Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Blaðsíða 2
Avarpi, og hann fór réttlættur 'heitn. Að þessu starfaði Jesús, og þetta tókst honum með sérstakri starfsaðferð. Með því að þjóna. Vér vitum, að hann sagði: „Manns-sonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til þess að þjóna og til þess a’ð gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga“. (Matt. 20. 23.). Máttarverk framkvæmdi hann, en þau stjórnuðust af sannri meðaumkun og kær leika. Hann gat ekki annað. Neyðina sá hann, og þá varð hann að hjálpa. Mér virðist það ekki vera óskiljanlegt undur, að undur fylgdu honum, sem var hið mesta undur. Með óviðjafnanlegum orðum og verk- um starfaði hann. 33 ára að aldri var hann leiddur til lífláts. I>á var verk hans víst aðeins byrjað. Nei. Hann sagði sjálf- ur: „Það er fullkomnáð“. — Og ég finn að það er satt. Ég finn ekkert ófull- komið hjá honum. Ég hefi kynnt mér lií hans, orð hans og verk. Enga synd sé ég hjá honum, engin svik finn ég í munni hans. Ég sé tign hans og kær- leiksmátt, er hann starfar, og ég sé kær- leika hans, er hann er deyjandi á krossi. Þá sé ég einnig starf hans. Og þegar mennirnir tala um krossinn, hver á sinn hátt, og hver með sínum skýringum, þá langar mig miklu meir til að tilbiðja heldur en að skilja, og ég get gert þessi orð að mínum: „Hærri þótt sé ég huga mínum, held ég mig að krossi þínum“. Þannig talar Bernhard frá Clairvaux um hið mikla kærleiksundur, og hjá þeim, sem hafa séð sigur Jesú Krists, býr enn þessi þrá: „Krans ég vil um kross þinn flétta“. Sænski rithöfundurinn August Strind- berg bað þess, með dauðann fyrir aug- um, að á leiði hans væri settur kross með áletruninni: Ave crux, spes unica. Þ.e. heill þér kross, einasta von. Við krossinn á Golgata sé ég kær- leikann sigra í sinni dýpstu niðurlæg- ingu. En á því getur þú markað gildi kærleikans. EGAR ég kynnist Jesú Kristi í lífi hans og dauða, þá finn ég að ég undirskrifa þessi orð lærisveins hans: „Dauðinn gat ekki haldið honum“. Líf- ið hlaut að sigra. Og þess vegna er ég ekki áð halda lofræðu um látinn mann, heldur vitnisburð um lifandi frelsara. Ég veit, að hann lifir, og það er afleið- ing af starfi hans, af dauða hans og sigri, að hann er við hægri hönd Guðs föður almáttugs. Hver ætti að vera þar annar en hann? Þess vegna tileinka ég mér hið bezta ráð, sem ég þekki; það ráð, sem Páll gaf fangaverðinum í Filippí: „Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt verða hólp- inn‘. (Post. 16. 31.). Þessa trú vil ég kannast við, og vil ekki fyrirverða mig fyrir vitnisburð- inn um hann, þó að ég viti, að sá boð- skapur og sá vitnisburður er enn sem fyrr svo mörgum hneyksli og heimska. Án Jesú Krists get ég ekki verið. Það væri rangt af mér að kannast ekki við hann. Svo mikið hefir hann fyrir mig gert, að það má ekki minna vera en að ég kannist við hann fyrir mönnunum. Hann er í dýrð sinni, en enn í dag þjónar hann mönnunum og bjargar sál þeirra, hann leysir enn úr hinum vanda- mestu spurningum. Hann segir mér, hvernig Guð er, að hann er faðir, sem vakir yfir börnum sínum. Ég þarf ekki að hræðast, mér er bent á fuglana og liljurnar. Ég þarf ekki að hræðast, með- an ég er hér, og ég þarf ekki að hræð- ast, er ég fer héðan. Hjá Jesú fæ ég svarað spurningum mínum viðvíkjandi framhaldi lífsins. Hann hefir sagt mér það, sem mér nægir. Orð hans hafa miklu meira gildi fyrir mig en sannanir mann- anna, og eftir að ég hefi kynnzt honum, þá hefi ég eignazt tryggingu og vissu, og sannist ekkert