Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1967, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1967, Qupperneq 6
lengjur, sem má hækka og lækka að vild, og „færiböndum“ er komið fyrir á sviðinu, sem gera mönnum kleift að áæra til hluti og ná áíhrifum, sem ó- gerningur væri að ná á venjulegu leik- sviði. M enn hafa reynt flest þessara tæknilegu hjálpargagna áður, ýmist ein sér eða saman, en í Laterna Magica hefur í fyrsta sinn tekizt að sameina öll þessi atriði í eina heild, svo að hún verði nýtileg. Hér í Svíþjóð hafa einnig verið gerðar tilraunir með tækni brögð þessu lík. En þessar handahófs- kenndu sýningar hafa verið reikular og frumstæðar — og hvar er hér inni- hald formsins? Eftir sýninguna í BruxeUes hefur Laterna Magica komið sér upp full- komnu starfsliði tæknimanna, ljós- myndara, leikstjóra og verkfræðinga og sett upp fjórar sams konar sýningar og aðeins einu sinni brugðu þeir of langt frá upphaflegri sviðsetningu. Leikhúsið fer í sýningarferðir um Ev- rópu og hefur nóð hylli manna m.a. í London, Vín og Moskvu. Þess eina, sem krafizt er af gesta- sviði, er, að það sé 15 metrar á breidd og 12 metra djúpt. Fjarlægð milli sýn- ingartjalds og sýningarvéla má ekki fara fram úr 42 metrum. Öll tækin ganga fyrir vélasamstæðu, sem tekin er með í sýningarferðalög. Að öðru leyti skiptist tækniútbúnaður í tvo hluta, sem eru svo til óháðir hvor öðr- um: annars vegar sviðsútbúnaður og hins vegar sýningar- og stjómarút- búnaður. Sviðsútbúnaður eru tíu fær- anleg sýningartjöld, mismunandi að lögun og stærð, leiksviðstjald, „færi- bönd“ og magnarar. Sýningar- og stjórn ar útbúnaði heyra til kvikmynda- og dia-sýningarvélar og sérstakt stjórnar- borð, sem gerir stjórnandanum kleift að samræma og samhæfa mismunandi Mði sýningarinnar. Allur farangurmn vegur 14 tonn, en allan útbúnað er hægt að setja upp og taka niður á tveim dögum. A sýningum Laterna Magica gegnir sýningarstjórinn einu mikil- vægasta hlutverkinu. Hantn er stað- settur aftast í salnum og á ekki ein- göngu að fylgjast með því sem gerist á sviðinu heldur einnig með viðbrögð- um áhorfenda og hljómburði, sem er auðvitað breytilegur eftir stærð salar og fjölda áhorfenda. Upphaflega höfðu menn gert sér vonir um algjöra sjálf- virkni stjórnartækjanna, en með til- liti til mikilvægustu þátttakenda sýn- inganna — hinna holdi klæddu leikara á sviði — reyndist slíkt ógerlegt. Sýn- ingarstjórinn og menn hans gegna því hlutverki í sýningunni sem einn liður í áhugaverðu samspili tækni og listar. Kynnir á sviði gegnir einnig hhitverki — og reyndar stígur hún rakleitt út úr kvikmyndatjaldinu, þar sem hún birtist fyrst. Henni er fyrst og fremst ætlað að skýra efnið fyrir áhorfendum — og það gerir hún á tékknesku, rúss- nesku, ensku, þýzku og einstaka sinn- um á ítölsku og frönsku. Rödd hennar berst gegnum hátalarana frá smáhljóð- nema, sem er falinn innan klæða. Þetta er nauðsynlegt vegna þess að „leið- sögn“ hennar fer fram samtímis öll- um þeim hljóðum sem heyra atburða- rásinni til. Hljómburður er svo góður, að rödd hennar virðist alla tíð eðlileg, en nokkuð há — og m.a. í þessu er leyndardómur þessarar tæknilegu framsetningar fólginn: greinarmunur þess sem er framleitt tæknilega og þess sem er lifr^di á sviðinu verður að gæta svo lítið, að áhorfendur verði ekki varir við