Lesbók Morgunblaðsins - 27.03.1966, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 27.03.1966, Blaðsíða 4
NÝR ,.WOHLSTANDSKRIMINALITET“ I talski sálsýkisfræðingurinn Cesare Lombroso (1836—1909> vildi rekja alla giæpahneigð til líkamilegra orsaka og var það i góðu samræmi við efnishyggju hans tírna. Helztar þessara orsaka voru að hans dómi úrkynjun og afturhvarf til fyrri stiga þróunarinnar eða atavism- us. Eitt öruggt merki hans var t.d. sá broddur upp úr eyranu, sem einstaka maður hefur, og minnir á eyrnabrodd ýmissa dýra. Glaepamaður vair sam- kvæmt þessari kenningu nokkurskonar millistig á milli brjálaðs manns og villi- manns og glæpahneigðin meðfædd. Þessi kenning er nú fallin úr gildi, þótt fávitaháttur eða meðfæddar skapgerðar- veilur geti stundum orðið til að valda afbrotum. Umbótamenn 18. og 19. aldarinnar töldu örbirgðina vera aðalorsök glæpa og að þeir myndu falla úr sögunni með bættri velmegun og aukinni fræðslu almennings. Víst er um það, að sú skelfi- 'lega örbirgð, sem var yfirgnæfandi í „slum“-hverfum stórborganna á síðustu öld, hrakti margan mann út á afbrota- feril, en nú er því ekki til að dreifa á sama hátt. Nú tala menn um „Woihl- standskriminalitet" — glæpahneigð sem ÁTTUNDI HLUTI eitraðan ávöxt velferðarríkis og alls- nægtaþjóðfélags. Sem orsök þessa undarlega nútíma fyrirbæris er hægt að útiloka verulegar breytingar á erfðaforða mannsins. Arf- gengir eiginleikar breytast ekki í skjótri svipan, en ytra umlhverfi getur breytzt svo snögglega, að mönnum eða dýra- tegundum gefist ekki nauðsynlegur tími til aðhæfingar. Það er mjög óeðlilegt að hugsa sér bættan efnahag og trygg- ari afkomumöguleika sem sjálfsagða orsök vaxandi afbrotaihneigðar. Þar hijóta að koma til aðrar ástæður, and- legar og félagslegar, eiríhverskonar hörgulsjúkdómur nútímamenningaiinn- VONADRAUMUR OG MARTRÖÐ M eð velferðarríkinu er að rætast tíraumur mannkyns, sem öldum saman hefur verið hrjáð af sjúkdómum og hallærum — draumurinn um brauð og bætta heilsu Sú efnahagaþróun, sem er afleiðing stórkostlegra framfara í alls- konar vélvæðingu og bættum samgöng- um, er tryggð af þeim uppgötvunum, sem gerðar hafa verið síðustu 100 árin í læknisfræði, og þá fyrst og fremst að því er snertir heftingu næmra sjúkdóma. En maðurinn lifir ekki af brauði einu saman. Þær andlegu og sálrænu þarfir, sem urðu hluti af eðli hans fyriir tugum eða öllu heldur hundruðum þúsunda ára síðan, hafa verið vanræktar. Heilsu- vérndin hefur aðeins nóð til líkamans, en ekki til geðþroska hans. Barnadauð- inn hefur minnkað en unglingaafbrotin aukizt. Velferðarríkið hefur sem slákt fram að þessu aðeins haft einn guð — gullkálf- inn, átrúnaðargoð hinnar egypzku forn- menningar, sem staðnaði og steinrann og beitti orku þegnanna í byggingu voldugra grafihýsa, eins og stórveldin eyða nú viti og fjármagni til ferða út í andstöðu við heimili sín, enda lýsti for- stjóri eins betrunarhæiis fyrir drengi ástandinu svo að helming heimilanna mætti kalla hreint og beint helvíti, einn fjórði þeirra væri áferðargóður á yfir- borði, en heimUisandinn rotinn, og fjórði hluti drengjanna virtist koma frá beimilum, sem væru góð, þótt þeir hefðu lent í slæmum félagsskap. Þeir finna aðeins nokkurt öryggi í félagsskap jafnaldra sinna, þar eru þeir menn með mönnum og njóta þá vanalega því meira áiits þar sem þeir eru frakkari og ófyrir- leitnari. Þeir efast í raun og veru um karlmennsku sína og manngildi og lát- laust lauslæti þeirra er aðeins tilraun til að kveða þá minnimáttarkennd nið- ur. Sama tilgangi þjónar glannalegur akstur og bílaþjófnaðir, valdið yfir hest- öflum vélairinnar er uppbót getuleysis. Alger skortur á nokkru stefnumarki eða hugsjón gerir þeim ógeðfellda alla áreynslu til undirbúnings undir lífið, hvort heldur er með námi eða sparnaði á fé. Þeir lifa því fyrir llðandi stund