vísindalega, þá raskast ekki mín trú, og þó að eitt og annað verði vísindalega leitt í ljós, þá breytist 34 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS' ekki samband mítt við Guð, það sam- band er hvorki vísindalegt né óvisinda- legt, það er samband barns við föður. Þetta samband á ég Jesú Kristi að þakka. Það er ekki honum að kenna, þó að ég rjú.fi það. Jesús leysir úr spurningum við víkjandi minni eigin sál, viðvíkjandi mínu siðferðilega lífi, og ég veit, að þessi orð hans eru sönn: „Ef sá er nokkur, sem vill gjöra vilja hans, hann mun komast að raun um, hvort kenningin er frá Guði, eða ég tala af sjálfum mér“. (Jóh. 7. 17.). — Því meir sem vér reynum að gjöra Guðs vilja eftir bend- ingu Jesú, þess sjálfsagðara verður að trúa. Þá er oss ljúft að leyfa Guði að komast að. Hvað er trú? Er það ekki samband við Guð? Er það einungis að trúa, að eitthvað sé svo og svo? Er það ekki að trúa á — treysta honum, sem getur hjálpað, treysta orð- inu, sem segir mér frá Guði, reiða mig á það? Guðs orð er það orð, sem sýnir mér, hvernig Gúð er. Þess vegna er það líka réttnefni, er Jesús er nefndur orðið, af því að hann hefir fyllilega sýnt hugarþel Guðs gagn- vart mér, já, sýnt það í verkinu. Ég treysti Guði. Ég veit, að mér er borgið, hann hjálpar. Ég þarf ekki að vita, hvernig. Ég þarf ekki að mæða mig með ýmsum ónauðsynlegum spurning- um. Ég þarf ekki að vita, hvernig lækn- irinn framkvæmir uppskurðinn. Það er mér nóg, að ég treysti því, áð hann geri það vel. P ERSÓNULEGT samband mílli mín og Guðs er trú. Og hvar fæ ég þetta samband betur en hjá Jesú? „Öllum þeim, sem tóku við honura, gaf hann rétt til að verða Guðs börn“. (Jóh. 1. 12.). Þegar ég tek á móti Jesú, þá nota ég þann rétt, sem mér er ætlaður, — að vera Gúðs barn. Trú er þá einnig þetta — að taka á móti honum. Þannig er að kynnast Jesú. Getur nokkur gleymt honum, ef hann hefir kynnzt honum? Pontus Wikner, sænsk- ur heimspekingur, segir svo: „Þegar ég var á æskuskeiði byggði ég Kristi altari, en ég braut það. En það fer fyrir mér eins og morðingjanum, að hugur minn reikar alltaf kringum morðstaðinn“. Og svo fór, að kynnin voru endurnýjuð og úr varð vinátta. Jesús Kristur hefir það áhrifavald, að það er ekki hægt að gleyma honum. Man ég það, áð Georg Brandes segir frá þvi, að Anatole France láti Pílatus hafa gleymt Jesú; þegar talað er um Jesúm, þá segir Pílatus: „Þessu man ég ekki eftir“. ETTA getur ekki verið rétt sál- arlýsing. Jesús gleymist ekki. Og hváð hefði Pílatus sagt, ef honum hefði verið sagt það, sem sfðar hefir orðið? Frammi fyrir honum stóð fangi, og Pílatus dæmdi hann. En allt til þessa dags er nafn Pontíusar Pílatusar nefnt á hverj- um degi af þúsundum víðsvegar um jörð- ina: „píndur undir Pontíusi Pílatusi". Vegna fangans, sem ekki gleymdist, varð nafn dómarans ódauðlegt. Ég vil ekki gleyma hinum beztu áhrif- um. Allir, ekki sízt hinir ungu, þekkja baráttuna og finna, að alvarlegt er að lifa. Þeir vita margir hvað átt er við, þegar Nietzsche talar um, að það séu trylltir hundar, sem gelti niðri í kjall- aranum hjá mönnunum. Og það er um mikið tjón að ræða, ef þeim er sleppt. — Ég gleymi ekki þessum orðum eins stjórnmálamanns í Bandarikjunum, er hann talar um einn æskuvin sinn, sem var’ð að aumingja, og stjórnmálamaður- inn veit svo vel um orsökina, og segir: „Sin has dðne-it, and I will fight it till I die“. (Synd hefir valdið því, og ég vil berjast á móti henni þangað til ég dey.) — En hvernig barðist hann og berst enn? Fyrir kraft