Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1971, Blaðsíða 7
Picasso ásamt Jacqueline konu sinni. Hún er 49
árum ynRri en Picasso.
Picasso á vinnustofu sinni rétt fyrir níræðisafmælið. lákamiega er iiann svo vel á sig kominn aö nærri einstakt
má teljast.
Málverk frá 1900. Hér er Picasso óráðinn og
minnir t. d. á Manet.
„Draumurinn“ 1932. Fyrirsæta var eiginkona hans
María-Theresa.
Ouemica 1937. sem marjrir tel.ia háounktinn í
list Picassos. Hún er ug-gflaust frægasta mynd,
sem máiuð hefur verið á þessari öld.
Frá vinstri: Grátandi kona, 1937, sjálfsmynd frá 1964 og „Köttur að éta
fugl“ frá 1939.
Enn við sama heygarðshornið. Slái-
verkið er frá bessu á.ri.
barn á vettvangi tónlistar, svo
var Picasso undrabarn í mynd
list. Harrn fæddist 25. október,
1881 í Malaga; skýrður mynd-
arlegu nafni: PABLO Diego José
Fransisco de Paula Juan Nep-
omunceno Crispin Crispinano
de la Santisma Tininidad R'uiz
PICASSO. Sjálfur kveðst hann
hafa teiknað eins og Rafael
þegar hann var tó'lf ára, en
það er ugglaust nokkuð orð-
um aukið. Hinsvegar telst það
nærri lagi, að hann hafi verið
búinn að tilein'ka sér flest, sem
hægt var að læra í myndlistar-
akademii, þegar hann var
fimmtán ára. Ungur að árum
hélt hann til Parísar, líkt og
fjöldi ungra málara gerði á
þeim tima. Hann sagði fljótlega
skilið við hinn akademiska stíl
og í myndum hans frá því um
aldamótin má sjá bregða fyrir
hjá hónum meira en greinileg-
um ábrifum frá Toulouse-
Lautrec, Manet, Gaugain,
Munch og fleirum. Greinilegt
er, að hinn ungi Picasso var á
þessum árum mjög leitandi og
óákveðinn listamaður þótt
hann segði síðar: „. . . það er
tilgangslaust að 'leita í mál-
verki; það sem máli skiptir er
að finna.“
Slík staðhæfing var ekki
með öllu ólik honum. Sú gamla
skoðun, að snillingar hafi öðr
um meiri auðmýkt til að bera,
fær venjuiega ekki sitaðizt,
og Picasso er þar heldur ekki
undantekning. Eftir því sem
bezt verður skilið, hefur Picasso
verið og er enn — eitt stórt
ÉG. Hann hefur sjaldan efast
um það, sem hann var að gera
og kannski ekki þurft þess:
Meira lof hefur verið á hann
borið i lifanda Hfi en flesta
aðra listamenn.
Katalómiumaðurinn ungi
var ennþá einn af hinum nafn-
'lausa skara í Parísarborg um
aldamótin. Og þá var gaman að
lifa í borg ljósanna þrátit fyr-
ir fátæktina og framundan það
giaðværa tímaskeið, sem síðar
hefur verið nefnt La BeUe
Epoque. Þátttaskila í lifi
Pablo Picassos var ekki langt
að bíða. Þau urðu með „Bláa
skeiðinu" í myndlist hans, sem
byrjaði 1902 og síðar „Bleika
skeiðinu". Þarmeð hafði
Picasso áskotnazt persónuleg-
ur stíl'l. Samt er það svo, að
væri allt það sem Pieasso mál-
aði fyrir 1906 máð af blöðum
listasögunnar þá yrði þar, eng-
in umtalsverð eyða. En einmitt
það ár byrjaði Picasso að
þreifa sig áfram með nýtt form,
sem síðar var nefnt kúbismi.
Með þeirri myndgerð var lagð-
ur grundvöllurinn að siðari
tima flatarlist.
PICASSO TEKIIK
FORUSTUNA
Það var þó elkki fyrr en ár-
ið eftir, 1907, að til varð sú
mynd í höndum Picassos, sem
jafnan er höfð til viðmiðunar
um upphaf kúbismans: Les
Demoiselles d’Avignon, fimm
konur naktar og að sumu ieyti
ærið tröllslegar en verkið allt
mjög i anda þessarar nýju
hugsunar, kúbismans. (sjá með
fylgjandi mynd) Svo mjög var
brotið blað í þróuninni, að
nánustu vinum Picassos í hópi
listamanna fannst nóg um og
sumir héldu, að nú væri hann
liklega að ganga af göflunum.
Það væri of einföld skýring að
segja, að kúbisminn hefjist ná-
kvæmlega með þessari einu
mynd, en staðrejmd er ]rað
hinsvegar, að um þetta leyti
urðu timamót í list Picassos;
hér eftir var hann „maestro"
í heimi myndlistarinnair, stæld-
ur í stað þess að stæla aðra.
Frá áratug kúbismans, sem á
eftir fyi’gdi, sjáum við hvern-
ig formin breytast fra því að
vera talsvert stilfærð til þess
að verða hálfgerðar felumynd
ir og mjög nærri því að vera
alveg abstrakt. Stundum
má sjá að dagblöð'n frá þess-
um tima hafa orðið efniviður;
þau hafa verið limd á mynd-
flötinn og þarna má liklega
greina undanfara nútíma popp
Mstar.
Á árunum mJL 1930 og
1940 gerði Picasso "'ölda stór-
kostlegra myndiistarverka;
meginyrkisefnið er ástin og
kvenfólkið annarsvegar, en of-
beldi, stríð og dauði hinsveg-
ar. Ef til vill nær þessi ára-
tugur i list Picassos hámarki
með hinu magnaða verkl
Guernicu, sem hann málaði eft-
ir árás Þjóðverja á samnefnt
Framh. á hls. 14
28. nóvember 1971
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7