Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1967, Page 14
BÍLLINN
Framhald af bls. 13
að minnsta kosti börnin. Nú
er Ford jafnvel kominn með
annan slíkan til að keppa við
Mustang, þ. e. Cougar frá
Mercury. General Motors
svaraði með Chevrolet Cam-
aro, Chrysler svaraði með
Dodge Charger og nú loks
American Motors með Javel-
in. Þetta eru allt vel teikn-
aðir bílar og augljóslega und-
ir ítölskum áhrifum. Þeir
marka stefnuna og nú má
sjá á árgerðunum 1968 veru-
leg áhrif á „standard“ gerð-
unum frá þessum sportlegu
útgáfum.
RABB
Framhald af bls. 16
með þessum kostnaði, sem er án
efa þýðingarlaus fyrir fyrirtœki
þeirra, vœru þeir þrátt fyrir allt
að stuðla að túrisma á íslandi;
stuðla að því að útlendir farþeg-
ar með Flugfélaginu hefðu eitt-
hvað þokkalegt handa á milli, sem
þeir ef til vill tœkju með sér
heim. Það vœri út af fyrir sig
elskulegt sjónarmið og óeigin-
gjarnt. En það broslega er aðeins
þetta: Það yrði hlegið að hverj-
um einasta íslendingi, sem kœmi í
fyrirtœki og byði þvílika skil-
mála. Það kæmi fyrir sama, hvort
það vœri venjulegur Pétur eða
Páll eða menningarviti eins og
Ragnar í Smára. Mér er sagt, að
erfiðlega gangi að selja auglýsing-
ar í sum innlend rit, sem prýði-
lega eru úr garði gerð; á slíka aug-
lýsingasölu er œvinlega litið sem
betl. En fínn útlendingur er auð-
vitað ekki að betla og auk þess
mundi hann halda, að við vœrum
ekki gestrisin, vœri tilboði hans
neitað. Ennþá er gamla minnimátt-
arkenndin við lýði. Daninn, sem
árlega kemur hingað til að „plata
sveitamanninn“, hefur orðið millj-
óneri á því að færa sér i nyt þess-
ar gamalgrónu og „undirdánugu“
tilhneigingar landans. Vonandi að
honum verði tekið með tilhlýði-
legu bukki, þegar hann kemur til
að innheimta aurana sína í sjopp-
um og trésmíðaverkstœðum frá
Súðavík til Hornafjarðar.
Gísli Sigurðsson.
Frá Görðum til himnaríkis.
Fátæk kona kom til sr. Áma Helga-
sonar, og spurði hvort henni mundi vera
frjálst að tína sér ögn undir pottinn í
hrauninu svo sem með hans leyfi, þar
sem hann ætti ítak í staðarlandinu. „Ójú,
kindin mín, því ekki. Ætli ég hafi marga
viðaranga með mér frá Görðum til
himnaríkis."
Önnur gömul kona spurði hann, hvort
veröldin færi ekki ávallt versnandi. ,,Ö,
ekki held ég það, ég hugsa hún hjakki
við þetta,“ svaraði sr. Árni.
Hindúa-spakmæli.
Góð móðir tekur fram hundrað skóla-
kennurum.
Eftirlát kona ræ’ður yfir manni sínum.
Þrennt er það í heiminum, sem alltaf
kemst leiðar sinnar: Konan, eldurinn og
vatnið.
N. Kbl.
Nýjar
erlendar
bœkur
HANDBÆKUR:
The Penguin Dictionary of the Theatre.
John Russell Taylor. Penguin Books
1966. 5/—.
í þessari bók geta menn fræðzt um
leikrit, leikara, leikritaskáld, gagnrýn-
endur, leiklistarnám, leikhús, sviðs-
tækni, leiktjaldager'ð og margvislegt
fieira. Þetta er handhæg bók og er ætl-
að að snerta flest það, sem leiklist varð-
ar.
GALDRAR:
Witchcraft Pennethorne Hughes. Pen-
guin Books 1965. 5/—.
Höfundur telur galdratrúna leifar
fornra trúarbragða, sem hafa tapað inn-
taki sinu og drabbað niður í andatrú og
kukl. Hann rekur sögu galdra allt frá
miðöldum, ofsóknarbrjálæðið á 17. öld
og viðbrögð nútíma manna við galdri.
Þetta er lipurlega skrifuð bók, henni
fylgir bókaskrá, þar sem má finna betri
rit um efnið, auk þess er registur.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Siguróur Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstj. fltr.: Gísli Sigurðsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavik
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
19. nóv. 1967