Jesú. Fyrir kraft Jesú vil ég starfa og berj- ast, — hjá honum finn ég spurníngarnar leysast. Trú mín er Kriststrú, og ég vil hylla hann sem konung. Þetta er hið fegursta og bezta, sem ég veit. En því næst er þetta: Menn höndl- aðir af Kristi. Þannig var Páll. Þannig var Frans frá Assisi. Þannig var Hall- grímur Pétursson. Margir kannast við Mynster biskup. Sumardag einn árið 1803 var hann að lesa I bók um heimspeking- inn Spinoza. En meðan hann var a'ð lesa, kom yfir hann friðurinn, sem er æðri öllum skilningi, og fagnandi gat hann sagt: „Ég á Guð og frelsara“. Mörg nöfn er hægt að nefna. Margir eru þeir, sem með gleði hafa játað hinni góðu játningu. Nýlega var ég að lesa ævisögu Jóhannesar Jörgensen, í einum kaflanum talar hann um þá hátíð, er hann, á heilögum stað, á mikilsverðum augnablikum ævinnar, hafði yfir hina kristnu játningu. 25 ár eru liðin, er hann skrifar um þessa stund. En hann segir: „Ég endurtek játninguna í dag og ég vona, að ég fái að endurtaka hana á dánardegi mínum“. Var það ekki eitt hið síðasta orð, sem heyrðist til Lúters, hið skýra „já“, er hann var spurður um, hvort hann héldi fast við játninguna? Ég veit, að ég er ófullkominn og mér fara ekki ætíð vel hin sterku orð. En það segi ég sem mína dýpstu þrá: Jesú er vert að þjóna. í nafni hans vil ég lifa og deyja. Prófessor Höffding lýsir trúnni á þessa leið: „í trúnni finnur hugur mannsms innilega vissu um gildi lífsins, gildi, sem raskast ekki“. í kristindóminum hefi ég fundið gildi lífsins, það afl, sem gefur lífinu hið sanna gildi. Ég hefi fundið það hjá honum, sem kom til þess að þjóna. En þá langar mig til að þjóna. ★ E R þa’ð hægt? Já, — það hvílir sú nauðsyn á þeim sem sjá tign Jesú. Hann segir: „Uppskeran er mikil, en verka- mennirnir fáir; biðjið því herra uppsker- unnar, að hann sendi verkamenn til upp- skeru sinnar“. (Matt. 9, 37. 38.). Eftir þessu breytti hann og kallaði á menn sína. Veglegt hlutverk fékk hann þeim: „Farið og gerið allar þjóðir að inínum lærisveinum“. (Matt. 28. 19.). Þeir fóru. Nú þjónuðu þeir Guði með því að kalla á mennina, já, þá þjónuðu þeir einnig mönnunum. — Þeir tóku þetta í alvöru. Ekkert gat stöðvað vitn- isburðinn. Ekki þrenging, ofsóknir né dauði. Blóð píslarvottanna varð útsæði kirkjunnar. — Þrátt fyrir megna mót- spyrnu gat postuli Drottins sagt: „Guði séu þakkir, sem fer með oss í óslitinni sigurför, þar sem vér rekum erindi Krists“. (2. Kor. 2. 14.). Við þessa sigurför gera margir sínar athugasemdir. Þeir sega: „Ég dáist að Kristi, ég virði hann. En hjá kirkjunni er svo margt ábótavant“. — Þetta er rétt. Hjá Kristi finn ég enga galla. Lítum á sögu Krists. Hann er lýta- laus. — En lítum á sögu kirkjunnar. Þar er ekki eintómt sólskin, þar eru einnig skuggar. Er það undarlegt, þegar vér hugsum um samanburðinn, hinn synd- lausa og hreina — og hina veiku og ófull komnu. Ég þekki ekki fullkomna menn. En ég þekki menn, sem vilja þjóna hinum fullkomna. Meðal þeirra vil ég vera. — Þar líður mér bezt. Það væri rangt af mér að segja annað. En er vér sjáum hið mikla mark, og hin miklu verkefni, þá get ég skilið að bar- átta hefjist í sálinni, og að vér segjum: „Sendu einhvern annan“. — Ég er ekki að skrifta, þó að ég segi, að ég gekk ekki baráttulaust að þessu starfi. Á stúdents- árum mínum las ég allmikið í ritum heimspekingsins Sörens Kierkegaards. Þar var bent á hina miklu ábyrgð. Sören Kierkegaard setur markið hátt, og hiíf- ir ekki mönnunum. Fyrir honum er kristindómurinn ekki skraut né dægra- stytting. Að