Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.1973, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.1973, Qupperneq 10
 k> .^jfctik pijiiuiiLppii; Fossinn • • • - I»essi 18 pimda lax fékk ekki náð fyrir aug-um bænda og Kristján á Hólmavaði skilaði honum í ána með kveðju til hinna Iaxanna. 3 væna. Björn á Laxamýri, Kristján á Hólmavaði og Einar í Hjarðarhaga með fossi upp eftir Breiðunni. Þeim var síðan sleppt í hængahóp. (Ljósmymidir -álhj.) Björn & Laxamýri og Kristján á Hólmavaði hlaupa með tvo væna að bíinum. að 'koma í veg fyrir að iaxinn magagleypti öngulinn. Það var ekki að sökum að spyrja, 'hann tók mikla roku, kengbeygði stöng ina og reif línuna út af hjóli-nu. Hann keyrði alveg undir fossinn og lagðist þar svo ég gat ekki haggað ihonum i nokkrar mínút- ur, þannig að við toguðumst bara á. Það var vel fast í laxinum og línan sterk, eins og vera ber á þessum stað og eftir um 15 mln- ■útna viðureign lá 12—13 punda hrygna i vatninu við bakkann. Að ná henni lifandi Nú reið á að vera bandfljótur. Það þurfti að losa öngulinn var- 'lega úr fiskinum og koma bandi um sporðinn, sem var ifest f staur á bakkanum. Allt gekk þetta vel og eftir nokkrar rökur ilagðist hún upp f strauminn og hreyfði sig ékki. Við félagarnir beittum aftur og renndum og innan iklukkustundar vorum við búnir að landa Iþremur nýrunnum 5—6 punda hængum, sem skýldu á veizluborð f Reykjavík. Það var greinilegt að fossinn var kjaft- firllur af laxi, 'þVí að færið var varla komið út er lax var kom- inn á. Éig náði annarri 11 punda hrygnu lifandi, en 15 punda hæng tókst ek'ki að 'halda lífinu í, því að Ihann hafði magagleypt öngulinn í einni svipan. Nú fannst okkur nóg komið og ekki tilhlýði'legt að misnota gestrisn- ina og drógum við því inn færin og bjuggum okkur til heimferðar. Bændur voru búnir að gefa okk- ur góð ráð um hvernig við ætt- um að 'koma hrygnunum lifandi upp í lækinn við veiðiheimifið, þar sem 15 laxar frá 1A—27 pund biðu síns Ihrygningartlí'ma. Skuld greidd Við vorum með venju'lega laxa- poka úr plasti með o'kkur og eftir að hafa dregið hrygnurnar á eftir okkur yfir ána, fylltum við pok- ana af vatni, bundum fyrir og' hlupum eins og við ættum fífið að leysa upp á klett og inn f bílinn og ókum eins og sá vondi væri á hælum okkar upp að 'læk, þar sem glæsilegir hængar fögnuðu hrygnunum. Það voru ánægðir og stoltir veiðimenn, sem s'ettust við matarborðið 'hjá ráðskonunum stoltir yfir 'því að ihafa getað lagt sinn skerf til áframhaldandi upp- byggingar og ræktunar þessarar drottningar rslenzkra laxveiðiáa. Það var eins og smáskuld 'hefði verið greidd. Sigga ráðskona ræsti okkur með morgun'kaffi um nluleytið næsta dag. Við spruttum framúr fuflir eftirvæntingar, enda ekki aíltaf, sem maður getur dregið fyr ir á uppáhaldsveiðistöðuoum sín- um og fengið að sjá hvar tax- arnir raunverulega liggja. Marg- an veiðimanninn ihefur áreiðan- lega oft dreymt um að igeta með einhverju móti fengið að sjó hvar laxinn liggur, þegar hann hefur verið búinn að berja staðinn hvað eftir annað með ö'llum hugsanleg- um aðferðum án þess að reisa lax en vitandi að þeir lægju nú samt þarna í 'bunkum. Eftir morgunmatinn ókum við sem leið lá upp að Hóímavaði, þar sem við hittum Laxamýrarbræður Björn og Vigfús, Kristján bónda á Hólmavaði, Kristján Óskarsson, Heiimi Sigurðsson frá Tjörn, sem tíklega hefur dregið fleiri laxa á land en nokkur annar maður á (s landi og Einar Jónsson, bónda í Hjarðarhaga.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.