Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 27.03.1966, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 27.03.1966, Qupperneq 1
að geta hýst 16 glæpamenn og 54 af- brotamenn. Haíði því verið valinn stað- ur þarna vegna þess, að alltaí væri hægt að fá ull með góðu verði hjá verk- smiðjunum handa föngunum að tæta, og svo iægi það svo vel við sjó, að alltaf gætu fangarnir aflað nóg í soðið. — Árið 1816 rak Castenskj|öld stiftamtmað- ur fangana burtu úr húsinu og sendi þá á sína sveit. Nokkru seinna tók Moltke greifi sér þar bústað og breytti húsið þá um nafn og var nú kallað Kóngsgarður. Seinna bjó svo landshöfðingi þar og var það þá nefnt Landshöfðingjahús. Árið 1904 þegar innlend stjórn var sett á laggirnar, settist hún þarna að með skrifstofur sínar, og síðan hefir húsið verið kallað Stjórnarráð. Þetta hús get- ur staðið um aldur og ævi — og ætti að standa un aldur og ævi. Árni Óla: Úr sögu Reykjavikur Einu sinni veröur allt fyrst Hvað var upphaf eða hversu hófst, eða hvað var áður?“ spurði Gangleri í Hávahöll, er hann vildi fræðast um sköpun heimsins. Sama spurning er á vörum allra þeirra, er fræðast vilja um sköpun höfuðborgar íslands. Hér skal nú reynt að leysa úr því „hvernig höfst“, því að allmikinn fróðleik er þar að finna um framvindu tím- ans í Reykjavík. Þó skal aðeins far- ið yfir gelgjuskeið bæjarins, fram að þeim tíma er hann taldis-t aldar- gamall, og skiptist það í tvo þætti, íyrstu 50 árin og ö-nnur 50 ár. S * * Mi. ast með því, að litlu fiskimannaþorpi á Seltjarnarnesi eru veitt kaupstaðar- réttindi 1786. En grunnur höfuðborgar- innar var þó gerður 34 árum fyrr, er Skúli Magnússon landfógeti hóf að reisa hér innréttingarnar“. Þá risu fyrstu tim.burhúsin í Reykjavík, 5 að tölu, og FYRRI HLUTI þá hófst skip-ulag bæjarins með myndun elztu götunnar, Aðalstrætis. Sú gata ihlýtur því að teljast eldri en borgin, ef miðað er við á-rið 1786. Og eitt af timburhúsunum, sem þar rísu þá, stend- ur enn (Aðalstræti 10). Með stofnun verksmiðjanna hófst hér fjölbreyttur iðnaður (tóvinna, járnsmíði, færaspuni, beykiss-míði o.fl.). Þá hófst einnig útgerð með skútum. Konungur gaf hingað tvæ-r duggur, sem kallaðar voru Friðriksósk ©g Friðriksgjöf, og síðan lét Skúli smíða þriðju dugguna og kallaðist hún Haf- írú. Hún var smíðuð úti í Örfirisey 1755 ©g þar með hafin hafskipasmíð í Reykja- vik. Þessi dugga var höfð í ferðum til hafna úti á landi til að selja klæði frá verksmiðjunni og kaupa ull í staðinn. Ein duggan var eitt sinn send norður á Strandir að sækja rekavið, en annars áttu þær að stunda fiskveiðar með hand- lærum. Útgerð þeir-ra borgaði sig ekki og eftir fá ár voru þær allar seldar. Fyrsta steinhúsi'ð reis í Arnarhólstúni. Var smíði þess þaíin 1764 eða fyrir rúmum 200 árum, en henni var ekki lokið fyrr en 1770. Upphaflega var þetta tukthús og átti Uppdiauuj: af jtveykjavik 50 ára gamalli (1836). Fyrsti kanpmaður í Reykjavik var Christian Sunckenberg, danskur maður, sem hafði verið forstjóri kon- ungsverzlunarinnar. Þegar verzlun var gefin frjáls við alia þegna Danakonungs, keypti Sunckenberg bæði Reykjavíkur- verzlunina