Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1966, Blaðsíða 7
^^¦-^*--v.v.,^.' ¦;:
.:¦' ¦ ¦ >¦ i' : : ¦-, ¦;¦<¦¦¦ i& í\
_>'¦¦ 'UI &; ¦ v; ¦:¦ ¦¦! v (,. ¦.;
L
istafélag Mennta-
skólans í íteykja-
vík hefur starfað með mikl-
um glæsibrag í vetur. Fé-
lagið er þó ungt að árurn, —
þau munu vera aðeins sex
A þessari mynd sést Sigurður Örlygsson og fjórar af mynd-
um hans. Ekki er hægt að segrja annað en að listamanns-
svipur hvíli yfir pilti.
„Aðeins málað af innri þörf"
að tölu. Áður fyrr voru
starfandi tvö félög í skól-
anum, sem höfðu innan vé-
banda sinna svipaða starf-
semi og Listafélagið nú.
Myndlistarfélagið Baldur
og skáldafélagið Bragi hétu
félög þau. Síðan voru þessi
félög stokkuð saman og
Listafélagið stofnað. Það
starfar nú í fjórum deildum
og núverandi forseti félags-
ins er Þorsteinn Helgason.
Fyrir skömmu var haldin
iriyndlistarsýning á vegum
Listafélagsins, en á þeirri sýn-
ingu sýndi dágóður hópur mynd
listarmanna skólans verk sín. í
þvi tilefni héldum við upp í
skóla, því að okkur lék hugur
á að kynnast nánar þessari sér-
stæðu sýningu.
Þetta er öldungis ekki fyrsta
sýningin, sem haldin helur ver-
ið á vegum Listafélagsins í
vetur. Fyrst ber fræga að telja
sýninguna á sjávarmyndum
Kjarvals sem haldin var á önd-
verðum vetri í tilefni af af-
mæli meistarans. í upphafi
þessa árs var síðan haldin yfir-
litssýning á verkum Snorra
Arinbjarnar. Á næstunni er svo
ráðgerð sýning á verkum
Sverris Haraldssonar, listmál-
ara, en þess má einnig geta,
að hann hefur verið nemend-
um skólans innan handar með
uppsetningu sýningarinnar á
verkum þeirra og verið leið-
beinandi á teikninámskeiðum,
sem haldin eru vikulega í skól-
anum.
Auk framangreindrar starf-
semi félagsins má nefna bóií-
menntakynningar þess, sem
hafa verið nokkrar á yfirstand-
andi skólaári. Hæst ber, að
sjálfsögðu, kynninguna á leik-
ritinu „STRAUMJtOF" eftir
Halldór Laxness. Nemendur
lásu uppp leikritið, en á undan
ræddi skáldið um verkið sjálft.
Xr
sem málverkasýningar skólans
eru nú haldnar, var margt um
manninn fyrir. Auk nemenda
var slæðingur af utan-
skólafólki. Þar voru og mættir
þrír af hinum ungu listamönn-
um, þeir Trausti Valsson, Sig-
urður Örlygsson og Björn
Björnsson, og skeggræddu þeir
um myndirnar og málaralist
almennt. Við snerum • okkur
" egar við gengum i kjall-
ara nýbyggingar skólans þar
— Er það ekki einhvernveginn
á þennan hátt, sem ekta list-
málarar stilla sér upp við mynd
ir simar? sagði Björn — um leið
og hann tók sér stöðu við mynd
af Jesú Kristi, mjög vinsælu
,^n,ótífi" meðal hinna ungu
listamanna.
þegar að Trausta og spurðum
hann um hans skerf að sýn-
ingunni. Hann sagði:
— Ætli það sé ekki nálægt
fjörutíu myndir, sem ég sýni
að þessu sinni.
— Hvað eru margar myndir
á sýningunni?
— Það er ekki gott að segja.
Líklega um hundrað og þrjá-
tíu myndir, eftir átján málara.
Auk þess eru fáeinir tugir ljós-
mynda, sem eru sýndar á veg-
um Ijósmyndaklúbbs skólans.
— Eitthvað mun vera hér af
höggmyndum?
— Það er víst engin regiu-
leg höggmynd, en Sigurður ör-
lygsson á eina mynd, sem hann
vann úr gifsi. „Dauði Ham-
lets" nefnir hann hana. Ég á
svo hér eina fjóra ,^skúlptúra"
þ.e. járnmyndir.
— Eru þetta nýjar myndir
hjá þér, Trausti?
— Flestar myndirnar eru
síðan í sumar. Það má segja,
að ég hafi málað flestar þeirra
eftir að ég kom heim frá Bret-
landi, en þar dvaldist ég um
tíma, fullur af hugmyndum og
andríki eftir ráp á milli þar-
lendra listasafna.
