Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1965, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 04.04.1965, Side 13
v5tkjur <xf UR EDDU 5AIORRfl*5RJRLUSONflR JSLy C Oö/A/W SfífOi'AT A»4R Vat /VflA/v i/£pj/i F'i/un. HoFOl S>HU, fíT ENCl HEHIi SXfíL VEHA JAfNd’OOa í JÖTt/A//V£/AK//1. \'í'/ ^o- S/ |V\ . svn sen tsKAat saaoi /*<U, AT ÞORA \SAR FAWHN í AvstvRvea at oekja irol^ kn’óoinn REIO SUIP/JI T JÖWNHElrAA.... tiMNCtJIA SECIR' at sa er cópr HZsm,Eu HAFfí LÉ2K HAUN nvuou MIK.LV STÓR - FETAOAA HEST. S'A HctTtfí QOLLPAU. Hrvngnm varo /íeioa oie jJlevpr vpp’a HEST S/HH OK HLEiPIP EPTS/l HOHúM OVC Hi«A AT LAvrJA HOfJVM OPRn*.Ll. upidómur minn. Svo mun hann slitinn vera sem dúikurinn." að kom fljótt fram, og upp frá í>ví átti hann við að búa andúð og ó-frið, hrEkninigar o-g hörmungar. „Árum sam- an var honum meinað að sitja á bisku-ps stóli sínum. Stundum dvaldi hann er- lendis í no-kkurskonar útlegð, stundunri sat hann sem gustukamaður hjá ein- hverjum vinveittum hö-fðingja í öðriun landshluta, og stundum fór hann um landið eins o-g flakkari og beiningamað- ur og átti hvergi höifði sínu að að halla.“ (Ól. Lár.) Um þetta sagði hann sjálfur í varnarræðu sinni er hann kom á fund erkibisfeups: „Nú er þetta fyrst undirrót ófriðar þo,3a, sem nú er fram komið, að ég vildi eigi það til vinna friðar mér að láta ólærða höfðingja stjóma guðskristni, þeirri er mér var á hendi fólgin af guði og góðum rnönnum. En um bardaga þá er ég varð við staddur, þá var mér það óf álfráðlegt, þótt höfðingjar dragi her að mér, hvar sem flý undan ófriði þeirra í útsker eða óbyiggðir eða afdali eða í þau öræfi og útlegðir, er engir kristnir menn máttu vera fyrir allskyns óvætt- um og trölla yfirgangi. Og svo má sann leTa segja, að engi öræfi eða útsker sé s\(o ill á fslandi, að ég hafi eigi kom- ið eða í verið og þeir vesalingar, sem moð mér vildu vera í útle-gðum“. Guðmundur bisfeup er einhver sá msrkilegasti maður, sem um getur í sögu íslands, en hefir aldrei verið rétt metinn. Hann var átrúnaðargoð vina sinna, og var í þeim hópi eigi aðeins ves all flöfekulýður og „guðsölmusur", heldur einnig margir hinir hraustustu drengir, sem fórnuðu fremd og metorðuim fyrir það að fá að lifa og deyja með honum. A hinn bóiginn hötuðu margir höfðingjar og stórbokkar hann, rægðu hann og of- sóttu á alla lund. Það var vegna þess, að hann vildi rsökja feöllun sína sem biskup og vera trúr lærisveinn Krists. Hann var vinur og faðir allra smælingja, en vægði aldrei fyrir stórbokkum og eteigurlgetismönnum, enda þótt hann Vissi að fyrir það yrði kosti hans þröngv að meira en nokkurs annars manns. Alls staðar og altaf vildi hann láta gott af sér leiða og fyrir það hlaut hann auk- nefnið „hinn góði“, en slík nafnbót gat þá engum hlotnast nema þeim, sem bar langt af öðrum í góðum siðurn. Hér er efeki staður til þess að rekja nema einn þátt úr sögu hins merka manns, að hann fór um allt land- ið „blessandi og vígjandi mönnunum til lífs o-g sálarheilla, og reyndi að skapa helgi alls staðar, þar sem hann k/3m“ (Ó. L.). Það er sagan um vígslur hans og þó einkum vatnsvígslur. Amgríimur ábóti segir í sögu hans: „Meira en um sinn umkringdi hann landið nálega með vatnsvígslum og heilsugjöfum, svo að fjöigurra vegna fluttist í allar áttir lands ins sú blessan guðs, er fylgdi hans bæn- arorðum. Þar sem eigi voru fagrir brunnar vígði hann rennandi vötn eða vöð mönnurn til farsældar". Þessu vígða vatni hans er talið það til gildis, að það sé heilnæmt og gott til læfcninga, slökkvi el-d hverju vatni betur og hafi marga aðra kynjakrafta. Og betra þótti vatn hans en annað vígt vatn eins og fram kom þegar María mey vitraðist konu norður í Flatey og ráðlagði henni að sækja vatn Guðmundar góða til lækn inga, „því að mér þykir hann bezt vígja vatnið“. f Jarteinasögum hans segir: „Hann vígði manga brunna er hann fór um sýslu sína, og urðu þar mikil tákn af því síðan, meðan menn höfðu trú til að njóta með guðs miskunn.