Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Síða 8
Roherf Mvirphy Er konungur heim S. lest dýr eiga sér eitthvert svæði, sem þau geta kallað heimkynni sitt. Staerð þess fer eftir þörfum dýrsins, og þau eru ófús að yfirgefa þetta svæði, vegna þess, að þar vita þau, hvar fæðu er að finna og hvar bezt fer um þau á hinum ýmsu árstíðum, og hvernig bezt er að bjarga sér innan endimarka þess. Sum þeirra eiga sér tvö svæði og flytj- ast milli þeirra eftir árstíðum, en víkja sjaldnast langt frá leið sinni. Meðal eftirtektarverðustu dýra, sem ekki hlíta þessari reglu, er hvítabjörn- inn. Þetta stóra, hvita dýr, sem villir á sér heimildir með góðlegu útliti, þar sem hann bröltir innan um félaga sína í dýragarði, virðist ekki eiga sér neitt heimili — eða kannski mætti líka segja, að hann eigi víðáttumesta heimkynni atlra dýra. Hann er ekki bund- inn við neinn sérstakan stað heldur dvelur aðeins innan heim- skautsbaugsins og kannski 800 míiurn sunnar, hvar sem brún íss eða lands liggur að sjó, því að þar er uppá- haldsveiðisvæði hans. Hann er fremur sjódýr en landdýr, afburðafær til sunds og köfunar, og líður bezt í sjónum. Hann hefur sézt syndandi og buslandi, eins Iangt frá landi og augað eygir, eða standandi á rekandi ísjaka 200 mílur frá landi, án þess að virðast neitt hirða um ákvörðunarstað sinn. I. að er einmitt þessi ferðaþrá, sem getur vel orðið hvítabirninum að ald- urtila, en nú fækkar honum svo ört, að Stewart L. TJdall innanríkisráð- herra Bandaríkjanna hefur sett hann á skrá yfir þau dýr, sem hætta sé á, að deyi út bráðlega. Ástæð- an er sú, að þetta stóra svæði, sem hann flakkar yfir, hefur gert það næstum óhugsandi að takmarka þá tölu dýra, sem veiðimenn verða að bana, einkum þó í Alaska, þar sem ásóknin í þessar veiðar hefur verið sérstaklega mikil. Meðan veiðimennirnir urðu að ferðast á hundasleðum eða bátum, var svæðið, sem þeir komust yfir, tiltölulega tak- markað, en þessu hafa léttu flugvélarn- ar breytt. Og ástandið er orðið svo mik- ið áhyggjuefni, bæði Udali ráðherra og E.L. Bartlett demókrata-öldungadeild- armanni frá Alaska, að þeir eru nú að reyna að koma á alþjóðasamningi, þar sem bannaðar séu veiðar úr flugvélum hivar sem er á hnettinum. Fallinn konungur ö ú var tíðin, að hvítabjörninn jnrrfti ekki að hafa miklar áhyggjur af óvinum sínum. Svæðið hans var svo geysi-víðlent og svo strjálbyggt, að ef svo vildi til, að hann hitti Eskimóa með spjót og grimma hunda, stóð hann oftast íyrir sínu og vel það. Hann var klók- ur, sterkur og grimmur í bardaga, vel varinn af margra þumlunga þykkum feldi, vatnsheldri undirhúð og sterku skinni, og svo var hann furðulega fim- ur, þrátt fyrir kiunnalegan vöxt. Sá Eakimói, sem lenti í brýnu við hann, mátti teljast heppinn, ef hann s/lapp frá henni með dauðan björn, sjál/Pan sig óskaddaðan og alla hundana sína liif- andi. En að frátöldum svona smá-atvikum ÍSSfS ríkti hvítabjörninn að mestu leyti í sín- um heimi, en svo komu breyttir tímar; landkönnuðir og hvalveiðimenn með riffla komust inn í riki konungsins og á eftir komu svo loðskinnasalar. Hver sá, sem hafði riffil, skaut