Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.1969, Side 8
Fyrir rúmu ári var haldið
upp á 10 ára afmæli mikillar
nýjungar í sögu farþegaflugs-
ins — fyrsta farþegaflugsins
meS þotu. Það var 26. okt.óber
1958 að Pan American World
Airways tóku Boeing 707 til
notkunar í reglulegu áætlunar
flugi. Með því hófst nýtt tíma-
bil aukins hraða, aukinna þæg-
inda og aukins öryggis í flug-
flutningum.
Svo stórstíg er flugtæknin, að
nú þegar sjá menn fram á á-
hrifamikil þáttaskil í þróun far
þegaflutninga og vöruflutninga
reyndar líka. Boeing-verksmiðj
urnar hafa nú framleitt margar
flugvélar af gerðinni Boeing
747, en hún er stærsta farþega-
flugvélin, sem smíðuð hefur ver
ið til þessa. Þegar flugvélar af
þessari gerð eru komnar í notk
un, má búast við jafnvel enn
meiri breytingum og víðtækari
áhrifum á flugflutningakerfið
heldur en þegar farþegaþotur
hófu ferðir.
Auk Boeing 747 erv. tvær aðr
ar þotur, sem miklar vonir eru
bundnar við. Þær eru McDonn-
el Douglas DC-10 og Lockheed
L-1011, og eru þessar tvær oft
kallaðar loftvagnar. Nokkrir
eiginleikar eru öilum þremur
þotunum saimeigiiniliegir: Fyrstu
ber að nefna hreyflana, sem eru
af svonefndri hverfilrellu-gerð
(„turbofan"). Þeir eru meðal
þeirra kraftmestu, serr smíðaðir
hafa veirið. Fiuigihiraðinn veröur
meiri en eildri þotia, og atlur
öryggisútbúnaður verður afar
fullkominn. Þrátt fyrir stærðina
geta allar þesisar þotur moitazt
við þær flugbrautir sem til eru.
Skrokkur þeinra allra er mjög
víður cng rúmgóður, enda verð-
ur fjöldi farþega betta frá 250
til 500.
Til samans munu þessar
þrjár þotur — og væntanlega
evrópskar systur þeirra — hafa
mairgvísileg áhrif ekiki aðeins
á flugsamgöngur heldur einnig
á allt efnahagslífið. Fyrst er að
telja það vandamál, sem ber-
sýnilegt er stóru flugvöllunum,
einkum í Bandaríkjunum, en
það er biðraðir flugvéla á jörðu
niðri og sægur þeirra í loftinu
fyrir ofan stórborgirnar. I öðru
iaigi njóta farfþagarnir áður
óþeikktra þægimda. í þriðja laigi
geta fluigfélögin búizt viið meiri
hagnaði af rekstri hverrar flug
vélar. Þettia kann að boðia iægri
flugfargjöld og þar af leiðandi
fleiri farþega, en vitað er, að
þeiir eru margir, sem aldrei hafa
tekið sér fiugfar. Finnig má
geta þess, að þrátt fyrir hina
miklu orku hreyflanna, verða
þeir ekki nærri því eins há-
vaðasamir og eldri gerðir.
Fynst þessana þriggja tiil að
hefja reglubundið farþegaflug
verður Boeing 747, þótt hún
hafi reyndar tafizt vegna þess
að hreyflarnir voru ekki tilbún
ir. Boeing 747 eir fjögurra
hreyfla ferlíki næstum því 300
tonn að þyngd eða tvisvar sinn
um þyngri en stærstu fyririrenn
ainar hemnia frá Boeiinig, í henni
verða sæti handa 300 til 490
farþegum, en innréttingar
verða nokkuð breytilegar.
McDonnel Douglas DC-10 og
Lockheed L-1011 eru báðar
þriggjahreyfla. Tveir hreyfl-
anna eru festir undii vængina
og sá þriðji er ofan á skrokkn-
um aftast. Loftvagnarnir eru
minni en Boeing 747, ef það er
þá á annað borð hægt að nota
orðið lítill um flugvélar, sem
eru þyngri og stærri en þær
farþegaþotur, sem nú eru al-
gengastar. DC-10 o g L-1011
vega um 170 tonn og flytja fré
250 til 350 farþega. Áætlað er,
að þær verði teknar í notkun
árið 1971.
Þoturnar þrjár eru þannig úr
garði gerðar, að þær geta flog-
ið bæði stuttar og langar leiðir.
Boeing 747, sem getur flogið
rúma 12.000 kílómetra í einum
áfanga, var þó einkum ætluð til
langflugs. DC-10 og L-1011 voru
ætlaðar til ferða á stuttum og
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
23. nióveimibetr 10:19