Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 02.05.1965, Side 12
ÁRNI ÓLA Framhald af bls. 1. urinn, sem þessir sömu menn létu ryðja upp að vörðunni, hefir aldrei verið kail- aður annað en Skólavörðustígur. Þessi stígur telst með elztu götum í borginni, og hann á tilveru sína Kri- eger að þakka, eins og sjá má á því sem hér hefir verið frá sagt. U m þessar mundir var engin bæ- arstjórn í Reykjavík, heldur var fjall- að um öll meiri háttar bæarmál á svo- bölluðum borgarafundum og þar teknar áikvarðanir. Árið eftir að Skólavarðan var endurreist (1835) var samþykkt á borgarafundi, að bærinn skyldi taka að sér viðhald vörðunnar og vegarins þang að. Þetta kostaði auðvitað talsvert fé, en bærinn átti ekkert fé aflögu. Þess vegna var samiþykkt á þessum borgara- fundi, að hver borgari eða húseigandi í bænum skyldi leggja fram eitt dags- verk vor og haust, til þess að sjá um viðhaldið. Og svo segja menn að þegn- skylduvinna hafi aldrei verið á íslandi! Þegnskylduvinn hafði verið hér í Reykjavík frá upphafi og helst lengi, því á annan hátt var ekki hægt að halda við götum, brúnni á læfcnum og vegar- spottanum yfir Arnarhólstún, né heldur að hreinsa lækinn. Skólavörðustígurinn byrjaði hjá Mið- býli (Skaftabæ), sem stóð um það bil sem nú er Bankastræti 14. Eftir að bær- inn tók veginn að sér, var svo ákveðið, að þetta skyldi aðeins vera skemmti- göngubraut fyrri bæarbúa, og þess vegna var harðbannað að fara með hesta um hana. Þessi ákvörðun mun þó að- allega hafa verið tekin í því augnamiði að spara sem mest viðhald vegarins. Þessu banni var því stranglega fram- fylgt næstu árin. Því var það, þá er Jörgen Guðmundsson, tengdasonur Skafta Skaftasonar læknis í Miðbýií, hafði fengið leyfi til þess að reisa lítið steihhús norðan vegarins og hærra í Iholtinu, þá lenti hann í stökustu vand- ræðum að koma byggingarefninu á stað inn. Grjót hafði hann tekið í holtinu sunnan vegarins og höggvið það þar og ætlaði svo að draga það heim á hesti. En til þess þurfti hann að fara yfir skemmtibrautina, og ekki var við komandi að hann mætti fara með hest yfir hana. Einhvem veginn rættist þó úr þessu og Jörgen reisti húsið. Það stendur enn á lóð Skólavörðustígs 11 og var iengi kallað Tobbukot, kennt við Þorbjörgu Sveinsdóttur ljósmóður, er keypti húsið og bjó þar lengi. U m 1840 var fyrst farið að tala um skipulagðar vegabœtur í bænum, en ti'l þess að geta framkvæmt þær, var álcveðið að sikylda hvert einasta heimili til þess að leggja fram eitt dagsverk á ári, og enginn vera þar undan skil- inn. Með þeim vinnukrafti, er fengist með þessu móti, var talið að ráðast mætti í þessar framkvæmdir, sem taldar voru mjög aðkallandi: Vegargerð suður á Öskjuhlíð og þaðan niður í Fossvog eins langt og bæarland- ið náði. Vegur að Rauðará og landamerltjum Laugarness. Viðhald Skólavörðustígs. Vegur að Bráðræði og Skildinganesi. Flutningur á Lækjarbrúnni. Allar þessar framkvæmdir drógust nokkuð nema flutningurinn á brúnni. Hann gat ekki beðið, vegna þess að nú var tekinn af vegurinn um Arnar- hólstraðir. Var þá gerð brú á lækinn niður undan Bakarastíg, miklu öflugri en áður var. Fyrsta vegarbótin var sú, að ruddur var vegur frá Bakarastígnum upp að svokölluðum Vegamótum, en þa var sá staður, þar sem Laugarnessvegurinn lá út af Öskjuhlíðarveginum. Voru þessi vegamót um það bil þar sem nú mæt.ast Laugavegur og Klapparstígur. Vegurinn til Laugarness var þá ekki annað en niðurgrafnir götutroðningar yf ir Skuggahverfið að Helgastöðum og þaðan