Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1967, Qupperneq 13
NID NÝJA PERSOHUGERVI
Hvað var það sem í raun-
inni gerðist þegar Bítlarnir
geistust fram á sjónarsviðið?
Hvað hafði verið að þróazt und-
ir niðri í Liverpool, sem svona
skyndilega brauzt út me'ð því-
líkum krafti að undir tók í öll-
um hinum siðmenntaða heimi?
Aldrei í sögu mannkynsins hafa
nokkrir haft eins víðtæk áhrif
á æskufólk eins og The Beat-
les hafa gert. Hrifningin og að-
dáunin leynir sér ekki hvar sem
þeir koma fram. Þeir hafa skap-
að nýjan pop-heim, nýja tízku,
nýja pop-músík. Þeir hafa gert
það sem aldrei fyrr hefur ver-
ið gert í sögu tónlistarinnar:
skapað tónlist þar sem eitt og
sama lag er hægt að útsetja í
jazz, beat eða fyrir sinfóníu-
hljómsveit. Engar hljómsveitir
hafa enn jafnazt á við þá hvað
frægð snertir og hlutlaust virð-
ist það sanngjarnt a'ð þeir skipi
þann sess sem þeir nú skipa í
tónlistarheiminum.
Bítlarnir hafa nokkuð verið
bendlaðir við eiturlyf nú und-
anfarið, þó ekki alvarlega, en
það og hið tvíræða orðalag í
sumum lögum þeirra, eins og
t. d. „A Day in the Live“,
vekur óróa hjá mörgum aðdá-
endum svo maður tali ekki um
áhyggjufulla foreldra. „Öll Stg.
Peppers-platan er löðrandi í
eiturlyfjum", eins og ritstjóri
einn hjá þekktu ensku músík-
tímariti komst að orði. Annar
álíka þóttist geta afhjúpað
ástand trommarans Ringos Star
þegar hann syngur: „I get high
with a little help from my
friends". Jafnvel „Lucy in the
Sky with Diamonds" vekur
upp eiturlyfja-ofsjónir og upp-
hafsstafir titilsins L S D þykja
ótvírætt merki þess að þama
sé LSD-lyfið á ferðinni. En eitt
er augljóst, að þegar Bítlarnir
tala, hvort sem það er um eitur-
lyf, stríðið í Víetnam eða Jesúm
Krist, hlusta milljónir og draga
siðan ályktanir, sem margar
hverjar vilja verða rangar.
í rauninni, þrátt fyrir alla
frægðina og auðinn, lifa Bítl-
arnir óþægilegu og erfiðu lífi.
Einkalíf þeirra er reynt að op-
inbera eins og kostur er á. Að
öðru leyti lifa þeir hátt, eða
a. m. k. eins og búast má við
miðað við þær tekjur sem þeir
hafa af plötuútgáfu, kvik-
myndaleik, sjónvarpsþáttum o.
fl.
John, Ringo og George, sem
allir eru kvæntir, eiga stór hús
í Weybridge, sem er um 40
mín. akstur frá London. John
og kona hans Cynthia, sem er
fyrrverandi listakona, ásamt
syni þeirra Julian, búa á stórum
herragarði og að sjálfsögðu er
sundlaug í garðinum. Eins og
hinir Bítlarnir er hann mikið
gefinn fyrir iburð og giæsileika
og ber heimili hans glöggan
vott um það.
Rétt fyrir neðan hæðina þar
sem hús Lennons stendur, er
„Sunny Heights“, 15 herbergja
„villa“, þar sem Ringo Star
býr á samt konu sinni Maureen
og tveim sonum, Zak tveggja
ára og Jason sem er aðeins
rúmlega mánaðar gamall. Mau-
reen, sem áður var hárgreiðslu-
stúlka í Liverpool, giftist Ringo
fyrir rúmlega tveim árum. 1
frístundum sínum koma Bítl-
arnir gjarna saman á heimili
Ringos og ræða þar sín áhuga-
mál. Ringo hefur komið fyrir
ir nokkrum skemmtilegum
bjálkakofum í hinum víðáttu-
mikla garði sínum og inni í
húsinu er mjög vandlega gerð-
ur bar sem ber nafnið „The
Flying Cow“, eða „Kýrin fljúg-
andi“, eins og það mundi koma
út á íslenzku.
George Harrison, sem er
yngstur þeirra, 24 ára gamall,
kvæntist fyrirsætunni Patty
Boyd snemma á s.l. ári. Þau
búa í stóru hvítu húsi nálægt
þeim John og Ringo. Með hjálp
vina sinna hefur George mál-
að nokkrar furðulegar myndir
á útveggi húss síns. Þar má
Maureen og Ringo með soninn
Zak.
líta rósir, stjörnur, tré og menn
í öllum mögulegum litum. Hann
æfir sig mikið á gítarinn þegar
hann er heima og í tónlistarher-
berginu hefur hann 12 mismun-
andi gerðir af gíturum.
• Paul McCartney er sá eini af
þeim sem enn hefur ekki kom-
izt í tæri við hjónabandssæluna.
