Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1971, Síða 9
Ólafur Ingibjörnsson, læitnir á siysadeild, gerir að beinbroti. Að ofan og; neðan. Læknar og hjiikrunarkomir
gera að sárum og meiðslum. Annríkið fer sífellt
vaxandi og 13% sjúklinganna koma á nóttinni.
við svona stofnanir og þá er
öllum eitursjúklingum visað
þangað.
— Þessir þrír ílokkar slysa,
sem þú hefur nefnt, gefa vissu
lega athyglisverða mynd af
þj'óðinni og þú segir þá alla
óeðiilega stóra. En borið sam-
an við heildartöluna hljóta þó
aðrir slysavaldar að vera
stærri ?
— Já, sá flokkur sem heitir
fall og byltur er fjölmennast-
ur; sökum þessa komu hingað
6598 manns á árinu 1970. Við
fengum til meðferðar liðlega
3000 beinbrot og liðhlaup og
mikið af því er vegna falls eða
byltu og oftast fullorðið fólk
sem á í hlut. Hér á hálkan á
vetrum stærstan hlut að máli.
Auk þessa höfum við talið 1160
íþróttaslys. Mörg þessara
slysa hafa orðið á skíðum eða
skautum og hlotizt af beinbrot,
höfuðkúbubrot eða heilahrist-
ingur. Eins og að líkum lætur,
hljóta menn stundum skrámur
í knattspyrnu og nokkur brögð
eru að fingurbrotum úr hand-
bolta og liðhlaupi úr glímu, en
það er ekki teljandi vegna þess
hve fáir iðka hana.
— I fyrra var rekin trimm-
herferð, eins og þú manst, og
þá gengu sögur af eldri mönn-
um, sem áttu að hafa oftekið
sig eða jafnvel dottið niður.
Voru einhver brögð að þessu?
— Nei, það er ekki teljandi.
En það var talað um
þetta. Ætli það sé ekki vegna
þess, að það var einn maður
sem datt niður. Hann lifnaði
við hér, en reyndar dó hann
um þremur mánuðum síðar.
Annað iþróttaslys, sem nokk-
uð hefur kveðið að, er hásinar-
slit. Það kemur einna
helzt fyrir S badminton,
að menn slíti hásinina, og oft-
ast eru það þá fullorðnir menn,
sem komnir eru með skemmd í
hásinina. En þá eru ekki öll
kurl komin til grafar. Við höf-
um hér stóran flokk, sem við
nefnurn ýmsar orsakir. f þeim
flokki eru til dæmis maðurinn,
sem kom hér að næturlagi fyr-
ir skömmu og heimtaði að láta
athgua á sér hrygginn. Hann
var liðlega fertugur og þegar
farið var að inna hann eftir
þvi, hvað komið hefði fyrir, þá
sagðist hann hafa fengið i bak
ið árið sem hann fermdist. Og
nú átti helzt að ræsa út mann-
skap og setja allt i gang
vegna þess að honum þóknað-
ist að koma til þess að vekja
athygli á meinsemdinni eftir 30
ár.
— Nei, síður en svo.
íslendingar eru alveg einstak-
ir i sinni röð. Ég get sagt þér
til dæmis, að hér tinnu um tima
sérfræðingar frá finnsku fyrir-
tæki, sem tekur að sér skipu-
lagningarstörf fyrir spítala.
Þeir voru fengnir hingað til
að athuga möguleika á stsekk-
un borgarspítalans og þá
gerðu þeir athugun á spítalan-
um í heild.
Þeir töldu að 10% af íbúa-
tölu umdæmisins kæmi á ári á
samsvarandi stofnun i Finn-
landi og það mætti teljast eðli-
legt. Eins og fram hefur kom-
ið áður hér i þessu samtali er
sú tala 23% hér. Þeim fannst
það furðu mikið. Einnig vakti
athygli þeirra timasetning-
in, það er, hvenær sólarhrings-
ins fólkið kemur. 13 af hverj-
um 100 sem hingað leita, koma
frá miðnætti til kl. 8 að morgni.
Miðað við líklega heildartöiu
i ár, eru það 3500 manns.
— Hvað veldur slikum næt-
urslysum?
— Yfirgnæfandi meirihluti
þeirra eru fylliríisslys. En
einnig frekt fólk og drukkið,
sem heimtar að ótrúlegusbu
hlutir séu athugaðir; inngróin
nögl á tá eða þvíumlíkt. Það
kemur hingað til að heimta
vottorð um að það sé óvinnu-
fært stundum vegna þess að
7. nóvember 1971
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9