hann eða mega a.m.k ekki láta truflast af honum. Auk kyrr- myndanna nota menn einnig venjuleg- ar kvikmyndir og þrívíddarmyndir. Stereófóniskum áhrifum er náð með þriggja-rása-kerfi. Þrátt fyrir árangur, sem náðst hefur á síðastliðnum átta árum, leggja forráðamenn Laterna Mag- ica áherzlu á, að leikhúsið geti engan veginn enn talizt fullkomið tjáningar- form; enn séu menn önnum kafnir að fullkomna tæknina og finna leiðir til að auka mátt hennar tii tjáningar. Eins og væntanlega hefur komið í ljós af framansögðu, bera kvikmynd- ln og leikarinn uppi leiksýningarnar. Það er í þeirra verkahring að koma á framfæri öllum þeim óvæntu tilbrigð- um, sem galdramenn leikhússins hag- nýta sér í svo ríkum mæli. í fljótu bragði gæti manni virzt heldur ó- skemmtilegt að láta stöðva kvikmynd í miðri æsandi atburðarás. En áhrif kyrrmyndarinnar eru ótrúleg. Þegar kvikmyndavélin fer af stað á ný, er maður snögglega hrifinn úr þeim geð- blæ, sem miðaldahús við gamlar Prag- götur hafa vakið og athygli manns bein- ist öll að hjólaskautahlaupurum, sem bruna á ofsahraða niður hallandi göt- ur Pragborgar. Þegar kynnirinn gengur út úr kvik- myndatjaldinu, þar sem hún birtist í nokkrar mínútur, er verið að dansa ballett bæði á kvikmyndatjaldinu og á sviðinu. Beggja megin við hinn raun- verulega kynni (hvað er hér raunveru- legt?) sjáum við stækkaða mynd henn- ar og þaðan berst leiðsögn hennar á öðrum tungumálum. Að síðustu sveifl- ar einn dansenda gjörð um myndina og færir hana þannig á brott með sér líkt og í gríðarstórri kristalskúlu. Tónlistarmaður birtist á sviðinu, sezt við píanó og byrjar að spila. Fljótlega birtist mynd af honum á tjaldi fyrir ofan hann hægra megin — en á mynd- inni blæs hann í horn. í næstu andrá birtist önnur mynd af honum — í þetta skipti með túpu. Þannig heldur þetta áfram þar til píanóleikarinn hefur myndað eigin kvintett. En til þess að sýna hver þeirra sé raunverulega hann sjálfur tekur píanóleikarinn hornið úr höndum spegilmyndar sinnar og fer að blása í það — spegilmyndin tekur að hamra á píanóið — hann fleygir frá sér liorninu og eigandinn nær því aftur, og þannig heldur hann áfram að skipt- ast á hljóðfærum við sjálfan sig á kvikmyndatjaldinu og spila kvintett með sjálfum sér. Áhrifin eru stórkost- leg. F ram að þessu hafa verið sýnd fjögur tilbrigði af upphaflegri sviðsetn- ingu, en hana mætti nefna Myndir frá Prag — snar þáttur hennar eru sögu- legar tilvitnanir og ívafið eru atriði úr lífi borgarbúa, íþróttiun þeirra, byggingalist, og lista- og menning- arlífi borgarinnar. En ekkert af þessu er gert til að laða ferðamenn til borg- arinnar — þetta er heimildarfrásögn gerð af frábærri listrænni snilld. Fyrir nokkrum mánuðum var í fyrsta sinn farið inn á nýjar brautir — Ævin- týri Hoffmanns var fært upp í mjög frjálslegri og óbundinni sviðsetningu. Tilraunin tókst ekki að öllu leyti til fulls, en hún sýndi þó, að sú braut sem Laterna Magica hefur lagt út á, er fær; einstæðum tæknibrögðum þessara galdra manna má beita í fleirum en einu við- fangsefni — ailt frá einstökum svip- myndum til lengri verkefna, sem eru fyrst og fremst ætluð hefðbundnum vinnubrögðum venjulegra leikhúsa. Ævintýri Hoffmanns er fyrsta verkið af mörgum, sem á að setja á svið í framtíðinni til að sýna, hvers þessi nýja sviðstækni er megnug. Þegar í lok maí