Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1970, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1970, Qupperneq 3
sí©ðu, enda þótt hann gerðl sér ljóst að það bjuggu óvenju miklir og skapandi kraftar í drengnum, og það var ekki fyrr en drengurinn fékk ill- kynjað og langvinnt gigtarkast, að hann gaf upp alla von um reglulega skólagöngu. Árið 1881 hefur Edvard Munch nám við listiðnaðarskól ann í Kristianíu, og þar með er framtíð hans ráðin. Nú taka við fáein akademísk námsár, en fljótlega verður hinn opni og hrifnæmi unglingur var við þá strauma og umbrot, sem voru víða í gerjun í listalífinu á þeim árum. Hann gerist ákaf- ur fylgisimiaðajr hneyfingar, sem nefndist „Kristiania bóheim- imn,“ sem sikiorið hafði upp herör gegn borgaralegum dyggðum þeirra tíma, dyggð- um, sem fæstir nútímamenn fá skilið, sem ekki eru meðlimir sértrúarflokka. Forustumenn bóheima voru óumdeilanlega fyrst og fremst rithöfundurinn Hans Jægér og málarinn Christian Krogh, og héldu þeir út blaði og sömdu 9 fræg boð- orð til fylgismanna sinna. Fjórða boðorðið hljóðaði svo: I>ú skalt aldrei berja náung- ann fyrir minna en fimm krón- ur. (5). Þú skialt haita oig fyrir- lita alla bændur líkt og Bj. Bj. (7). Vanræktu aldrei að gera uppsteit í Kra. Teatier. (8). Þú skalt aldrei iðrast (9). Þú skalt svipta þig lífi. Hvað hið síðasta snertir ætti að vera óþarfi að taka það fram, að þeir dóu all- ir á svipaðan hátt og annað fólk. En það sem fyrir þeim vakti, var að mótmæla skin- helgi og stöðnuðum hugsunar- hætti og beina með öllum ráð- um nýjum og ferskum áhrifum í norskt þjóðlíf. Vinsældir þess ara listamanna má marka af þvi, að oddborgarar Kristianíu tóku stóran sveig, ef þeir mættu þeim á „Karl Johanns" götu og fyrir kom að hrækt var á eftir þeim. Þeir voru ein- ungis álitnir stunda svall og ónytjungsskap óg skyldu vægð ariaust dæmdir eftir því. Snemma sumars 1885 gerir Edvard MuncTi sér ferð tll Parísar, þar sem hann dvelst í þrjár vikur, og verður bersýni lega þrátt fyrir þennan skamma tíma greinilega var við þá strauma, sem þá voru í gerj- un, og hvert vindur blés, og það verður honum styrkur og hvatning og hefur ákveðna þýðingu fyrir þróun listar hans. Og næsta ár markar tíma mót í framrás listferils hans, því að það ár eru tímamóta- myndirnar, „Syk pike“, „Dag- en derpá“ og Puberté", málað- ar fyrsta sinni. Hann sýnir myndina „Syk pike“ á haust- sýningu þessa árs, en þá hét myndin raunar eingöngu „En studie“. Það ifar að vonum, að hinn nýi háttur í form- og lita- túlikiun og uimibúðalauisari tján- ingu frá hálfu listamanns en mienin voru vanir, vekti uindrum gagnrýnenda, en hann gerði meira, hann vakti lika gremju og hmeyksli. Þa'ð" er erfitt að skilja þetta i dag, en einnig hollt að hugleiða orsök og af- leiðingar allra breytinga, líta skarplega til fortíðarinnar og draga í Ijósi hennar ályktanir af nútímanum. Voru það ekki einmitt þessir menn og þeirra líkar, sem voru að leggja grundvöllinn að þeim breyting uim á hiuigsuinianhœitti almienint, sem eiigia þátt i því, að nútima- maðurinn á erfitt með að setja sig í spor samtíðar þeirra? Það er eðli þróunarinnar að ný við- horf og sikoða'ndr ry'ðj'i sér til rúms. Fróðlegt er að athuga útdrátt úr listdómi um eina af þessum þrem myndum, sem ollu straumhvörfum í nor- rænni list. Jonas Rasch ritar í Aftenposten: „Málaranum Ed- vard Munch væri greiði gerð- ur, ef fólk gengi í þögn fram- hjá myndum hans. Þegar á sið- ustu haustsýningu höfum við í tiiefni af mannsmynd þeirri, sem hann sýndi þá, frábeðið okkur, að jafnhrátt útfærðir hlutir væru, mieð því að vera teikiniir giildir á listsýnimgu, úr- sikurðiaiðdr s&m liisit. Þær mynidir, sem niú eru til sýraiis, standa ekiki í nieiniu tilliti framar mannamyndum hans frá því í fyrra, og það stoðar ekki, þótt mótívið með hinni litlu dejT- andi stúlku sé fallegt. Með myndum Munchs er heildar mynd núverandi huastsýningar dregin mjög langt niður á við, og dómnefndin hefur með því að samþykkja þær gert listfé- lögum sínum slæman greiða. Andreas Aubert listrýnir Morgenbladet tók í svipaðan streng, en dregur þó töluvert í land og viðurkennir listgáfu Munchs. Ári seinna var hann vegna frjálslyndra skoðana þvingaður yfir til Dagblaðs- ins! Óneitanlega hafa tímarnir breytzt! Þegar ungt fólk í dag dæmir slika menn og list þeirra með einni einustu setn- ingu og þykist meira af, yfir- sést því, að það voru slíkir menn sem lögðu grundvöllinn að því, að það hefur svigrúm til að dæma jafn óhikað án þess að verða fyrir hatrömmum árásum og fyrirlitningu. Það þurfti áreiðanlega margfalt meira hugrekki og ímyndunar- afl til að ganga í berhögg við ríkjandi skoðanir á þeim tím- um en nú á dögum. Á þessum árum mikils þroska og átaka var dauðinn Munch stöðugt íhugunarefni, enda þurfti hann þráfaldlega að horfast í augu við hann sjálfur,'— sá systur sínadeyja og systkini oftlega þjást. öll fjölskyldan studdi við bakið á Edvard og systkini hans nutu seinna þeirra forréttinda að vera með þeim fáu, sem hinn mikli og mannfælni einstæðing- ur hafði siamibaind við, þótt hann vildi helzt ekki, að þau hieimsæiktu hann. En yrði eitt- hvert systkina hans veikt, varð hann eirðarlaus. „Það eru ein- göngu sjúkdómar og andlát í minni ætt. Við erum fædd með þetta.“ Hann sendi þá peninga og vildi gjarnan hjálpa. Systir Edvards, Inger Munch, sem hann málaði marg- ar frægar myndir af, sagði eitt sinn er hún sýndi teikningar, sem systir þeirra gerði, áður Framhiald á bls. 13. „Dagen derpá“ 1885. Dagur Sigurðarson VOR Á RÚNTINUM Nú eru þær komnar á stuttu pilsin sín og þama rángla þær um á rauðum blússum Stelpurnar! Bláeygar stelpur og bráneygar limalángar með uppbretta efrivör eða fíngralángar með framstæða neðrivör og bugðulækj armitti Rángeygar glóhærðar föilar stelpur með dalalæðu og dularfull reykmerki í augum — einkum í hniakkanum Iskrandi pískrandi stelpur allar á iði eða þöglar og samanbitnar með kiprímg í öxlum og títuprjóma i augum Hæ! Sú skal vera stúlkan mín sem á undan geingur. 21. júní 11970 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.