á björninn, hvort sem hann þarfnaðist hans eða ekki, því að hann var stórt og spennandi skot- mark. Eskimóarnir fengu riffla, og valdahlutföllin röskuðust. Hinn stóri feldur bjarnarins, sem gat verið svo glæsilegt sigurmerki eða skrautleg gólf- ábreiða, tók að koma fram hjá loð- skinnasölum, og um aldamótin voru 150 feldir sendir út úr Kanada á ári hverju. Líklega hefur sú tala ekki hækkað síðan og kann meira að segja að hafa lækkað, því að norðvestursvæðin eru nú lokuð fyrir hvítum mönnum og að- eins Eskimóar mega veiða þar. Þeir éta birnina, að undantekinni lifrinni, sem er svo bætiefnarík, að hún er eitruð — eða gefa þá hundunum sínum. Skinn- in voru áður notuð 1 vetlinga eða bræk- ur, en eru nú seld, þar sem þau eru of verðmæt til að nota þau til fatnaðar. Fyrir nokkru.m árum var hægt að fá bjarndýrsfeld óverkaðan með tækifæris verði fyrir eina 50 dali á stöðvunum norður við Hudsonflóa, en núverandi verð á bjarnarfeldi í New York er um 700 dalir. Minjagripaveiði er engu vinsælli hjá Eskimóunum en hið gegndarlausa vís- undadráp var hjá Ind'íánunum í Amer- iku, heldur var það óþarfaeyðsla á skepnu, sem var talin nytjadýr. Mikill bjarndýrafjöldi K. kodiakinn, eða brúni björninn í Alaska, er almennt talinn stærsta fer- fætt kjötæta í heimi og karldýrin geta komizt upp í 1500 pund, eða þar um bil, en þó fara sagnir af hvítabjörnum, sem ná sömu stærð. Þetta voru risarnir í kynstofninum, því að meðallþungi karl- dýra er 900-1000 pund, en kvendýra 200 pundum minni. Þetta er allstór björn, noklcru þyngri en sá grái og þrisvar sinn um þyngri en svartur björn, í dýragörðum hafa þeir lifað 30 ár eða meira, og enda þótt þeir fari venju- lega einförum villtir, geta þeir fangnir vanizt á að leika sér saman, fljúgast á og þreyta langa eltingaleiki. Þeir geta alltaf verið hættulegir, og óvarkárt fólk hefur stundum orðið fyrir barð- inu á þeim og látið lífið. Þeir eru skyn- samir, kænir og þolinmóðir, og eru fljót ir að nota tækifærið að ráðast að þeim, sem eru að skoða þá. Margir veiðimenn hafa lent í átökum við þá og beðið lægra hlut og stundum orðið sínum eig- in veiðidýrum að æti, og margur Eski- mói, sem hefur verið að vakta loftvöik í ísnum, til að ná í sel, hefur lokið vakt sinni í klónum á hungruðum birni. Hvítabjörninn var ólíkur frændum sín- um að því leyti, að hálsinn á honum er langur og mjór. Þegar hann rís upp á afturfótunum og teygir úr hálsinum, til þess að svipast um, er tiýnið 10 fet frá jörðu. Hvítabjörn getur gengið hratt og hljóðlaust eins og köttur og er álíka fimur og getur hæglega haft við manni á hlaupum á jafnsléttu og farið langt fram úr honum á grjóti og ísihröngli. Heyrn bjarnarins er ekki sérlega góð, þar eð hann eyðir mestallri ævi sinni innan um brakandi ís og hávaðasaman sjó, og því hefur hann litla möguleika á að elta bráð sína eftir heyrn. En hin skilningarvitin bæta þetta upp. Sjónin er mjög skörp, og hann hefur himnur i augunum til að sía sterka sólargeisl- an eða snjóbirtuna — og þefvísin ec með afbrigðum. Margir ferðamenn hafa skýrt frá því, að þeir hafi séð birni samansafnaða kringum hræ af