Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.1969, Side 14
Lausn á síðusfu krossgátu
-i O' C. -E? H % s? HB : - HBH 122 * 3 > -p -2* * z* HHIII %
r -V “X) E > r> 73 >■ H w <r- - z ■Z > 3 mm
-- > 73 r X rn -n F' A 73 > E- > ■z 1» 2 ?
V/\ — - m r 7) ~ ■n 31 > <e>\" z r -n > ~L -Tjr-lí ' s.
v/\ > * VA* -• z > > -n Sí 70 Z r > r. <ye£ 1 = (1
* >'■ :Z - H V C U 7» <b 1 r c- % Z -• "1 E > z 2 1 73 <- Á gr
o-. > rn X • * 7« C H V\ ■z. z 2 II - 7» H < m <3' •%.
7) 2 S* <"3 ?: i; ?o w 1 70 ?I? >* z 2 >' 7> > •2. VA E- > r.
r JC * \ 71 c o' 73 r> % lí E > Z > z w 3» *sr z. r £
> 2 70 > rc 5 rs O r\ > Tl 73 c Z vjÁ z 355 vA C- r 3> 7. —.■=. í: 55 r 73
c 73 > -1 b* <» 70 C- X >' !|I X> SÞ - r % m 5 > > fS ? í E — \ ■
70 *) ú > -w r m \ ■2: >- 70 o' íii 31fí z - 'OJ 70 <n > 3 •Z' TV ni llf
X ■ e r* rn < Z 1 c > ■2. r» > »5-£ Jt | VA >* 73 > >
70 x: Z. > P' >• \ 70 c JF' z. - 2. 70 •< * \A 33 z- 2 J3 - H t) -Q ” 5
ENN stendur gamla Iðnó og spegl-
ast í vatnsjleti Tjarnarinnar á góð-
viðrisdögum, en endurnar koma
þar uppað bakkanum og bíða eftir
brauðmolum, sem öðru hvoru
kynnu að falla. Við þennan stað
hefur staðið eitt stórt spurningar-
merki í hugum manna, en fleiri og
fleiri virðast komast að þeirri nið-
urstöðu, að það sé þó guðsþakkar-
vert, að enn stendur hann óskertur.
Fyrir nokkrum árum hugðust
ráðamenn borgarinnar bœta úr
þeim margumtalaða ágalla, að
Reykjavík vantaði ráðhús. Til að
bœta úr því var samþykkt í borg-
arstjórn að hrinda málinu í fram-
kvœmd og í stað þess að efna til
samkeppni um skipulag og útlit
ráðhússins, var nokkrum arkitekt-
um hóað saman og þeim gert að
komast að niðurstöðu. Séu það
menn, sem ekki eru vanir að vinna
saman, er hugmyndin viðlika von-
laus og að fá nokkra málara til að
mála eina mynd. Niðurstaðan varð
eins og búast mátti við og hinu
sviplitla afkvœmi arkitektanna var
valinn staður við Tjarnarendann
eins og allir vita.
Siðan er liðið eitthvað á fimmta
ár. Reykvíkingar fögnuðu ekki
hugmyndinni um ráðhús sér til
handa eins og búast mátti við og
voru margar ástœður tilgreindar.
Algengasta mótbáran var sú, að
óþarft vœri að fylla upp enda
Tjarnarinnar til þessara þarfa og
auk þess væru umferðarvandamál
miðborgarinnar nóg fyrir, þótt ekki
bœttist við sú umferð, sem á hverj-
um degi hlýtur að eiga erindi í ráð-
hús höfuðborgar.