“ En þessar vígslur hans urðu óvildar- mönnum hans að ásteytingarsteini og kærðu þeir u,m þær til erkibisbups. Var það vegna þess, að um þær mundir við- urkenndi rómvenks-kaþólska kirkjan ekld vígslu rennandi vatns og mætti ekki vigja þá hluti, sem ekki yrði hönd á fest og borist gátu eftir vígsluna þang- að sem þeir vanlhelguð'ust. Þar til var _ talið rennandi vatn. Þegar Guðmundur biskup kom svo á fund erkibiskups og átti að bei-a hönd fyrir höfuð sér, þá mælti hann meðal annars: „Nú þó að óvinir mínir kalli vígslur mínar öngu neytar, þá veit ég þó, að guði þykir eigi svo, og mér þykir mörgum gagn að yfirsöngvum mínum verða, og svo þykir þeim, sem guð vill að verði.“ Hann benti og á það, að áln Jórdan hefði helgast af því að Kristur var þar skírður, eigi aðeins staðurinn þar sem skírnin fór fram, heldur áin öll frá upptöfeum til ósa og væri enn tal- in helg. Benti hann og á ýmislegt fleira, en að vamarræðu hans lokinni mælti erkibiskup: „Svo miklar og fáheyrðar eru þiínar greinir, bróðir, að þess vænti ég, að guð reiðist þér eigi fyrir þina trú og meðferð um vígslur þínar og yfir- söngva manna og fénaðar. Mun ég að síður ónýta vígslur þínar og yfirsöngva, að ég vil bæði biðja þig og bjóða þér, að þú haldir bænum fyrir mér til guðs, meðan þú lifir, bróðir, því að mér þykir sem guði lífei vel þín aðferð og sælli Maríu guðs móður og öllum helgum. Nú viti það allir góðir menn að svo hinir, að ég banna eigi, heldur vil ég leyfa þínar vígslur og yfirsöngva, bæði mönn- um og fénaði og öllum vötnum og öllu því, er þú veitir miskunn í guðs hlýðni og fulltingi til hjálpar mönnum og fé- naði.“ Svo kvað Ámi ábóti Jónsson í Guð- mundardrápu: • Tákn frægðust fyrir vötn er vígði vélrýrir og söngva dýra, gagn sem heilsa greiddist brögnum, grand firðist og vælar fjanda; sjatna mein en búfé batnar, boginn réttist en hrjúfir sléttast, slokknar eldur en verkir vikna, veitist sýn en dauði týnist. Hverr finnst nú, sá er heyrði fyrri, hringlestir, að af einum presti þvílík tá'kn sé ritin og reiknuð rétt fáganda valdar stéttir? Sannast var það, er allir unnu íma hljóðs á nefndum tírna íslenzkir menn eyðirunni ágætum að vizku mætir. uðmundur biskup andaðist á Hól um 16. marz 1237. Sá dagur er enn meissudagur hans í almanakinu og heitir Gvenidardagur. Alþýða manna taldi bisk up sannheilagan, en ekfei fékfest hann tekinn í tölu dýrlinga, fremur en aðrir íslenzkir menn, þótt reynt væri að fá páfa til þesis. En samt sem áður var hann helgur maður í augum íslenzkrar alþýðu fram yfir siðaskipti, og átrúnað- ur á vígslur hans, bjargvígslur og vatns vigslur, hefir haldist sums staðar fram að þessu. Munu þess finnast dæmi að „Guðmundarvatn“ hefir verið haft til lækninga með góðum árangri allt fram á þessa öld. í Homstrendingabók segir Þórleifur Bjarnason frá bónda er Guðmundur hét og átti heima norður þar um 1870. Hann var um margt forn í háttum og helt tryggð við Guðmund góða og áleit hann verndardýrling sinn. Þegar hann nefndi nafn verndardýrlings síns var hann van- ur að taka ofan höfuðfat sitt, og messu- dag hans kallaði hann aldrei annað en burðardag Guðmundar góða. Að morgni þess dags var sagt að hann hefði ætíð gengið berhöfðaður þrisvar sinnum í kringum bæinn, þyljandi bænir og biðj- andi vemdardýrling sinn um gæzlu á sér og heimili sínu frá öllu fári. Vinnu- pilti sem hjé honum var, varð það einu sinni á að nefna Gvendardag. Refsaði bóndi honum harðlega fyrir það og sagði að það gæti leitt ógæfu yfir heimili sitt, væri nafn Guðmundar góða óvirt. II kJ m allt eru Gvendarbmnnar, vatnsból og lindir sem Guðmundur bisk- up vigði. En okkar Gvendarbrunnar ern þó mestir og beztir. Vatnið í þeim hefir enn í sér kraft, er vígslan veitti þvi. Forn ákvæði haldast víða hér á landi og hví skyldu þá ekki hin góðu ákvæði Guðmundar biskups haldast, eins og þau eru talin í vísu Árna ábóta? Og tvennt er það þó einkum sem skiftir miklu máli fyrir Reykvíkinga. Annað er það, að þetta vatn er heilagt og þvi hin bezta heilsulind fyrir borgarbúa. Hitt er, að það er óbrigðult til þess að slökkva eld, og mundi eigi til þess vera að rekja það, hversu giftusamlega tekist hefir að ráða við eldsvoða hér í bæ? Reykvíkingar eiga Guðmundi góða mikið að þakka, og þeim bæri siðferði- leg skylda til að halda upp á Gvendar- dag, efcki síður en karlinum norður á Hornströndum. 13. tbl. 1965. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.