einvörðungu og hið eina sem hefur gildi í þeirra augum eru því peningar, sem hægt er að nota sem eyðslueyri. Þeir eru fórnarlömib eldri kynslóðarinnar á altari átrúnaðargoðs allsnægtaþjóðfé- lagsins — altari gullikálfsins. Hvorki heimilin eða skólinn hafa megnað að skapa hjá þessum ógæfu- sömu ungmennum nein tengsl við þjóð- félagið né þá menningu, sem liðnar kynslóðir ha.fa skapað. Utan síns eigin félagsskapar eru þeir umkringdir al- gerðu í tómi í tíma og rúmi. Lífsleiðinn og eirðarleysið, sem hvorttveggja er mjög áberandi í fari þeirra, veldur þeim sífelldu stressi, sem stundum brýzt út í skemmdarverkum eða ofbeldi, enda er félagsskapur þeirra í raun og veru and- spyrnuihreyfing gegn því þjóðfélagi, sem befur brugðizt þeim. Þessi tilvera í andlegu tómi, rótleysið og jafnvægisleysið, gerir þá mjög mót- tækMega fyrir hópsefjun, svo að þeir feykjast eins og skrælnuð lauf fyrir goluþyt, þegar um er að ræða hetju- dýrkun á þeim úr þeirra hópi, sem með tilstyrk snjallra auglýsenda og fjár- plógsmanna hafa náð þVÍ, sem er eftir- sóknarverðast í þeirra augum, en það er fé og stundarframi. Það grípur þá hrifningaræði, þegar slíkar „stjörnur11 ber fyrir augu þeirra, svo sem sjá mátti hér við heimsókn Bítlanna. Einkum á þetta þó við stelpur á gelgjuskeiði, þótt strákarnir reyni reyndar líka að stæla þá í útliti og hátterni. Að nokkru leyti verSur þetta að teljast eðlilegt, því að jafnvægisleysi og geðsveiflur eru algeng lífeðlisfræðileg fyrirbæri á þessu skeiði ævinnar. Geðvis (beygist sem slys). c L7 em betur fer eru afbrotaungling- ar í miklum minni hluta meðal æsku- fólks, a.m.k. enn sem komið er, og þeir eru ekki fæddir til að verða vandræða- menn. Það er ytra umhverfið, sem hefur leitt þá á villigötur. Þeir hafa verið „conditioneraðir“ eða mótaðir af gegnd- arlausum áróðri og auglýsingum skemmt anaiðnaðairins. Blöð og útvarp hjálpa óspart til að sníða þennan álagaham, einnig að þvd er snertir dýrkun hins kynferðilega losta með nektarmyndum, rosafréttum af hjúskaparbrengli kvik- myndastjarna og öðru slíiku góðgæti. Það eykur vanda ungs fólks, að það tekur út kynferðisþroska sinn fyrr en eldri kynslóðir. í gróðurhúsalofti fjöl- býlis og velmegunar byrja stúlkur að jafnaði að hafa á klæðum ári fyrr en mæður þeirra gerðu og tveimur árum fyrr en ömmur þeirra. Bilið milli bernsku og fullorðinsára, sem er svo Framhald á bls. 14 Gullkálfurinn. Fornegypzk stytta. um himingeiminn. Er ekki hvorttveggja flótfatiiraun frá lífinu og viðfangsefnum þess? í allsnægtaþjóðfélaginu hefur kaup- geta æskufólks vaxið stórkostlega frá þvi sem áður var, og hofprestar gull- káifsins haía ha.fið reglulega herferð á pyngju þessa fólks með geysilegum aug- lýsingaáróðri. Mestur hluti af tekjum ungs fólks fer viða í eyðslu til eigin þarfa: Skemmtanir, plötuspilara, hljóm- plötur með röddum dægurgoða, mótor- hjól, bíla, föt og fegrunarlyf. Dr. Mark Abrams hefur í bók sinni The Teenage Consumer, 1960 (tilv. eftir Fyvel) áætlað persónulega eyðslu ógifts fólks í Eng- landi vera um 900 milljóniir punda á ári, eða yfir hundrað milljarða króna. Flest af þessu fólki hefur engan sjálf- slæðan smekk. Það kaupir það sem er í tízku hverju sinni og auglýst er af mestri frekju, og auglýsendurnir sjá um það, að tízkan breytist í sífellu, þvi að annairs gengi markaðurinn saman. Þeir sem eru auglýstir sem eitthvert verald- arundur í ár, t.d. Bítlarnir, eru gleymdir næsta ár fyrir nýjum stjömum, sem eru notaðar til þess að arðræna æsku- lýðinn, og þetta endurtekzt í sífellu. XÓM — TÓM —TÓM Niðurstaðan af rannsókn Fyvels á Teddy Boys er sú, að það sé fyrst og fiemst andlegt öryggisleysi, sem er und- irrót hátternis þeirra. Þeir eru margir EFTIR PÁL V. G. KOLKA LEIT AÐ MANNINUM 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. marz 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.