Á þessum árum hafa þœr breyt-
ingar helztar orðið á hugmyndinni,
að borgarleikhús meö aðstöðu fyrir
Leikfélag Reykjavikur hefur verið
teiknað inn i ráðhúsbygginguna. 1
hugum Reykvikinga á Leikfélagið
þennan stað við Tjörnina, þar sem
það svo lengi hefur starfað. For-
ráðamönnum Leikfélagsins mun
hafa þótt það betra en ekki neitt að
fá innbyggt leikhús í ráðhúsið. Ég
skal játa, að mér leizt ekki sem
verzt á þessa hugmynd i fyrstu og
skrifaði eitthvað um hana hér í
blaðið í fyrra. En með tímanum
hefur mér fundizt, að kosturinn vœri
slœmur fyrir báða aðila; alltof dýr
og ef til vill hvorki fugl né fiskur.
Þegar ráðhúsbyggingin var ákveð
in, var áœtlað, að hún mundi kosta
220 milljónir króna. Samkvœmt
fenginni reynslu af áœtlunum og
raunverulegum kostnaði, má búast
við, að 300 milljónir hefðu verið
nœr lagi. Miðað við þœr hœkkanir
á verðlagi, sem orðið hafa síðan
þessi áœtlun sá dagsins Ijós, má láta
sér detta í hug, að ráðhúsbygging-
in við Tjörnina kostaði ekki undir
500 milljónum króna, vœri hafizt
handa nú þegar.
Lítum ögn nánar á þessa ráðhús-
hugmynd. Fljótt á litið virðist svo
sem þar geti orðið til húsa nœsta
takmarkaður hluti af starfsemi
borgarinnar. Eftir teikningunni að
dœma, virðist ráðhúsið geta rúmað
þær skrifstofur borgarinnar, sem
núna eru í Reykjavikur Apóteki og
Tjarnargötu 12. Það er allt og sumt.
Ef það fœr staðizt, sem raunar
er líklegt, að ráðhús fyrir svo tak-
markaðan hluta af umsvifum borg-
arinnar kosti um 500 milljómr
króna, þá nœr þessi bygging ekki
nokkurri átt og breytir engu, þótt
Leikfélagið fengi þar aðstöðu. Ekki
ber víst á öðru en að alltaf sé nóg
við aurana að gera, sem fást frá
útsvarsgreiðendum eða með öðru
móti. Er ekki í rauninni eitthvert
brot af hégómaskap samanvið hug-
myndina um ráðhúsbyggingu? Er
hún ekki að einhverju leyti til
komin vegna þess að fræg ráðhús
eru í borgum eins og Kaupmanna-
höfn, Osló og Stokkhólmi?
Nœr er mér að halda, að við
getum hœglega komizt af án sér-
stakrar ráðhússbyggingar. Nú hef-
ur Höfði verið lagfœrður með tilliti
til þess, að þar geti gestamóttökur
farið fram. Ekki verður séð, að það
sé nein neyðarráðstöfun; Höfði er
glœsilegt hús, ekki sízt að innan.
Samkomusalur borgarstjórnar er í
Skúlatúni 2 og þar eru einnig skrif-
stofur borgarverkfrœðings. Sjálf-
sagt vex mörg starfsemi borgarinn-
ar uppúr sínum húsakynnum eins
og gengur, en þá œtti að vera hœg-
urinn á að byggja einfalda skrif-
stofubyggingu, sem ekki kostaði
morð fjár. Vel má vera, aö það hafi
einhverja vankanta í för með sér
að dreifa skrifstofum borgarinnar í
fleiri en eitt hús. En þess ber að
minnast, að það skapar síður vanda
mál í sambandi við umferð og bila-
geymslu og svo skyldu menn einnig
hugleiða, hvað hitt kostar og hvað
hœgt vœri að gera við það fé.
Enn hefur ráðhúsbyggingin við
Tjörnina ekki formlega verið tekin
af dagskrá. Nú er bezt að kyngja
því, að hugmyndin hafi verið í lak-
ara lagi og hœtta formlega við
hana. En um leið œtti borgarstjórn
að efna til samkeppni um útlit
borgarleikhúss, þar sem Iðnó stend-
ur nú, eða einhverjum öðrum stað
ef betri þykir.
Gísli Sigurðsson.
L
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
23. nó'veimber 1969