Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1971, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1971, Blaðsíða 15
„Valdið í hendur fólkinu“ John Lennon helur sent frá sér nýja, litla plötu, þar sem hann flytur lagið „Power To People“ við undirleik hljóm- sveitar sinnar, Plastie Ono Band. Lag þetta er, að sögn höfundar, sósialistískt og í sam rœmi við nýjustu stefnu hans, sem er í mun róttækari og póli- tískari en áður. í viðtali við blaðið Red Mole, sem er brezkt „neðanjarðar" tímarit, segir John, að hann hafi alltaf verið pólitiskur, en á meðan Bitlaæðið hafi staðið sem hæst, hafi hann haft meiri áhuga á trúarbrögðum og póli- tikin setið á hakanum. Síðan segist honum svo frá: „Þegar á háskeiði Bitlaæðis- ins reyndi ég að brjóta af mér viðjar Bítilsnafmsins. Ge-orge reyndi það líka. Við fórum nokkrum sinnum tii Bandarikj anna og Brian Epstein reyndi alltaf að kjafta ökkur tii og fá olkteur tii að segja ekkert um VXetnam. En sá timi kom, að við George sög&um: „Heyrðu, þeg ar þeir spyrja oktour næst, þá Skulurn við segja, að við séum á móti þessu stríði og að þeir eigi að koma sér burt þaðan.“ Og þetta gerðum við einimitt. Á þessum tima var þetta ákaf- iega róttækt, sérstaklega frá stj'ömiumiuim f jórum. Það er erfitt, þegar maður trónir á básætimu og allir segja að ma&ur sé svo yndislegur og maður fær al'Xt það bezta og all ar stelpurnar, það er erfitt að brjótast út úr þessu og segja: „Jæja, ég vil eikki vera kóng- ur, ég vil vera raunveruleg- ur.“ Sem barn úr verkamanna- stétt hafði ég alltaf álhuga á Rússlandi og Kina og öllu þvi, sem tenigt var verkamannastétt inni, jafnvel þó að ég væri að hiegða mér eins og kapítalisti. Um skeið kallaði ég sjálfan mig kriBitiilegan ’kommúnista, en, eins og sálfræðingurinn minn segir, trúarbrögð eru iög- gilt brjálæði.“ Joihn Lennon heldur áfram í þessum dúr og væri freistandi að birta meira úr viðtalinu, en þess er eteki kostur vegna rúmleysis. Og á endanum var það John Deilunni um nafnið Jóhn Paul Jones er lokið. Hinn upp- runalegi og eini rétti Jóhn Paul Jones, bassaleikairi Led Zeppelin, hefur fengið sínu framgengt og hinn ósvifni John Paul Joans hefur sam- þykkt að stytta nafn sitt nið- ur í John. En hvað segir þá John Lennon, sem hingað til hefur vart þurft að nota eftir- nafn sitt, þvi allir kannast við John? Paul og Linda: lagasmiðir. Stór plata í kaupbæti Tríóið Emerson, Lake og Palmer stefnir að útgáfu nýrr- ar, stórrar plötu í næsta mán- uði. Er ekki að efa, að platan sú verði góð, ef dæma má eftir fyrstu plötu þremenninganna. En væntanlegir kaupend- ur nýju, stóru plötunnar geta strax farið að hlakka til, því þeir E, L & P ráðgera að láta hvern kaupanda fá aðra stóra plötu alveg ókeypis í kaupbæti með þeirri nýju. Á þessari kaupbætisplötu verður aðeins eitt verk, „Málverk á sýningu" eftir Mussorgsky, enda tekur það um 40 mínútur i flutningi. Upptakan kostaði þremenning- ana ekki krónu, þvi þarna er um að ræða hljóðritun frá hljómleikum, sem þeir komu fram á í London fyrir nokkr- um mánuðum. Þar voru sjón- varpsmenn önnum kafnir við að mynda hljómleikana og er þessi hljóðritun ættuð frá þeirri upptöku. Um efni sjálfrar aðalplöt unnar, þeirrar nýju stóru, er litið hægt að segja að sinni, þar sem það hefur vart verið ákveðið ennþá. Ölöglegar Bítlaplötur Paul og Linda semja saman lög Ófyrirleitnir kaupahéðnar hafa nú fundið upp nýja að- ferð til að græða á poppinu. Laumast þeir með segulbands- tæki á hljómleika hjá þekkt- um hljómsveitum og listamönn um og taka alla tónlistina upp á band. Síðan láta þeir fram- leiða nlötur eftir böndunum og selja þessar plötur siðan ok- urverði i nokkrum, útvöldum verzlunum. Þannig hafa einhverj- ir gróðabrallarar farið að á hljómleikum Bitlanna í Shea Stadium i New York fyrir nokkrum árum og er nú haegt að kaupa á plötu hljóðritun frá hljómleikunum. Einnig