sjórekn- um hvölum, eftir að hafa þefað þau uppi langt að. vs iði manns ins E nda þótt hvítabjörninn eigi erf- itt í hörðum heimi, á. ’hann líka sínar skemmtilegu stundir. Dr. E. Kent Kane, vísindamaðurinn og heimskautakönnuð- urinn, sem hefur oft hitt birni á árun- um eftir 1950, þegar skipið hans lá inni- frosið í tvö ár, segir frá hvítabjarna- veizlu. Birnirnir brutust inn í birgða- geymslu, köstuðu 80 punda kjötdeigs- kössum milli sín eins og fótboltum, möl- brutu járnbentan áfengiskassa, veitu brauðtunnum um á isnum, hnýttu ótal hnúta á gúmmídúk, og renndu sér síð- an á rassinum niður eftir ísnum í halla, rétt eins og krakkar, sem hafa brotizt inn í búrið heima hjá sér með góðum árangri. í þessari gleðiveizlu sinni virtust þeir sérstaklega hrifnir af möluðu kaffi, gömlum segldúk og flagginu, sem blakti uppi yfir birgðastöðinni. E-n á al- varlegri stundum geta þeir étið gras, rætur og ber á surnrin, egg frá fuglum, sem liggja á, sjórekin hræ og hvað sem þeir geta klófest. En aðalfæða hvítabjarnarins er samt selurinn. Þær skepnur koma upp á ís- inn til að sofa eða sóla sig, við röndina á jaka, eða við vök, sem þær koma upp um til að anda. Þegar björninn hef- ur fest auga á selnum, grúfir hann sig niður, hefur hrammana undir sér, en ýtir sér áfram með afturlöppunum, hægt og hægt, en stanzar ef hinn hreyfir sig eitthvað, til að líta kringum sig. E!f björninn getur komizt nógu nærri bráð sinni, getur eitt stökk fært honum mál- tíðina í einu snarkasti. Sjái hann selinn af sundi, getur hann kafað undir jak- ann og komið svo upp um vökina, en áður lemur hann undir jakann, og gríp- ur svo selinn, sem verður hræddur o-g stingur sér í vökina. En margir selir eru of varkárir fyrir björninn, og ef hann er nógu hungraður, getur hann jafnvel lagt út í bardaga við rostungahóp, sem sefur á ísnum. Þeir eru þrisvar sinnum stærri en hann og vígtennurnar í þeim geta ráðið örlög- um bjarnarins í skjótri svipan, en þarna kann líka að vera ungi. Þá nálgast björn inn, að mestu í kafi, en aðeins nasirnar og augun upp úr, og sér marga unga, sem sofa hjá hrjótandi mæðrum sínutru Hann lætur sig reka að ísröndinni, þeys- ist síðan upp og grípur þennan stóra unga og reynir að draga hann nógu langt frá sjónum, þangað sem fullorðnu rostungunum er erfitt að elta hann. Hann kann að sleppa vel frá þessu en varla fer hjá því, að allt komist strax í háaloft. Þegar kálfurinn veinar af sárs auka og hræðslu, þýtur móðirin á eftir árásaraðilanum og allur hópurinn kemst í uppnám. Ef björninn er heppinn get- ur hann náð kálfinum út fyrir seilingu mæðranna, en ef ekki — ef hópurinn nær í hann, eða ísinn brotnar, svo ai5 allt fari í sjóinn — verður hann a3 forða sér sem allra fljótast og á land, því að í sjónum er rostungurinn filjót- ari í förum, þrátt fyrir líkamsstærð sína, Til er saga, sem vel gæti verið sönn, um aðra aðferð bjarnarins við rostung- ana. Húðin á rostungnum er of þyk'k jafnvel fyrir klærnar á birninum og tennurnar, og því grípur björninn ís- 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 16. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.