Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1967, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1967, Blaðsíða 15
„ALLT ER FERTUGUM FÆRT Einhverjir þeir furðuiegustu menn, sem lagt hafa fyrir sig hljóðfæraleik eru én efa hin- ir bandarísku MOTHERS OF INVENTION .Meðlimoir hljóm- sveitarinnar eru nokkuð komn ir til aldurs sín.s, eins og raun- ar sjá má á myndinni eða allt að fertugu, og eru þeir hinir undarlegustu bæði í orðum og tiltekturn. Nú ekki alls fyrir löngu héldu þeir til Englands til hljómleikahalds og annarra afreka. Sá þeirna, er vakið hef ur hvað mesta athygli er for- vígismaður hljómsveitarinnar FRANK ZAPPA, en hann hef- ur meðal annars látið birta mynd af sér í víðlesnu tíma- riti, sitjandi á klósettskál, kviknakinn og önnum kafinn gjörða sinna. Á áðurnefndum hljómleikum var leik þeirra og sviðsframkoimu ágætlega tek- ið af áheyrendum þó sumum þeirra hafi fundizt klúryrði Franks keyra um þvembak á köflum. Skrípaleikurinn í Háskólabíói Miðvikudaginn 8. nóvember hópuðust reykvískir unglingar saman í Háskólabíói til að sjá og heyra íslenzk átrúnaðargoð sín leika „listir“ sínar. Saimkoma þessi, sem sumir vildu kalla hljómleika, ein- kenndist af s'kipulagsleysi, suði og braki í mögnurum, hlaup- andi mönnum yfir sviðið í miðjum lögum og skrípalátum. Á „hljómleikunum" komu frarn ýmsar hljómsveitir, en engin þeirra verður talin í hópi hinna beztu hér á landi. Hljóm sveitin SÁLIN, með Sigurð Árnason í broddi fylkingar, kom einna bezt út úr kvöldinu en Sigurður er einn þeirra fáu manna hérlendra sem ná hin- um réttu tökum á áheyrendum ■ Ljósm.: K. Ben. SPENCER DAVIS. Lítið sem ekkert hefur heyrzt til Spencer Davis upp á síðkastið og má því ef til viil um kenna missi þeirra á snjall ajsta manni hljómsveitarinnar Steve Winwood sem yfirgaf hljómsveitina fyrr á þessu ári en Steve sem er afburða snjall hljóðifæraleikari og lagasmiður hefur nú ákveðið að ganga listabrautina með sína eigin hljómsveit. Að sjáliflsögðu varð þetta uppátæki Steve’s mikið áfall fyrir hljómisveitina en Spencer lagði ekki árar í birt heldur stofnaði nýja hljóm- sveit. Hin nýja „Spencer Dav- is Gnoup“ hefur nú nýlega ver ið á hljómJeikaferðalagi í Bandaríkjunum sem þótti tak- ast með ágœtum og um þessar mundir vinna þeir félagar að nýrri L.P. plötu sem væntan- leg er á markaðinn á næst- unni. og fá þá til að taka virkan þát’t í því sem hljómsveitin er að giera. Dúmbó sextett, sem kiom þarna fram án Sigursteins Hákonarsonar, stendur alltaf fyrir sínu svo og Ernir þó ekki sé hægt að eegja að þeir hafi fallið inn í kramið þetta kvöld því að þó flutningur laga sé með ágætum verður ekki sagt 'að hljórhsveitin sé beint til þess fallin að leika á hljóm- leikum. Eftir að hafa orðið vitni að atburðum sem þessum er sann arlega ástæða til að vona að slíkt eigi ekki eftir að endur- taka sig og eru það vinsamleg tilmæli til þeirra hljóðfæraleik ara sem í framtiðinni eiga eftir að standa að slíkum hljómleikum að stilla ekki hljóðfæri sín á meðan kynn- irinn er að tala, því að til hvers er að hafa mann til slíkra starfa ef ekkert kernst til skila af því sem hann seg- ir? LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15 19. nóv. 1967

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.