Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1963, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1963, Blaðsíða 5
AÞOS heimkynni Þúsund ára þagnarinnar r wSSiíí . Eldri munkar í „kapítalistaklaustrum" bafa yngri munka í þjónustu sinni. Aþos — Grikkir kalla það líka Agíon Óros sem útleggst Helgafell — hvað er það? Það er bæði fjall, skagi, ríki, hugsjón — og kannski eitthvað fleira. Hugsjónin er í því fólgin að afneita hinum kvenlega þætti tilverunnar og útiloka hann eftir föngum úr mannlíf- inu —• eða réttara sagt munklífinu. Til að hrinda hugsjóninni í fram- kvæmd var stofnað ríki fyrir réttur. þúsund árum, og inn í þetta ríki hef- ur engin kona stigið fæti og yfirleitt engar þær skepnur af kvenkyni sem mannlegur máttur gat bægt frá að rjúfa friðhelgi staðarins. Þetta sérkennilega ríki liggur á ekaga nokkrum rúma hundrað kíló- metra fyrir suðvestan Salóníki (Þessa- lóníku), einum þeirra þriggja sen> skaga eins og fingur út í Eyjahaf. Skagi þessi er 50 kílómetra langur og kring- um 8 kílómetra breiður víðast hvar. Eftir honum endilöngum iiggur lágui fjallgarður, 3-600 metra hár, sem endal í tígulegu, strýtumynduðu fjalli, 2000 metra háu — hinu eiginlega Aþos-fjalli), Helgafelli þeirra Grikkja. Á þessum fjöllótta og gróðursæla skaga standa á víð og dreif í hlíðum fjallgarðsins og niðri á ströndinni 20 etór klaustur, sem tilsýndar eru eins og rammgerir kastalar, enda voru þau einatt varin fyrir árásum sjóræningja og annarra ókristinna eða illa siðaðra guð- lastara. Þessi 20 klaustur eru hinir eig- inlegu „eigendur“ ríkisins og hafa sam- Einsetumaður vlnnur vlð myndskurð og hefur hauskúpn fyrirrennara síns hjá t>ér til aff minna sig á fallvaltleik lífsins. vinnu um stjórn þess. Höfuðborgin er lítið þorp, Karíes, nálægt miðbiki skag- ans, og þar sitja fulltrúar frá öllum klaustrunum og annast daglegan stjórn- arrekstur. Fjórir þeirra fara með fram- kvæmdavald í senn og hafa þeir til marks um það stimpil einn fjórskiptan, og hefur hver þeirra sinn fjórðunginn, þannig að engin skjöl verða afgreidd nema þeir séu allir viðstaddir sam- tímis. Þegar ég kom til Karíes fyrir ’úmum ellefu árum að fá skilríki mín .impluð, varð ég að gera svo vel og bíða góða stund meðan leit var gerð að einum fjórmenninganna, en þá var að vísu sunnudagur og hann hefur sjálfsagt haft lögmætum störfum að sinna annars staðar. Eins og ég sagði sitja 20 munkar á þingi Aþos-ríkis, og svarar það til eins þingmanns á hverja 100 íbúa, sem má teljast bærilegt þegar þess er gætt, að vandamálin geta ekki verið ýkja- roörg eða vandleyst, úr því ekki fyrir- finnst ein einasta kona í öllu ríkinu. Ráðherrarnir fjórir gera víst allt sem gera þarf með þessum eina stimpli, svo ekki er skriffinnskunni fyrir að fara hjá þeim á Aþos. En einhvern tíma hefur verið meira að gera en nú. Fyrir eina tið voru nefnilega íbúar Aþos-ríkis yf- ir 10.000, enda stóð þá allt með miklum blóma. Á síðustu öld hx-apaði munka- fjöldinn niður í þúsund, og var þá spáð endalokum ríkisins, en þetta lagaðist og þeir voru komnir upp í ein sex eða sjö þúsund upp úr fyrri heimsstyrjöld en síðan hefur hallað undan fæti, unz nú er þar komið, að einar 2000 sálir eru eftir, og enn er spáð endalokum ríkisins innan hundrað ára. En hver veit nema Eyjólfur hressist? Að minnsta kosti eitthvað af honum, en ekki er líklegt að rússneski parturinn hjarni við, því frá Rússlandi koma ekki fram- ar murikar og hafa ekki gert í háa herr- ans tíð. Rússneska klaustrið á Aþos var á sínum tíma stærsta klaustrið með 2000 munka, en nú eru bara eftir 40, og þeir allir fjörgamlir. Fyrir ellefu árum gisti ég þar, og þá voru munkarn- ir 107 talsins, svo það hefur saxazt á þá síðustu árin. Auk þeirra 20 höfuðklaustra, sem fyrr voru nefnd, eru svo „hjáleigur" þeirra, sem ýmist eru lítil munkaþorp með dreifðum húsum, minni klaustur eða einsetumannakofar. Klaustrin á Aþos eru öll grísk-orþódox og flest þeirra grísk að þjóðemi, en svo eru þar líka rússneskt klaustur, serbneskt, búlgarskt og rúmenskt. Um það em áhöld hvenær munk- lífi hafi fyrir alvöru byrjað á Hélgafelli, en heimildir eru um munka þar á 9. öld, einsetumenn sem höfðust við í hellum, i þann mund sem Ingólfur Arn- arson kom út til Íslands með föru- neyti sitt. Árið 875 var munkunum op- inberlega veittur eignarréttur yfir skag- anum af keisaranum í Miklagarði og smám saman komst líf þeirra f fastari skorður, unz þar kom að heilagur Aþan- asíos reisti fyrsta klaustrið á Aþos ár- ið 963 og.nefndi það Lavra. Er venja að telja aidur sjálfs munkaríkisins frá þeim tíma. Aþanasíos var vildarvinur Munkar kvaddir U1 tíðagerðar með málmstöng sem lamin er með trébúti. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5 34. tölublað 1963.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.