á að sýna nýtt tilbrigði upp- haflegu sýningarinnar, og með haustinu verður enn eitt tilbrigðið sýnt. Með sviðsetningu á Ævintýri Hoffmanns á að sanna, að tækninni má einnig beita í óperum og óperettum. Sjálfsagt mun þessi nýja starfsáætlun sannfæra jafn- vel hina vantrúuðustu um ágæti þessa tækniforms einnig þegar um er að ræða alvarlegustu Ieikrist. Lokasitigið verður svo að skapa verk með nýju inntaki — óháð þeirri tækni, sem menn bæði byggja á og reyna að vera óbundn- ir af. Takmarkalaust hugmyndaflug og listræn framsetning vekur sams konar hrifningu og dularfullu æfintýramynd- irnar, sem við sáum í bernsku. —> rnRO nn- rnRr Rtmn ó»kB V£RU PfiWflfi píet ssíik puT IHIÍ I T 'o L fí s V £ i N H i w & fl L a R T Kdski K N 'fí ff K \ 0 > Rn* L£é4 p?j>r rfÓH tit- »yH u** Tua. fimt \r R fí s T ff R FWór LÓftfl N i L E L D VlKKfl 1 RÐ- úrRí H fí U 5 fí i'iKld f) D 'pLMt '1 F Æ R fí H iKC.UK LITHK PoKfffi M 0 R HifKfi ÆPJfi 0 R N fí R |»oR* lO 'fí R Æ l D < H HIÞUK MflRK 6 U Ð ELD- iTXÞ UK1 'D F N U M F K 'R F u R 'OLfíTf, FoR- ‘D hn ff K R ff 9 Ft IKDl- 1 N K ff 1-7 F tnrn M’ r inú Bceru ÞflKKlfi KMD- 1 Ná l) umt • ruiLT W ús D R 1 7 a a 'ft ff VI $ rri.LT MILO N 'ff L E 4 fí i LL H úh 'RMfHP R 0 Ð HlTffí V 7? DCIM UffúN R '0 i \ T u N U m ríoac.\ DÓttr UBIKH L 7 F C\ \ U F S fí ‘rSfÞ Wfr F ff K Æ N £ r i s> fí'HI * me 9<r iiriUM LT W N R <k t R DFSoO FUC,L tt N 0 F Æ L u R */LUL S '0 M ff K U TFtHL- T íffKld L V D D R N K'fK’- KWHt 'ft R S HCRNL nunc Hvnr ff R ff s / •w fí ienm 'fltr- 1 Ð |fmn- K R ' r fí 5 KKtLl rvtti K ‘1 L L LBtiHlH Tníítn L E K R ft iwe«r INAM /EPI 'fí T fí K 1- oík- UHP i n n 1 T m«ruR , < ft U r fí 5 r e l K S XÓLI a •« á * Btilti M R N '0 N TfíUC. Daep IK V ft Ð U R fí H-& £ u N fí -F) icatnK fí a N ft K' D 0 D T) 1 UfC.- VIÞIÍ RÚM ft fí R N s íiHfl Boeú rtoi- V It) R 'C ) M fUD K FHHUt- »*** Ypkyi s N PR" fíKon N / UWÚI LoUU N Ý / LOÚI Ouu PK f?R 8 'fí L Jf ÍTIR MflOUR 7 L ft M "D í > fí S T E 1 U 8 R r '0 r U R L-=> B«r«R H E N D I IJtCltfiK EtfRK 1 M iifm 'o F í Ff- ■'fí T T YÖKofí ♦ rtiun 'l fÚH| R r '0 M R T M 'fí P> 1 Y£RK- FiCCI r "D N 4 R b N M fí -ó s '£ R —? N í -9 U R 'R L N ft \ „ <m< 7 fí MflHUl- S K U L 1 Q 5 ff K IflMDI IK.IT. 5 L 'o ÚT- HM- R íi vMM nrKc- VCHK KUtK irurn R Ý K l ^ r K K i*iKn LHC.T ÍPlL. 5 N 7 £> ft V'LL' UR /X [i D '0 iN £ 'fí í ILL- VIRKI H L'/K dUDlR n R A= ÓtfiDI muK ff R 4- /'// // Ú T- LIM- !«. iTurui >*'*»i A\ 1IHW0I| l * WH FliKfl futm H F L fí L 5 VLV.K- FKFlt úþot- 0 3 Æ R L'/F- fÆRI P fí R Kl ft 5 tff'í ? R. Æ ■Ð 1 HflFN I* P fH- IN6« N E 1 r n sryHi» íflM* Kf ÍTIn V Æ S H K-CVK Tfuh- TIÚ/fíD H K YCULfí KvtH- ’ff r iKfU/y UM ' p b l . a N w MVHT M 'fí i>1» M - jHlzl 'O S /t L L.ÖU s Æ r / : K B K K 1 N ft mmr LflUN 'D L 7 ? r V ■K fí u P JS* r R a. N fí f> u R RNP- VflRP krvdp 5 r U N fí HfP- LBTH- £ IK ÍK.tr. a ■dO- m úu 1 R 1» geui* R 1 S H ’fí R ER a l K SoRP SK.iT. 5 K ft R N S rív«- IN F ú / Al H£/Mir IMÚI 'o r fí N B L ** / L N1 sro'tfi trjt- {+ 'ft l Króitf D/EM/ ff 4 ft K/L- flHNfl Æ X 7 . fí N N H Teivnt U X fí N N RCiTÓF MUV ff F fí L L UÚV Kné H 'ft JVND Y£f?U 'fí L 4é»' r 'fl L $KYIí- FlC«iU ft U 4 U N viw tfe m U tfiBflu m ifh N 'ft N "0 s UtfDK- flPI KKDH4 r fí L M 'fl Ð 1 VLL- L'ID- n n u N f ? Ð U R H U P P s ✓ L Ft L L fí L I T L fí R SK- R fl t t Cl r S#* R U m 'fí 4 'H 5 K ft Ú T u N\ f> ltifl F • R 7 Fjöldi lausna barst að venju. Augljóst er af þeim að margir — raunar flestir þeirra, sem ekki voru með rétta lausn — áttuðu sig ekki á kvk.