hafa einhveriir náungar tekið ýmis misjafniega gömul Bitla- lög og sett saman á eina stóra plötu og er sú plata þvl nokk- uð frábrugðin öðrum Bitlaplöt- um. En að kaupendur séu að fá eitthvað nýtt eða áður óþekkt fyrir neningana sína er af og frá. Segja má, að það sé staðfest- ing á að hljómsveit hafi náð á toppinn þegar gefin hefur ver- ið út ^lik ólögleg plata með flutningi hennar. Nú eru á markaðinum ólöglegar plötur, á ensku kallaðar „Bootlegs", með flutningf Led Zeppelin, Rolling Stones, Deep Purple, Jimi Hendrix, Pink Floyd, Bob Dylan, Donovan, Crosby, Stills, Nash & Young, Elton John, Simon & Garfunkel og sjálfsagt ótal mörgum öðrum listamönnum og hljómsveitum. En ekki er vitað til þess, að þessar plötur hafi verið til sölu hér á iandi fram til þessa. Nýja, litla platan hans Paul McCartney, sú fyrsta, sem hann hefur gefið út, hefur rok selzt að undanförnu og er nú komin í annað sæti brezka vin- sældalistans. Reyndar ber ekki öllum músíkblöðunum saman um þetta atriði, sum þeirra setja hana í efsta sætið, en á listanum okkar, sem er úr Melody Maker, er hún i öðru sæti. Lagið, „Another Day,“ er eftir McCartney-hjónin og er þvi fyrsta lagið, sem Linda, kona Pauls, fær nafnið sitt undir. Virðist hún hafa tekið sæti John Lennons í lagasmiða samsteypunni heimfrægu, Lennon og McCartney, og þvi verður nafnið á samsteypunni í framtíðinni ritað á þessa leið: Herra og frú McCartney. Lag þetta er eitt af átján, sem Paul hljóðritaði í Banda- ríkjunum á nokkrum mán- uðum, og naut hann við upp- tökurnar aðstoðar þekktra hljóðfæraleikara, brezkra og bandariskra. Verður megnið af þessum lögum sett á nýja, stóra plötu, en hvað þau lög heita er enn ekki vitað og það sama gildir um útgáfudaginn. Ráðagerðir eru uppi um að láta Paul koma fram i sjón- varpi og leika nokkur laga sinna. Má allt eins búast við að af þvi verði og er Paul sagður farinn að smala saman undirleikurum úr hópi þeirra, sem léku með honum inn á plöt urnar. Dylan: Fjöhnargar ólöglegar pl ötur á inarkaðinuin. 28. marz 1971 Grace og guð. Auðmýkt og lítið g Bandariska söngkonan Grace Slick, sem hefur átt mikinn þátt i velgengni hljómsveitar- innar Jefferson Airplane, hef- ur alið dóttur. Faðirinn heitir Paul Kantner og er gítarleik- ari i sömu hljómsveit. Þau hafa enn ekki gefið dótturinni nafn, en til bráðabirgða gengur hún undir nafninu „guð“. Með litlu g. „Við verðum að sýna auð- mýkt,“ segja foreldrarnir. Edison og ekki Edison En alltaf er hægt að deila um nöfnin, og þó að ein deil- an sé farsællega til lykta leidd, er önnur óleyst og er erfitt að sjá fyrir enda hennar. Fyrir einu ári var geysivin- sælt lagið „Love Grows“, sem hljómsveitin Edison Lighthouse flutti. Lagið var samið af plötumeistaranum Tony Mac- aulay og hann átti lika einka- rétt á nafni hljómsveitarinnar. En hljómsveitin náði ekki að koma öðru lagi upp á vin- sældalista og er liða tók á ár- ið, gerðust liðsmenn hennar óþolinmóðir. Því notuðu þeir tækifærið, þegar slettist upp á vinskapinn milli þeirra og Tony Macaulay, og sögðu skil- ið við hann og hans lög. En Tony var ekki af baki dottinn, útvegaði sér i snatri aðra efni- lega hljómsveit og gaf henni nafnið Ediison Lighthouse. Sið- an samdi hann lagið „It’s Up To You, Petula" og lét nýju hljómsveitina leika það inn á plötu. Sú plata er nú óðum að ná vinsældum og er á leið upp vinsældalistana. En gamla hljómsveitin er enn ekki dauð úr öllum æðum og hefur nú leikið inn á plötu nýtt lag, sem nefnist „Every- body Knows“. Jafnfram-t hefur hljómsveitin stytt nafn sitt nokkuð, þar sem hún má ekki skarta gamla nafninu vegna einkaréttar Tony Macaulay. En nú heitir hún bara Edison og leggur allt kapp á að ná aft- ur sinni fornu frægð. En ekki þykir líklegt að það takist; brezkir unglingar eru ótrúlega fljótir að gleyma. !»li LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.