Næst hittum við Björn
Björnsson að máli. Hann situr
í sjötta bekk skólans og hefur
komið undan penslum hans síð-
bandi við félagslíf skólans.
Leiktjöld Herranætur hafa
verið undan penslum hans síð-
ustu fjögur árin, en í ár að-
stoðaði Trausti hann við verk-
ið. Björn er alþjóð einnig að
góðu kunnur á öðru sviði —
hann er nefnilega einn hlekk-
urinn í hinu vinsæla Savanna-
tríói. Svo það má með sanni
segja, að pilti sé margt til lista
lagt.
Björn sagði okkur, að þetta
væri í fyrsta sinn, sem hann
tæki þátt í myndlistarsýningu
menntaskólanema, og að hann
ætti einar sex myndir á sýn-
ingunni í ár. Myndirnar eru
flestar nýjar.
^
laun fengu þau Margrét Reyk-
dal og Trausti Valsson. Svo
félok ég víst ásamt öðrum önn-
ur verðlaun.
— Hvað sýnir þú margar
myndir?
— Tólf og svo gifsmyndina
aá honum Hamlet. Reyndar er
Hamlet fótbrotinn á báðum og
handleggsbrotinn á báðum í
þokkabót. Það var þröngt hér
á þingi við opnun sýningax--
innar og Hamlet greyið fékk
slæma byltu. Ætli ég verði
ekki að setja hann í gifs, þegar
sýningin er úti.
— Svo áttu hér líkön af
húsum?
— Já, þetta módel sýnir skól-
ann og næsta nágrenni um
aldamótin síðustu. Reyndar er
þetta aðeins hluti af stærra
módeli, sem ég er að vinna að
um þessar mundir.
— Hvað finnst þér athyglis-
verðast í sambandi við þsssa
sýningu, Sigurður?
— Það sem ég tel athyglis-
verðast við þessa sýningu er,
hvaS hún er fjölbreytt. Það má
segja, að hér séu sýnishorn af
öllurn stefnum, gömlum sem
nýjoim. Einnig má undirstrika
það, að hér sýna menn ekki
árangur af vinnu og lærdómi
úr skóla. Allir hafa málað sín-
ar myndir heima án nokkurrar
hand'leiðslu. Aðeins málað af
innri þörf.
— Að lokum, Sigurður! Hún
er blómleg starfsemin hjá Lista
félaginu í ár?
— Já, það má meS sanni
segja. Einkum og sér í lagi ber
starfsemi kvikmyndaklúibbsins
hátt. ÞaS er aðdáunarvert
hversu vel hefur gengið að fá
gamlar og góðar myndir til sýn
ingar. Þag er einnig orSiS áber-
andi, hve margir menntamenn
utan úr bæ hafa sótzt eftir að
sjá þessar myndir.
*
xið síðustu tókum við tali
Sigurð Örlygsson. Hann er einn
atf busum skólans, en fjórir
nemendur úr priðja bekk eiga
myndir á sýningunni. Eigi er
kynlegt, þótt piHur hafi áhuga
á myndlist, því að hann er
sonur Örlygs Sigurðssonar list-
málara.
— Þú lest mikið um listir og
átt margar listaverkabækur,
Sigurður?
— Ójá, ætli ég megi ekki
segja það. Nú, svo bættust
tvær bækur í safnið við opn-
un sýningarinnar.
— Hvernig stóð á því?
— Það er mergur málsins,
að allir þátttakendur fengu
viðurkenningu fyrir að taka
þátt í sýningunni og svo voru
veitt verðlaun. Fyrstu verð-
±\, llir kváðust þessir þrír
ungu listamienn vera ánægðir
með sýninguna og vildu ein-
dregið taka fram, að Sverrir
Haraldsson, listmálari, ætti
mikinn þátt og góðan í því,
hve vel hefur til tekizt. Það
fari að sjálfsögðu mikið eftir
því, hvernig myndirnar eru
settar upp. Aðspurðir um það,
hvort myndirnar væru falar,
svöruðu þeir því til, að það
væri að sjálfsögðu kærkomið,
ef einhverjir hefðu áhuga á því
að kaupa myndir. Allir þátttak
endur væru auralitlir náms-,
menn og efnið í myndirnar og
rammana kostaði morð fjár, og
það yrði góð búbót, ef þeir
gætu selt einhverjar myndir
fyrir fáeina skildinga.
— b.sív.
\
Trausti Valsson við einn af „skúlptúrum" sínum, sem tákn-
ar ósköp venjulegt tré, aðrir segja, að áhrifa gæti af atóm-
öldinni. (Mymflir: Sv. Þorm.)
17. april 1966
-LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7