inn að Rauðará. Þar var farið niður í fjöru og eftir henni fyrir tang- ann, en síðan upp á bakkana og inn eftir þeim allt að Fúlutjörn, en þar var aftur beygt niður í fjöru og farið yfir Fúlutjarnarlæ'kinn í ósnum; var hann oft illfær og varð þá að sæta sjáv arföllum. Síðan lá leiðin inn Kirkju- sand að Laugamesi. Þótti þetta yfir- leitt hinn mesti tröllavegur, og fræ.gt er það orðið er Helgi biskup Thordar- sen flýði úr Laugarnesi til bæarins og bar því við að vegurinn þar á milli væri oft ófær. Var því von að mönnum litist lítt á að gera þarna sæmilegan veg, þar sem enn var talið sjálfsagt, að nýir vegir skyldi þræða gömlu hrossagötum- ar. Það átti líka æði langt í land að vegur kæmi frá Reykjavík að Laugar- nesi. Þá kölluðu menn lagða vegi „brýr“ og helzt það býsna lengi í málinu, stor. vísuna sem Þorlákur alþm. í Fífu- hvammi orkti: Þeysti ég yfir Þórarinsbrú, þar hafði eg enga bið, en eg lötraði hægt um Lögmannssikeið því leðjan var upp í kvið. Þórarinsbrú kallaði hann veginn sem ruddur var yfir Hafnarfjarðarhraun á mun hafa kennt hana við Þór- arinn kaupm. Egilson í Hafnarfirði, en annars var það Chr. Zimsen verzlunar- arstjóri, faðir Knuds Zimsens borgar- stjóra, sem var driffjöðrin í þeirri veg- argerð. Þótti hún mjög merkileg á sín- um tíma. Lögmannsskeið mun hafa ver- ið örnefni hjá Kópavogi. E n svo horfið sé aftur til Reykja- víkur og vegabótanna þar, þá var það á árunum 1843-45 að gerður var veg- urinn frá Bakarastíg að Vegamótum „með æmum kostnaði," segir í Þjóðólfi. Þessi vegarspotti átti að verða upphafið að hinum nýa þjóðvegi austur úr bæn- um. Fekk hann þegar nafnið Vegamóta- stígur og hét svo lengi. Nú heitir þarna Laugavegur, en Vegamótastígur heitir enn smágata milli Skólavörðustígs og Laugavegar þar fyrir neðan er svokall- aðir Vegamótabæir voru, en þeir voru þrír á sínum tíma. Þetta nafn er nú eitt til minnis um að á þessum slóðum mættust fyrmm Laugamesvegur og þjóðvegurinn um Öskjuhlíð út á land. Enn líða 20 ár svo, að lítið er aðhafzt í vegamálum Reykjavíkur. Árið 1866 gerast svo tveir stóratburðir: Þá er sett steinbrú á lækinn og ákveðið að framlengja Hlíðarhúsastíg vestur að Ánanaustum. Steinbrúna á lækinn gerði Sverrir Runólfsson steinhöggvari og þótti hún mjög mi-kið og athyglisvert mannvirki. Með framlengingu BQíðarhúsastígs, er síðar fekk nafnið Vesturgata, var ætl- anin sú, að hann kæmi með tímanum beint á Eiðisgranda og yrði framtíðar- vegur vestur á Nes. Þótti því sjálfsagt, vegna þess að um framtíðarveg var að ræða, og búast mátti við mikilli um- ferð um hann, að hann væri hafður breiður, alls ekki mjórri en 7 álnir. Þeg- ar til kastanna kom var hann þó breikk aður upp í 8 álnir, svo að klyfjaðir hest- ar gæti mætzt þar. Vegur þessi lá um tún og var þegar sett trégirðing með honum öllum að sunnanverðú, en norð- an vegarins var ákveðið að útbýta bygg ingarlóðum. Á þessu sama sumri var einnig unn- ið talsvert að því að lagfæra veginn frá Öskjuhlíð að Bústöðum. Þar sem ótræði var mest í holtinu, voru gerðar tvær , brýr“ eða upphleyptir vegarkaflar, ann ar 220 faðma en hinn 70 faðma. Þessar vegabætur munu hafa verið gerðar vegna þess að sýnilegt var, að umferð mundi stóraukast þarna á þessu ári. Var það bæði vegna þess, að Eyrar- bakkaverzlun hafði engar vörur, svo að bændur neyddust til að sækja verzlun í Reykjavík og Hafnarfjörð. Svo vofði þá líka yfir niðurskurður á fé vegna fjárkláðans, og viðbúið að bændur færi með fé sitt til slátrunar í þessa sömu staöi. Þetta