að reyna að gera allt til þess
að dvölin hér megi verða gest-
unum sem ánaegjulegust, skipt-
ast á um að vera með þeim,
ferðast og sýna þeim það at-
hyglisverðasta — auðvitað með
samkomulagi við fjölskyldurn
ar, sem taka gestina að sér.
— Engin sérstök skilyrði eða
reglur?
— Jú, fyrst og fremst, að ein
hver fjölskyldumeðiima tali
ensku. í öðru lagi þykir heppi-
legra, ef viðkomandi hjón eiga
fjölda, sem árlega sækir um.
Þannig er það líka hér. Færri
komast en vildu. íslenzk-am-
eriska félagið hafði áður milli-
göngu í þessum málum og var
fulltrúi AFS hér, en nú hefur
okkar nýstofnaða félag tekið
þetta að sér, í samráði við ís-
barn eða börn á aldrinum 16—
20 ára. Hins vegar er það í
reglum stofnunarinnar, að hús
mæður, sem taka að sér ungl-
inga, sem ferðast með milli-
göngu AFS, verða að hafa alið
upp ungling á þessum sama
aldri. Þetta gildir bæði um
bandarískar fjölskyldur, sem
taka á móti útlendingum ag
fjölskyldur utan Bandaríkj-
anna, sem taka á móti ungling
um þaðan. Nýgift hjón, eða
barnlaus, koma sem sagt ekki
til greina. Kjarninn er sem
sagt, að húsmóðirin hafi áður
þekkt ung'ling á sama aldurs-
skeiði.
— Og þykir það eftirsóknar-
vert ytra að komast í þessar
utanlandsferðir?
— Mjög eftirsóknarvert. Að-
eins örfáir komast af þeim
lenzk-ameríska félagið. Við aug
lýsum umsóknarfrestinn, kynn-
um málið og veitum allar upp
lýsingar, en stofnunin sjólf vel
ur svo úr umsóknum og getum
við ekki haft nein áhrif þar á.
— Þið hafið þá nóg að gera?.
— Já, þetta er snúningasamt.
— Jæja, því miður getum við
ekki tekið auglýsinguna. Þið
getið ekki komið henni í blað-
ið fyrr en á þriðjudaginn og
samkvæmt því sem ég bezt
veit verður hún að hafa borizt
auglýsingaskrifstofunni fyrir
hádegi á mánudag.
— Maður verður þá að reyna
að fara niður eftir á mánudagis
morguninn.
— Já, það er ekki um annað
að ræða.
— Jæja, takk fyrir.
— Jú, ekkert að þakka.
- SIGGI SIXPENSARI -
Mér finnst nú stundum, að þú ættir að spyrja mlg, hvort
ég vilji .... þú tekur það alltaf sem sjálfsagðan hlut,
Siggil
10 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
2. tölublað 1963