vera kristinn, — því fylgir barátta, og sá biður tjón á sálu sinni, sem í léttúð gengur að prestsstarfi. — Þetta las ég og margt annað. En mig langaði til að verða prestur. Að vera prestur er að flytja orð frá Guði til mannanna, í nafni æðsta prestsins, sem var orðið. Mig lang aði til að vera prestur. En mig langa’ði til þess að þurfa ekki að verða prestur, af því að allar aðrar leiðir væru bann- aðar. Þetta var mér veitt. ÉS fékk að loknu námi annað starf, en starfaði jafn- framt með æskunnar trú og æskunnar veik'eika í Guðsríki, — sem sjálfboða- liði. Að nokkrum árum liðnum varð ég prestur. Það, sem ég var sannfærður um, langaði mig til að útbreiða hjá öðrum, Og ég vona, að ég hætti aldrei áð vera prestur, hvort sem ég gegni prestsem- bætti eða segi því lausu. Ég vona, að hvaða starf, sem ég tek að mér, þá haldi ég áfram að vera prestur. Og kristindómurinn nægir mér. Ég kemst ekki í vandræði ef ég tileinka mér hann. Hann nægir. Þetta hefi ég séð. Ég hefi séð það hjá litla barninu, ég hefi séð það hjá hinum glaða æskumanni, ég hefi séð þáð hjá hinum sorgbitnu. Ég hefi oft reynzt ófullkominn og vanræki mikið, miklu meir en ég framkvæmi, og ég get vel skilið, að menn séu ekki ávallt ánægðir með mig. Ég er það ekki held- ur. En ég hefi aldrei sagt: „Það vantar mikið hjá Jesú Kristi". — Nei. Hjá honum vantar ekkert. HJÁ mönnunum vantar mikið. Júdas hét einn af þeirn tólf. — En þá máttu ekki hinir 11 hætta starfinu. Það er gott, að menn starfa, þótt þeir séu ekki nema menn. Mér þykir vænt um hið fagra, hvar sem það birt.ist. Mér þykir væn+ um skáldskap og góð- ar bækur. En komið hefi ég þar, sem ekki hefir nægt að benda á slíkt. Mér þykir vænt um fagrar listir. — En komið hefi ég þar, sem ekki hefir stoðað að benda á þær. Það er gott að eiga fágaða menningu, að hafa 6—7 herbergi og nóg til að prýða þau með. En það ná ekki allir slíku. Það er gott að vera siðferðis- góður og hafa álit annarra. En það nægir ekki ávallt, að ég segi: „Vertu aðein3 siðferðisgóður". Mennirnir finna sinn van mátt, og þó að þeim sé sagt: „Það er eng- in synd til“, þá finnst þeim annað, þegar þeir gráta yfir henni. Það er sitthvað að tala um synd eða gráta yfir henni. Það er sitthvað að halda umræðu- fund um samvizku eða þjást af sam- vizkubiti. Þó að ég segi: „Reyndu að kynnast trúarbrögðunum", þá er það ekki á allra færi. En allir, sem hjálpar þurfa, geta skilið þetta ávarp: „Vertu hughraustur, syndir þínar eru þér fyrirgefnar. Statt upp og gakk“. Jesús Kristur er hinn víðsýnasti, sem ég þekki, því að hann segir: Komið tiL mín allir. Það er svo margt, sem allir hafa ekkl aðgang að. Ég hugsa um vísindin. Ég ber lotningu fyrir vísindunum, og ég vil, að þau séu tekin alvarlega. Alltaf geymi ég mitt akademíska borgarabréf, af því að það er undirskrifað af Vilh. Thomsen, hinum nafnfræga vísindamanni. En ég er ekki vísindamaður, þó að ég eigi borgarabréfið. Þó að ég væri handgengnari vísindun- um, þá mundu þau ekki ávallt nægja. Ég fresta því ekki að biðja, þangað til ég fæ vísindalega sönnun fyrir því, að mér sé það óhætt. Ég vil heldur ekki bíða eftir því að fá að vita, hvort lífið heldur áfróim, þangað til það er vísindalega sannað. Ég þarfn- ast þess nú, að vita það, og ég hefi sagt áður á hverju ég byggi þá vissu. Ég get undirskrifað það, sem rithöf- undurinn Julius Magnussen, — sá hinn sami, sem ritaði bókina „Guds Smil“, — segir í bók sinni, „Guds Dag“: „Ef heim- 24. desember 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.