reyndist og rétt, því að aldrei í manna minnum hafði slíkur fólks- straumur verið til Reykjavíkur á haust- kauptíð eins og að þessu sinni. Og dag eftir dag voru reknir hingað stórir fjárrekstrar. Þeir sem mest keyptu þá af fénu voru kaupmennirnir E. Siemsen, W. Fiseher og M. Smith. Þótt svo sé til orða tekið í samtíma heimildum að þessar tvær „brýr“ hafi verið gerðar í holtinu austur af Öskju- hlíð, þá hygg eg að þar gæti dálítillar ónákvæmni. Lengri „brúin“, þessi sem var 220 faðma, mun hafa verið yfir Breiðamýri fyrir neðan Öskjuhlíð, því að þar var ótræði mest. Þennan veg gerði Sverrir Runólfsson, og var þetta með fyrstu vegabótum á þessari leið. egar hér var komið var farið að tala um, að nú væri tími til þess kom- inn að Reykjavík framkvæmdi fyrsta lið vegaáætlimar sinnar 1840, en það var að gera veg suður á Öskjuhlíð. Nú höfðu þegar verið gerðir tveir vegar- spottar á gömlu þjóðleiðinni til bæar- ins, annar þar sem var steinbrúin á læknum, Bakarastígur og Vegamóta- stígur, en hinn „brúin“ í ,3reiðamýri. Á milli þeirra voru illfærir troðningar umhverfis Arnarhólsholt, og fannst sum um sjálfsagt að tengja nú saman þessa vegarspotta. Málið kom fyrir bæar- stjórn, en nú brá svo undarlega við, að sumir vildu ekki þræða gömlu hesta- göturnar, heldur gera veg á öðrum stað. Urðu út af þessu deilur miklar. f bréfi, sem Sigurður Guðmimdsson málari skrifaði Jóni Sigurðssyni forseta, 11. júlí 1868, segir hann svo frá þessu máli: „Mikið var hér í vor þjarkað um hvar ætti að leggja nýan veg inn yf- ir holtið upp úr bænum. Sumir vildu hafa gamla veginn, (aðrir vildu að hann lægi yfir Skólavörðuholtð — Innskot hér) og þriðju þar mitt á milli. Samt varð endirinn, að vegurinn var lagður inn yfir holtið hjá Skólavörðunni, og eru þeir nú að rífast um, hvort eigi að halda honum áfram niður í bæinn. Flest if munu vera á þvi, en þeir Halldór Kr. Friðriksson og Jón Guðmundsson eru mest á móti því, og bera þeir helzt fyr- ir sig, að bæarstjórninni hafi aldrei hugazt að leggja veg á þessum stað“. Þeir Halldór og Jón höfðu nokkuð til síns máls, því að bæarstjórn hafði aldrei ákveðið að leggja veg upp að Skóla- vörðu. Sá vegur sem þangað var kom- inn og hafði verið ruddur í sambandi við smíði Skólavörðunnar varð inn- lyksa hjá bæarstjórn um leið og hún tók að sér viðhald Skólavörðunnar. En bæarstjóm hafði aldrei samþyldtt að þama skyldi vera vagur, og hún undir- strikaði það þegar í upphafi, með því að ákveða að þetta skyldi aðeins vera skemmtigöngustígur fyrir bæarbúa, en ekki alfaravegur. Á hinn bóginn hélt Jón Guðmundsson því fram í Þjóð- ólfi, að vegarstæðið væri í mesta máta óhentugt. Menn yrðu að vera svo bjart- sýnir að trúa því, að bnáðlega kæmi hér hestvagnar, sem mundu létta mik- ið alla flutninga. En þessi vegur yrði svo brattur að hann væri ekki fyrir vagna-umferð. Hann ætti að liggja upp bratta forekku skammt frá Steinkudys og áfram upp á háholtið hjá Skólavörð- unni, en síðan tæki við önnur brött og löng brekka niður í bæinn. Væri veg- urinn því ófær fyrir vagnlhesta hvort heldur farið væri frá bænum eða til bæarins. Hitt hefði verið miklu nær, að leggja veginn meðfram holtinu að austan, þar sem engar mishæðir væri alla leið niður að Vegamótum. Þar hefði komið hinn þægilegasti akvegur, og spá- ir Jón því að augu manna hafi opnazt fyrir þessu áður en 20 ár séu liðin. Ái þetta var ekki hlýtt; hitt þótti meira virði að vegurinn yrði sem bein- astur, við það yrði hann styttri og ódýr- ari. Hverjir reru þar