Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1969, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1969, Page 1
Bráðlega hefjast í einu kvikmyndahúsanna hér sýningar á bandarísku kvikmyndinni Bonny og Clyde. Þessi mynd hefur vakið athygli víða um heim, en ástæða er til að benda á, að þar er mjög um skrumskælingu á veruleikanum að ræða. Myndin reynir að gera þau Bonny og Clyde að hetjum og hefur þetta ásamt með ýmsu öðru kynt undir þeirri aðdáun á ofbeldi, sem víða á sér stað. Sannleikurinn var sá, að Bonny og Clyde voru lítilsgildar persónur siðblindir giæpamenn og réðust gjarnan á garðinn þar sem hann var lægstur. Hér fer á eftir fyrri hluti frásagnar, sem lýsir þeim eins og þau voru. EFTIR LEW LOUDERBACK BONNY OG CLYDE Geðveikir glæpamenn gerðir að hetjum í ölllum þjóðfélögum eiga af- brot sér stað í einhverri mynd. Það er víst staðreynd, sem menn verða að horfast í augu við. Yfirvöldin reyna af fremsta megni að taka í taumana, en tekst misjafnlega. Stundum eru þau ekki undir það búin að bregðast nógu skjótt eða rétt við, sérstak'lega þegar afbrota- menn velja sér nýjar aðferðir til iðju sinnar. Svo mun hafa verið á fyrstu árunum eftir 1930 í Bandaríkj- unum, þegar glæpafólk á við Clyde Barrow og Bonnie Park- er geystist um þjóðvegi í Suð- urríkjunum í stolnum bílum, rænandi og myrðandi saklausa borgara og bændafólk. Til dæm is höfðu lögregluyfirvöld ekki yfir talstöðvarkerfi að ráða og glæpamenn þurftu varla annað en klippa sundur símastrengi til að komast undan á flótta. Al- ríkislögreglan FBI var næstum óþekkt stofnun fyrir 1930, en árið 1935 var hún orðin alkunn og fór af henni mikið frægðar- orð. Árið 1936 má segja að henni hafi tekizt að ráða niður- lögum þjóðvegamorðingjanna, sem höfðu leikið lausum hala frá 1930. Clyde Barrow var vel að sér um allt er laut að skotvopn um og skotfimi hans var við brugðið. Sagt var að lagskona hans, Bonnie Parker hafi getað hæft dílana í spi'lum á 20 feta færi en Clyde getað klofið spil að endi'löngu, ef það væri reist á rönd og skotið hausinn af dúfu á flugi. Eða svo sögðu munnmæli. Byssu sína bar hann í vasa með rennilás í hægri buxna- skálminni og hann stærði sig oft af því, hversu fljótur hann var að munda hana. Glæpahyskið, sem kennt var við Clyde Barrow fór með rán- um og morðum um 5 ríki Banda ríkjanna, áður en réttvísinni tókst að ráða niðurlögum þess. Hánsfengurinn var aldrei mik- ill, mestur varð hann 1500 dal- ir, enda valdi þetta fólk sér benzínstöðvar, kaffistofur við þjóðveginn og banka í smáþorp um til ódæðisverka sinna. Það var á stöðugum flótta, úr einum stað í annan, akandi stefnulaust. . . stundum í hringi . . . með það eitt að marki að lenda ekki á þeim stað, sem þvi var með réttu ætlaður. Hvergi átti það sér samastað. Heldur ekki með öðrum glæpasamtök- um. Þar var Clyde Barrow líka útskúfaður, álitinn morðóður og vitstola og sjálfsagt að afhenda hann lögreglunni. Nú eru nöfn þeirra Clydes og Bonnie á hvers manns vör- um, enda þótt nöfn annarra stórglæpamanna frá sama tíma séu að mestu gleymd. Ástæð- una má rekja til kvikmyndar- innar „Bonnie og Clyde“, sem framleidd er að kvikmyndafé- lagi Warner-bræðra. Myndin, sem þar er brugðið upp af Clyde og fylgikonu hans höfðar í dag til fjölda íólks, sérstaklega ungs fólks. Kvik- myndin sýnir ráðvillta unglinga á stöðugum flótta. Þau hrekj- ast frá einu ódæðisverkinu í annað í örvæntingarfullri leit að hæli. „Þegar við lögðum af stað, hélt ég að við værum að fara eitthvað, en við erum allt- af bara að fara“, er Bonnie látin segja í myndinni. Þau eru taugaveiklaðir ráðleysingjar, með sterka glæpahneigð og vits muni á iágu stigi. Ný andlit, frábrugðið steingerðri mynd Hollywood-glæpamannsins. At hafnir þeirra vekja hrylling og viðbjóð. Þau eiga að vera af- kvæmi þjóðfélags, sem er veikl- að og sinnulaust í greip krepp- unnar miklu. Fornlegar bílagerðir, fé- snauðir bankar, vonleysi í svip manna. . . þetta á að lýsa aldar- farinu. Sömuleiðis tómstunda- iðja hjúanna. Þau hlusta á Eddie Cantor syngja í útvarp- inu, spila teningaspil og eru stöðugt að taka ljósmyndir hvert af öðru með Kodak- kassavél. Undir niðri venjulegt fólk, en ráðlaust, ringlað og á barmi örvinglunar. Allt þetta getur átt sér ein- hverja stoð í raunveruleikan- um. Bonnie og Clyde hafa senni leiga verið þessu lík. Munaðar- lífi þeirra og afbrigðilegu ásta- lífi eru líka gerð nokkur skil í myndinni enda þótt hinu sanna sé nokkuð vikið við. Hvað atburðarás snertir, hafa kvikmyndahöfundarnir fylgt sann'leikanum nokkurn veginn, sleppt þó ýmsu og breytt smávegis formsins vegna, En mörg atriði eru nákvæm lýs- ing á því, sem gerðist. Frávik er þó algert, þegar kvikmyndin gefur í skyn, að Bonnie og Clyde hafi fetað í fótspor Robins Hood og haldið hlífiskildi yfir fátæklingum í Suð-vestur-ríkjunum. Það er engan veginn rétt. Aðrir glæpaforingjar, t. d. Dillingar og Pretty Boy Floyd rændu þá ríku en létu þá fá- tæku í friði. Öðru máli var að gegna um Bonnie og Clyde. Það var einmitt fátækt almúga- fólk sem varð fyrir barðinu á þeim. Þau myrtu það urrusvifa- laust. Allir óttuðust Clyde Barr ow og lið hans og þá ekki sízt óbrotið bændafólk, sem átti það helzit á hættu að mæta homum á förnium vegi. Þess vegna finnst mörgum Bonnie og Clyde ekki eiga heima í röðum þjóðsagnaper- sóna á við Jessie James og Billy the Kid. Samt hafa þau Framh. á bls. 14 Bonny Parker og farartækið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.