Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1966, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1966, Side 6
mmm rriTiiiiiirfiinriííirMiiii ■ ■■■■■■■■■ ■« GÖNGUFERÐ Frh. af bls. 4 bílaumferð þar þvi orðin lítil og gatan mest ætluð gangandi fólki. Víðförli tók mynd (5) af austan- verðri Lækjargötu. Komið var hús á bak við gamla stjórnarráðshúsið, er gaf því verðugan bakgnmn. Síð- an tók við nýja stjórnarráðshúsið og þá gamli Menntaskólinn, en frá Laufásvegi var ekki lengur hægt að aka niður á Lækjargötu sam- kvæmt hugmyndunum rnn fullkom- ið, flokkað gatnakerfi. Kirkjustræti hafði verið tengt Amtmannsstíg og hann aftur Grettisgötu, en milli Kirkjustrætis og Tryggvagötu gat fólk að mestu gengið í friði fyrir bíl- um. Hafði gamli miðbærinn fengið á sig þægilegra yfirbragð með þessu breytta fyrirkomulagi. Austurvöll- ur tengdist litlum garði í brekk- unni við Túngötuna, en á þeim slóðum munu Ingólfur og Hallveig hafa reist sér bæ. Nú voru þar súl- ur miklar, er minntu á öndvegis- súlurnar, sem réðu fyrstu örlögum Reykjavíkur. Og var þá komið inn í Aðalstræti, sem orðið var að torgi (mynd 6). Var þar skjól gott og landrými nóg, er duga mundi 4- 5 þús. manns til að stíga dansinn 17. júní. Frá Aðalstræti lágu tvær mjó- ar götur upp í gegnum Grjótaþorp og að Garðastræti, en fyrir ofan þær hafði Suðurgata verið fram- lengd niður að höfn, er síðar verð- ur getið. Tröppur voru í brekkunni og litlar verzlanir á báðar hliðar (mynd 7). Þama fann Víðförli skemmtilegan veitingastað, og þar sem klukkan var orðin hálf-eitt, á- kvað hann að fá sér hádegisverð og gera hlé á gönguferðinni. ★ ð loknum hádegisverði í Grjótaþorpi lagði Víðförli exm af stað. Hann gekk undir fram- lengingu Suðurgötu og upp í Garða stræti og síðan út á Vesturgötu, sem nú lokaðist við Naust. En Suð- urgatan hélt áfram sem brú yfir Tryggvagötu og milli Hafnarhvols og vörugeymslu SÍS. Niðri á hafn- arbakka mætti Suðurgata svo upp- hækkaða veginum, er byrjaði við Skúlagötu hjá Sænska frystihúsinu og fór aftur niður á jörðina á Mýr- argötu sunnan við Hamarshúsið. Voru þar greiðar leiðir bílum bæði í austur og vestur (mynd 8). Leiðin lá nú vestur með gömlu höfninni, sem hafði lítið breytzt. í fjörunni, við Ánanaust, hafði verið lagður gang- stígur, er teygðist út á Nes norðan Eiðsgránda. En nú þótti Víðförla mál til komið að fara að halda í átt- ina heim, enda löng leið til baka. Urðu þá fyrst fyrir honum íþrótta- velhr KR, sem gerðir voru af hin- um sérstaka þjóðflokki, Vesturbæ- ingum, er röktu ættir sínar til þess tíma, er Reykjavík var enn bær, en ekki orðin borg. Og þaðan var stutt að Sundlaug Vesturbæjar, er hinir „þjóðræknustu“ fyrir vestan læk töldu bezta sundstað á Norð- urlöndum. Og enn var stutt að Melatorgi, þar sem yngri kynslóð- in var á barnaheimili, í barnaskóla og í gagnfræðaskóla, en hinir eldri auðguðu andann í samkomuhúsi háskólans, slökktu þorstann í Sögu og voru síðan jarðaðir frá Nes- kirkju. w Iháskólahverfinu hafði margt breytzt frá því á árinu 1966. Bókasafn var risið, enn fremur náttúrugripasafn, félags- heimili stúdenta við Hringbraut, byggingar með fyrirlestrasölum og rannsóknarstofum og nýir stúdenta garðar. Fyrir framan Norræna hús ið var komin stór tjörn, en sumar nýbygginganna voru þar fyrir sunn an (mynd 9). 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. maí 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.