undir má sjá á bréfi frá Sigurði málara til Jóns Sig- urðssonar 26. júlí 1870. Þar segir hann: „Þá höfum við Sverrir komið því til leiðar, að þjóðvegurinn verður lagður þráðbeina línu á Öskjuhlíð frá Skóla- vörðunni, og er búið að leggja nokkuð af honum“. Þarna má sjá hvernig Krieger hafði áhrif á gatnaskipan í Reykjavík löngu eftir að hann var farinn héðan. Skóla- vörðustígurinn, sem aldrei átti að verða umferðargata, er nú gerður að einum kafla af þjóðveginum (alfaraleið) til Reykjavíkur. Og svo sést hér einnig hvernig stóð á hinni merkilegustu veg- argerð hér í bæ, þegar vegur var lagð- ur þvert yfir Skólavörðulholtið þar sem það var hæst, þaðan „þráðbeina línu“ suður að Öskjulhlíð, og síðan þráðbeint upp Öskjuhlíðina þar sem hún var einna hæst og bröttust. Hér skal svo slegjnn botn í þessa frásögn, þar sem Reykjavík hefir feng- ið nýan þjóðveg út úr bænum. ALLIR OG ENGINN Framhald af bls. 4. verur, en í því bar eittbvað fyrir sjón- opin svo hann sá ekki neitt. Þegar hann stillti kíkinn á nálægð sú * nn að þetta voru þeir Enginn og fuglinn, og hann ætlaði varla að trúa sínum eigin aug- um. í fyrsta lagi skildi hann alls ekki hvernig þeim hafði tekist að brjótast út úr J-ammlæstu búrinu, og í öðru lagi undraðist hann þá ofdirfsku fuglsins að fljúga með Engan á bakinu. Allir fór niður til að fullvissa sig um að þeir væru sloppnir. Satt að segja datt honum í hug að um sjónvillu hefði verið að ræða hjá sér, að þeir sætu enn í búrinu og gætu sig ekki hreyft. En þegar hann kom að búrinu var það galtómt, rimlarnir sagaðir sundur og það mátti rekja slóð Einskis frá mat- salnum, því hann hafði misst niður á leiðinni. Ölium fannst nú heldur en ekki hafa verið leikið á sig. Aldrei hefði svona nokkuð ko-mið fyrir forfeður hans. Hann yrði hafður að athlægi í öllu landinu fyrir að hafa látið Engan og fuglinn sleppa, og hann myndi rýrna í áliti hjá skógarbúum. En þó merkilegt megi virðast var All- ir eklti mjög reiður. Innst inni var hann feginn að vera laus vð Engan og fugl- inn, því hann vissi ekki hvað hann hefði átt að gera við þá. Hann gat ekki hugs- að sér að lífláta þá, því hann var of friðsamur til þess og mátti ekki blóð sjá. Að vísu hefði hann getað látið þá dúsa þarna í nokkra daga, en hann var hræddur um að lítill friður hefði orðið í húsinu þegar þeir hefðu farið að skrækja eftir mat og frelsi. Og það var fyrir mestu að láta ekki trufla sig. Allir hugsaði líka með sér að raunar gerði það ekkert til þótt Enginn feldi sig undir borðinu endrum og eins í því skyni að ná sér í bita. Borðið var hvort se.n er búið þeirri náttúru að það hlóð sig alltaf fullt af mat um leið og það tæmdist. Ef til vill væri ekki hægt að losna við hann, og þá varð að taka því. Og Allir hugsaði með sjáHum sér að stundum hefði h-o-num þótt gaman að honum. Enginn gat tekið upp á ýmsu sem vakti kátínu Allra. Eins og til dæmis þegar hann varð svo kenn-dur af víninu, að hann fór að dansa við sjálfan sig úti á gó-lfi og syngja viðkvæma söngva. Þá hafði Öllum vöknað um augu og hann hafði óskað sér að hann gæti líka sungið þanni-g, en það var honum ekki gefið þótt hann væri stærstur og gjörvilegastur íbúa landsins. En En-g- inn var fimur og kunni að stíga dans við ímyndaðar hefðarmeyjar. Hann bjó sjálfur til tónlistina jafnóðum, og hann stjórnaði hinni ímynduðu konunglegu hljómsveit sem skipuð var færustu hljóðtfæ-raleikTirum sem völ var á. En Allir minntist líka þeirra stunda )2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.