Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1966, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1966, Blaðsíða 10
GÖNGUFERÐ Frh. af bls. 7. bæinn, sunnan Miklubrautar og aust an Kringlumýrarbrautar. Þar hafði mikið verið byggt og nýtízkulega. Upp var risinn fjöldi stórra og smárra verzlunar- og skrifstofu- húsa. Einnig mörg félagsheimili, leikhús, gistihús og 9kemmtistaðir (mynd 12). Þarna var þaegilegt að koma, hvort heldur akandi eða gangandi. Bílastæði voru neðan- jarðar og allt um kring, en verzl- anir og göngugötur fyrir ofan. Fólk gat þvi gengið milli allra húsa, án þess að þurfa nokkurs staðar að víkja fyrir bílum. Og þama voru smá-garðar og torg og mjóar, skemmtilegar götur, þar sem fólk var í skjóli fyrir regni og vindi (mynd 13). Var þar gott að vera í hvers konar erindagjörðum, og skapaðist skemmtilegur blær af öllu fólkinu, sem leitaði þangað til starfs og leikja. Víðförli var þama á ferðinni síðdegis á sunnudegi, og þá virtust flestir vera að skoða í búðargluggana og labba um í góða veðrinu. Simnar var óbyggt svæði fyrir framtíðarstækkun miðbæjarins. En vestan Kringlumýrarbrautar, beggja vegna Bústaðavegar, voru svæði, ætluð opinberum bygging- um, og voru nokkrar þeirra þegar risnar. Ferðin hélt nú áfram með- fram Borgarsjúkrahúsinu í Fossvogsdalinn. Á hinni stóru spít- alalóð höfðu risið ýmsar samsvar- andi stofnanir, og aðrar vom ráð- gerðar. Botninn í Fossvogsdalnum var samhangandi garður með mikl- um gróðri, og bar mest á gömlu gróðrarstöðvunum. Fyrir ofan var svo hin skemmtilega byggð í Foss- voginum (mynd 14). Víðförli gekk austur allan garð- inn og var þá kominn neðst í Breiðholtshverfi. Hann fór í gegn- um mikla verzlunarmiðstöð hjá Suðumesjaveginum og svo sem leið liggur upp hverfið og var þá kominn heim. Klukkan var orðin hálf-átta, fréttimar að byrja og kvöldmatur- inn tilbúinn. > Ferðin hafði alls tekið 11 klukkustundir með einuin tíma í mat og 40 mín. í kaffi, og leiðin nær 28 km löng. Víðförli hafði því að meðaltali gengið 3 km á klst., enda gefið sér tíma til að skoða margt. Við yfirgefum nú göngugarpinn og óskum honum góðr ar hvíldar fyrir framan sjónvarps- tækið, en í kvöld á einmitt að sýna litkvikmynd um þróun Reykjavík- ur 1966—83. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. maí 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.