Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1967, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1967, Blaðsíða 7
 'So//W f&'s/úi fíú. -wc /rte/r/otfru 'a / s<zWt//rdu 9/z a//t &&?frty/f/X . //9fi/<l //otaó fxá. f>9/ úá óÓ/i/7 /af/jf Sólin er f um 150 milljón knx fjarlægð fra jörðinni, og er sól-. arljósið um 8 mínútur á leiðinni til jarðar. Sólargeislinn fer sem svarar rúma 7 hringi á einni sekúndu umhverfis jörðina við ijpið- baug. Flaug sem færi með 1000 km hraða á klukkustund, dag og nótt, yrði um 17 ár á leiðinni til sólarinnar. Sólin er miðdepill sólkerfis- ins, en ekki jörðin eins og einu sinni var talið. Miðað við aðr- ar sólir er hún „aðeins“ af með- alstærð, en svo stór er hún, að væri hún hol að innan kæmust rúmlega miiljón hnettir á stærð við jörðina inn i hana. Sólin snýst um sjálfa sig og er um 25. daga að ljúka einum hring — vísindamenn komust að því með því að fylgjast með só'blettum. Varast ber að hor'fa beint í sól með berum augum — enn hættulegra er að horfa í sól með kíki. Allar lifandi verur eru háðar hita og birtu sólarinnar að meira eða minna leyíi. Orkumyndun sólarinnar er svipaðs eðlis og þegar vetnis- sprengja springur. Lofttegund- in vatnsefni (H) breytist í loft- tegundina helíum (He) við hita- stig, sem er margar milljón. gráður á Celsíus. Brot af þeirri orku, sem sólin sendir frá sér út í geiminn, nær til jarðarinn- ar sem sýnilégt ljós og ósýni- leg geislun. Yfirborð sólarinnar er ^lið vera að jafnaði um 6000 gráð- ur á Celsíus, en 10—2C milljón gráður í kjarnanum. 22. janúar 1967. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.