og Eyrarbakkaverzlunina. Verzlunarhúsin sem fyrst voru í Ör- firisey höfðu verið flutt áður og sett nyrzt við Aðalstræti, rétt ofan við Gróí- ina. (Þar er nú verzl. Geysir). — En fyrsti kaupmaður, sein fékk hér út- mælda lóð til verzlunarrekstrar, var Kristoffer Kahr, stórkaupmaður í Björg- vin. Þessi lóð var austan við Austur- stræti og reisti Kahr þar verzlunarhús 1788 gegnt Sunckenbergsverzlun, eða litlu sunnar. Verðlaun fyrir byggingar. Með konungsúrskurði 1789 var l&itið verðlaunum þeim, er reistu hús á kaup- staðarlóðinni, og áttu þau verðlaun að nema 10% af byggingarkostnaði. Nokkr- ir hlutu þessi verðlaun. Fyrsti íslenzkur kaupmaður í Reykjavík var Páll Brekkmann. Hann fékk lóð austan við Kahr og þar reisti hann í félagi við Einar Þórólfsson frá Engey verzlunarhús og íbúðarhús úr timbri árið 1789. Þetta hús var á horni Veltusunds og Hafnarstrætis. Fyrsti skóli í Reykjavík var Hólavallarskóli og hófst hann sama árið og Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi, Þetta var hinn gamli Skálholtsskóli, er fluttur hafði veirið hingað. Svo var hann fluttur að Bessa- stöðum og senn til Reykjavíkur 1846 og kallast nú Menntaskóli. — Þegar Hóla- vallarskóli byrjaði, hlóðu skólapiltarnir vörðu efst á Arnarhólsholti og kölluðu Skólavörðu. Hún tók miklum breyting- um seinna og var orðin að útsýnisturni, en við hana voru bundnar minningar jafn gamlar kaupstaðnum. Því m^ður var hún brotin niður 1931. Mikill fram- farahugur er virðingarverður, en hann má ekki brjóta niður allt hið gamla, því að „án fræðslu hins liðna sést ei hvað er nýtt“. Hátignarmóðgun. Þegar á fyrsta ári kaupstaðarins bar svo við, að sóknarpresturinn, séra Guð- mundur Þorgrimsson, sektaði vinnu- mann Levetzows stiftamtmanns fyrir helgidagsspjöll. Hafði hann rokið á burt úr Viðey á sunnudegi þegar byrjað var að samhringja. Þetta kallaði stiftamt- maður „hátignarmóðgun“ af þvi að í hlut átti starfsmaður æðsta fulltrúa há- tignarinnar hér á landi. Fór málið fyrir Cansellí, en þar fékk stiftamtmaður á- vítur fyrir heimsku sína. Faðir Reykjavíkur hefir Skúli Magnússon fógeti oft ver- ið kallaður. En sama árið og Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi, var honum vik- ið frá embætti, vegna baráttu sinnar fyrir verzlunarfrelsi, þótt öðru væri bor- ið við. Var það afsetningarmál á döf- inni fram til 1793, en þá var ákveðið að Skúli skyldi fá lausn í náð vegna elli og lasleika og fá full eftirlaun. Kaupstaðarlóð Reykjavíkur var ákveðin 1787. Takmarkaðist hún af Grjótabrekkunni að vestan, tjörninni að sunnan og læknum að austan, og var alls 30462 ferfaðmar. Innréttingarnar. Samkvæmt ákvörðun tveggja nefnda var ákveðið 1790 að leggja niður inn- réttingarnar (verksmiðjurnar) í Rej’kja- vík, og hófst sala húsa þeirra þegar á næsta ári. Fyrsti dómkirkjuprestur var séra Guðmundur Þorgrímsson. Hann átti aldrei heima í Reykjavík, heldur bjó hann á Lambastöðum. Á hans dögum var heldur engin dómkirkja hér, hún var í smíðum og átti svo að heita að hún væri messufær haustið 1796, eða Framhald á bls. 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.