Hann kann bezt við ys og þys
stórborgarinnar og býr þar af
leiðandi í London. Uppáhalds
stúlkan hans heitir Jane Asther,
en hún er 21 árs og leikkona að
atvinnu. Paul er mikill sam-
kvæmismaður og það skemmti-
legasta sem hann gerir, fyrir
utan að semja og syngja lög, er
að fara í party og aka hinni
bláu „Aston Martin DB5“ bif-
reið sinni.
The Beatles halda mikið sam-
an. Sérstaklega náinn vinskap-
ur og skilningur á vandamálum
hvers annars hefur eflaust átt
mikinn þátt í velgengni þeirra.
Og engan skal furða. Þeir eru
ekki einungis tengdir saman
sem ein hljómsveit eða að þeir
sigruðu heiminn sem ein heild,
heldur eru þeir allir sprottnir
upp úr sama jarðveginum. For-
eldrar þeirra voru láglaunafólk,
fólk sem ekki velti milljónum
eins og þeir sjálfir gera nú.
Paul, sem er sonur baðmullar-
kaupmanns, og John, sem ólst
upp hjá frænku sinni eftir að
faðir hans hafði yfirgefið fjöl-
skylduna, voru farnir að leika
saman þegar árið 1955. George,
faðir hans er strætisvagnabíl-
stjóri, slóst í hópinn árið 1958.
Tveim árum seinna hittu þeir
svo Ringo (fæddur Richard
Húsið sem John og Cynthia búa í.
„The Cream" og „Jimi Hend-
rix Experience" eru hljóm-
sveitir sem oft eru nefndar í
sömu andrá, enda kannske ekki
furða þar sem þeim svipar
hvorri til annarrar bæði hvað
útlit og hljóðfæraleik snertir.
Þessar hljómsveitir hafa ein-
skorðað sig við ákveðna tegund
af „blues musik" sem um þess-
ar mundir nýtur sívaxandi vin-
sælda bæðí í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Báðar eru
hljómsveitirnar skipaðar aðeins
þremur mönnum — gítar, bassi
og trommur —, þeir eru svip-
a'ðir í klæðaburði og allir „tú-
bera“ þeir á sér hárið, sem við
fyrstu sýn gerir þá heldur
ógeðslega á að líta.
En hvað með útlitið. Þetta
uppátæki þeirra sem og önnur,
virðist falla hinni óstýrilátu nú-
tíma æsku vel í geð og sigla
þeir nú hraðbyri upp á stjörnu-
himininn, sem ef til vill er ekki
síður að þakka góðum hljóð-
færaleik en allt eru þetta úr-
vals hljómlistarmenn.
Þessar myndir voru teknar
um svipað leyti á Lundúna flug
velli, en The Cream voru þá að
leggja upp í átta vikna hljóm-
leikaferð til Bandaríkjanna og
Jimi Hendrix að koma þaðan
eftir þriggja mánaða dvöl þar.
Starkey) sem er sonur hafnar-
verkamanns.
Foreldrar þeirra voru allir
sannfærðir um að þeir yrðu
aldrei góðir hljóðfæraleikarar.
„Ef Paul hefði hlustað á mig“,
sagði Jim McCartney, „hefði
hann orðið kennari". En Paul
hlustaði ekki á föður sinn, tón-
listin átti hug hans allan og
því fór sem fór. Það blés held-
ur ekki byrlega hjá þeim í byrj-
un og foreldrarnir hömruðu sí-
fellt á því að þetta tónlistar-
brölt þeirra væri aðeins sóun
á tíma. Þá var það sem þeir
hittu Brian Epstein. Brian, þessi
hugmyndaríki atorkumaður
opnaði hliðin að Liverpool og
ruddi þeim braut til heims-
frægðar. Hann skipulagði síðan
starf þeirra þangað til að hann
hné í valinn, löngu fyrir aldur
fram, í ágúst mánuði s.l.
Hvað nú tekur við er ekki
auðvelt að geta sér til um.
Víst er að dauði Epsteins mun
koma til með að hafa mikil
áhrif á framtíð Bitlanna.í fyrri
hluta september ferðuðust þeir
um Suður-England og léku í
sjónvarpsþætti „Magical Mys-
tery Tour“, sem ráðgert er að
sjónvarpa um heim allan í
kringum næstu áramát. Þeir
hafa nú ákveðið að taka
tveggja mánaða frí og fara til
Kashmir sér til hvíldar og and-
legrar heilsubótar. Þar munu
þeir stunda dulspekinám undir
handleiðslu Maharishi Mahesh
Yogi en þann furðulega mann
hittu þeir meðan þeir dvöldust
í Wales s.l. sumar. „Furðulegir
menn“, segir fólk og hristir
höfuðið. En er þetta ekki skyn-
samlegasta lausnin fyrir þá
þegar þeir nú hafa misst sinn
tryggasta vin? Er ekki hyggi-
legast af þeim, nú eins og sakir
standa, að hvíla sig frá um-
heiminum og njóta friðar hátt í
fjöllum Himalaja? Ef til vill eru
þetta endalok The Beatles, ef til
vill eiga þeir eftir að gera eitt-
hvað enn stórbrotnara. En eins
og George Harrison sagði:
„Hvað frarntíðin ber í skauti
vitum við ekki, en okkur finnst
nú að við séum rétt að byrja.“
8. október 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13