-orðinu ráfa, í flt. ráfur, sem merkir hið sama og kk,- orðið rati, í flt. ratar. Dregið var um verðlaunin. Þau hlutu: Kr. 1(100.00: Arndís Steingrímsdóttir, Nesi í Aðaldal. S.-Þing. Kr. 500.00: Þóra R. Asgeirsdóttir, Hringbraut 92, Reykjavík og María Jó- hannsdóttir, Ósi, Reyðarfirði, S-MúL NAUTAAT Framhald af bls. 1 veiðihunda af „mastiff-hundakyni frá Pýi'eneaf jöllum, alda með kross-kyn- bótum í spænskum hundauppeldis- stöðvum, sem notaðar voi-u við uppeldi nautanna. Sérkenni þessara hunda varð afturhallandi trýni og nasir og útstæð- ur neðri kjálki, og gerði þetta einkenni hundsins það að vei-kum að haim gat andað óhindrað, þó hann héngi tímun- um saman í nautum sem ekki þóttu nógu fjörmikil eða grimm. Þetta var gert til að reyta nautin til reiði og egna til illsku og stæla baráttukjark þeirra. B annfæringarhótun páfa olli því að smám sama gerðust allróttækar bylt- ingar á sviði nautaats og aðallinn hætti að mestu að taka þátt í leikjunum, en eftirlét slíkt undirmönnum sínum, sem margir gerðust hreinir atvirmumenn í faginu. Lensurnar hurfu og í stað þeirra var tekið að nota sverð í bardögum við dýrin. Einn hinna fyrstu frægu „espad- as“ (sverðsmaður) eða matadora var Francisco Romero fxá Ronda í Anda- lúsíu (um 1700). Hann hóf notkun „estoque" (sverðið sam enn er notað við endanlegt dráp dýrsins) og „muleta“ — lítinn dúk, hjartalaga, úr rauðu klæði (sirs), sem brotinn er að endi- löngu um 56 sm. langt prik, sem notað var jafnhliða sverðinu. Á tindi frægðar sinnar teiknaði hirrn heimsfrægi lisit- málari Francisco de Goya y Lucientes sérstakan einkennisbúning handa at- vinnumatadorunum, sem aðeins er not- aður við minningarhátíðir eða „gala“- sýningar (Coi-ridas Goyescas). Nauta- banarnir notuðu net til að halda i skefjum hári sínu, sem náði á herðar niður, og seinna fóru þeir að binda það í hnút í hnakkagrófinni (coleta) til hægðarauka. Þessi hárgreiðsla, ef svo mætti kalla, breyttist í núverandi „mona y coleta“, stutta fléttu í hnakk- anum sem vafin er litlum satín-dúk, og varð þetta kennimerki atvinnumanna í listinni. Kostnaður og ekla á hinu rétta mann- ýga nautakyni kom í veg fyrir að nauta- at festi rætur í Frakklandi og á ítalíu (í Suður-Frakklandi eru þó stöku sinn- um háð einskonar nautaöt, sem þó þola ekki neinn samanburð við hin spærxsku). Portúgalar halda erm sínar „rejonedas" með s.k. „cabaleii'os en praca“ (lensumenn ríðandi vel æfðum hestum af úrvalskyni) ásamt „forcados“ eða „pegadores“ og „salteadores" (sem hlaupa stangarstökk yfir naut í áhlaupi) og er þetta fyrirbrigði kallað portú- gölsk „correida". Ennfremur vefja þeir horn nautsins púðum eða íesta málm- kúlur á oddirxn. Aldrei er úthellt blóði, hvorki manna né dýra, í slíkum „sirk- ujs“, og á þetta varla annað en nafnið skylt við eiginlegt nautaat. Eftir tilkomu járnbrauta fjölgaði stór- lega nautaatssvæðum á Spéni og í Suður-Ameríku, þar sem „conquistador- ax-nir“ spærxsku hófu iðkun nautaats snemma á 16. öld. Á Spáni eru nú 400- Framhald á bls. 12 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. janúar 1967.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.