Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1973, Page 6
Heimsmeistari í kappakstri og
þjóðhetja í heimalandi sínu, Brasiiíu
...
SVIPMYND
mmms
Þegar Emerson Fittipaldi ók
fyrstur yfir marklínuna á Monza
kappakstursbrautinni í ítalska
Grand Prix kappakstrinum í
september s.l. tryggði hann sér
heimsmeistaratitil ökumanna i
kappakstri 1972 og var um leið
yngsti heimsmeistari kappaksturs
sögunnar, 25 ára gamall. Fitti-
paldi átti í erfiðleikum með að fá
keppnisleyfi frá Brasilíu er hann
hélt fyrst til Evrópu því stjórn-
völd Brasilíu virtust lítt hrifin af
kappakstursíþróttinni. Nú kveð-
ur hins vegar við annan tón og
segja má að Emerson Fittipaldi
sé orðinn þjóðhetja Brasilíu, sam
• hliða knattspyrnumanninum Pelé.
Þeir eru góðir vinir.
Emerson Fittipaldi er fæddur
í Sao Paulo 12. desember 1946.
Wilson bróðir hans er þrem árum
eldri. Þeir aka nú báðir í kapp-
akstursbílum samkvæmt Formúlu
I, en það er sú gerð sem færustu
kappakstursmenn heimsins keppa
í.
Kappaksturshugleiðingar Emer
sons urðu fyrst að veruleika er
hann byrjaði að vinna við við-
gerðir á kappakstursbílum bróð-
ur síns heima í Brasilíu. Þeir óku
„Go-Kart“ bílunum pínuiitlu og
alls konar fólksbílum með sér-
stilltum vélum og unnu flestar
keppnir í Brasilíu. Þá smíðuðu
þeir sjálfir bíl, sem þeir kölluðu
„Fittivee". Takmarkið varð Em-
erson fljótt Ijóst, en það var að
komast til Englands, þar sem all-
ir beztu kappakstursmenn síðari
tíma hafa hafið baráttu sína um
að komast á toppinn. 1969 seldi
hann allt sitt kappakstursdót i
Brasilíu og hélt til Englands
sæmilega fjáður. Þar tók hann
þátt í kappakstri á Formúlu Ford
og Formúlu 3 og var greinilega
mjög góður. Þó hraðinn i þessum
flokkum sé minni en í Formúlu
1 og 2 þá er hættan ekki minni,
því þetta eru byrjendaformúlurn
ar og baráttan um að komast
áfram er geysihörð. Eftir aðeins
18 mánaða dvöl í Evrópu bauð
Colin Chapman, forstjórinn hjá
Lotus, Emerson reynsluakstur í
Formúlu 1 (meiri hluti hinna fáu
útvöldu þarf að bíða 3—4 ár).
Fyrsta Grand Prix keppnin,
sem Fittipaldi tók þátt i var i
Bretlandi 1970. Austurríkismaður
inn Jochen Rindt heitinn var þá
ökumaður númer eitt hjá Lotus
og sigraði hann þessa keppni.
Fittipaldi stóð sig sómasamlega,
varð áttundi og Rindt sagði að
þar væri kominn ökumaður, sem
ætti sennilega eftir að verða bezt
ur af þeim öllum.
( æfingunum fyrir ítölsku
Grand Prix keppnina sama ár ók
Jochen Rindt í síðasta sinn. Bil-
un varð í framhjólabúnaði bíls
hans og útafakstur á um 300 km
klst. hraða kostaði Rindt lifið.
Jochen Rindt var einhver vinsæl-
asti kappakstursmaður síðari
tíma, og hann varð heimsmeistari
eftir dauðann þar sem enginn fór
fram úr honum að stigum þetta
ár.
Næsta Grand Prix keppni,
sem Lotus tók þátt í var í Banda-
rikjunum 1970. Öllum á óvart, og
að vísu með mikilli heppni sigr-
aði Emerson Fittipaldi i þessari
keppni. Það var í fyrsta sinn
sem hann ók Lotus-Ford 72 bíln-
um og aðeins fjórða Grand Prix-
keppni Emersons.
Fittipaldi hafði dáð Rindt og
Austurrikismaðurinn gefið honum
góð ráð. En þrátt fyrir dauða
Rindt og allvafasamt orð, sem
kappakstursbílarnir frá Lotus
hafa fengið á sig (þeir þykja
óeðlilega veikbyggðir), þá hélt
Emerson óhræddur áfram hjá
þeim.
Arið 1971 gekk allt á afturfót-
unum hjá Lotus og í fyrsta sinn
í langa tíð unnu þeir enga Grand
Prix keppni allt keppnistímabil-
ið. Þetta var kannski ekki undar
©
Eitt af því fyrsta, sem nýbakaður heimsmeistari í kappakstri ger-
ir, er að láta tappann fjúka og kampavínið freyða.
Að neðari:
Emerson Fittipaldi ásamt eiginkonn sinni, Mariu Helenu. Tvennt
þykir sameiginlegt með eiginkonum kappakstursmanna: Þær eru
með fegurstu komim og verða snemma ekkjur.
legt eftir það sem yfir hafði dun
ið. Emerson sagði að þeir hefðu
ekki reynt bílinn nógu mikið. Þá
lenti Fittipaldi í árekstri á éinka
bíl sínum og var frá keppni í
nokkurn tíma og var nokkra mán
uði að ná sér fullkomlega. Maria-
Helena kona hans slasaðist einn-
ig nokkuð í þessum árekstri.
Þau voru ekki með öryggisbelti,
en segjast nú alltaf nota beltin.
( árslok fór þó að ganga nokkru
betur og Fittipaldi náði í nokkur
stig í heimsmeistarakeppninni,
sem Jackie Stewart sigraði með
yfirburðum það ár.
En 1972 kom fljótt í Ijós hver
sterkastur yrði og sigurstrang-
legastur. Snemma á árinu sagði
Jackie Stewart heldur óhress:
„Emerson verður heimsmeistari
1972." Bílarnir voru nú málaðir
svartir með gylltum röndum
(voru rauðir áður) og kaliaðir
John Player Specials eftir helzta
fjárstuðningsaðiia liðsins, í stað
Fittipaldi. hinn. ósigrandi með
lárviðarsveiginn.