Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1971, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1971, Qupperneq 1
I>etta er kafli úr bókinni „Mamma Karasjok“ eftir Per Hansson. í»ar segir frá Samakonunni Kirsten, sem fræg varð á stríðsárunum fyrir hugrekki sitt og aðstoð við júgó- slavneska fanga sem Þjóðverjar fluttu til N orður-N oregs og ýmist dóu þar eða skrimtu í fangabúðunum við sult og hryllilega meðferð. * Stríðið náði seint til fólks- ins í mesta dreifJbýlinu. 1 júmí 1940 var baráttunni gegn þýzka hernum í Norður-Noregi hætt, en það var ekki fyrr en í septemiber, að íbúarnir í Karasjok sáu fiokk af her- mönnum Hitlers. Þeir, sem komu óbeðnir og gegn vilja íbúanna til þessa eyðilega héraðs, fundu til mik- iM-ar einimanalkenndar, jafnvel þótt þeir hefðu öll völd sín megin, og margir hinna einkennisklæddu útlendinga vildu gjarnan komast í kynni við þá, sem bjuggu í Karasjok. En framréttar hendur biðu þeirra engar, og það kostaði þá mörg orð að Æá eitt stutt svar. Kirsten hafði ekki leng- ur fasta næturvákt á sjúkra- stofunni. Ráðnar höfðu verið útlanðar hjúkrunarkonur, sem skiptu með sér vöktum allan sólarlhringinn. Hún byrjaði aftur að sauma fjöldann allan af skinnhúfum, skinnskóm, peningapyngjum og skinnpokum undir kaffi og salt, og hún átti kindur, sem gáfu af sér ull í vettlinga, sokka og vaðmálsflikur. Jafn- framt þessu hélt hún áfram að fara i sjúkravitjanir, þegar um það var beðið, og veitti sjúk um huggun. 1 júlí 1942 komu hundruð ban hungraðra og þrautpíndra manna i tötralegum fötum til Karasjok. Þetta voru menn frá ýmsum héruðum Júgó- siavíu, — frá Makedóníu, Dal- onatíu, Bosníu, Króatiu —. Fiest ir voru þeir Serbar, og ailir voru þeir kallaðir Serbafangar af Þjóðverjum og þvi einnig af Norðmönnum. Kirsten hafði aldrei heyrt um Júgóslavíu, og aldrei hafði hún séð menn kvelja meðbræð- ur sína. Hún gat ekki horft á hina þjáðu og hungruðu án þess að hjálpa þeim. Kennarinn og presturinn sögðu henni liítillega frá land- inu, sem fangarnir komu frá. Hún fékk að vita, að það var land með vinberjum og rauðum ávöxtum stærri en stærsti bandhnykill, og að þar voru sólrikar strendur á miðjum vetri, blátt haf og íslausar ár allt árið um kring. Margir í Karasjok sýndu kjark og dugnað við að smygla mat til fanganna án vitundar varðanna, og Kirsten gat ekki um annað hugsað en hina ban- hungruðu og vamiarlausu menn, sem voru vinnuþrælar í skóginum og við veginn, sem þeir voru að byggja við bar- smíð og spörk, milli Karasjok og finnsku landamæranna. Brátt fékk hann nafnið Blóð vegurinn, og sums staðar voru lík notuð til uppfyllingar, ásamt möl og sandi. Þegar Kirsten varð hugsað til þess að þeir voru frá landi, þar sem sjórinn og árnar eru ekki isi lögð hálft árið, og að þar uxu vínber og stórir rauð- ir ávextir, gat hún freistazt til að biðja guð um að bægja vetrinum burt frá Finnmörku. Því jafnvel fiökkusamar gátu ekki lifað heimskautakuldann af hungraðir og klæddir bóm- uSJartö’trum, en þessir menn voru frá sólarlandi langt í suðri. Hafi henni einhvern táma þótt leitt að hafa ekki lengur fasta næturvakt á sjúkrastof- unni, gladdist hún nú yfir því að vera óbundin og geta notað daginn að eigin geðþótta. Sífellt varð hún að vera á stjái til að saifma mat handa föngunum. Hún lagði til pen- inga fyrir hluta hans með því að selja hannyrðir, en mest af kjötinu, fiskinum, smjörinu og bi'auðinu fékk hún hjá góðu fólki, sem ekki spurði hvað hún ætlaðist fyrir með allan þennan mat. Það þekkti Kirst- en og vissi, að hún rak ekki er indi í eigin þágu án þess að segja frá því, og það skildi und ir eins hverjum hún ætiaði að færa matinn. Þótt hún færi iangar ferðir til í tilefni opinberrar heinisóknar Títós Júgóslavíu forseta til Nore«rs 1965. var Kirsten serstaaiega boðið og við það tækifæri færði Tító lienni þakkir þjóðar siiinar og heiðraði Þana. Hér er Kirsten með Titú og: Gerliardsen, forsætisráðlierra. f

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.