Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.1973, Blaðsíða 16
Konungur örœfanna
Framhald aí b!s. 14.
grein um Jón í IslendingaJþátt
um Tímans 24. nóv. s.l. er marg
ir, sem bezt þekktu hann,
munu hafa lesið.
Margir íslendingar hafa far
ið um Möðrudal. Langtum fleiri
eiga það þó eftir á næstu ár-
um og öldum. Um þann stað
liggur ein lífæð Islendinga, sem
nær þó ekki til að slá af full-
um mætti fyrr en hringvegur
er kominn um landið. Við skul-
um öll vona — og hjálpast að
þvi — að svo geti orðið sem
fyrst. Því eru mér nú efst í
huga þau orð, sem Jón í Möðru
dal mælti eitit sitnn við mig, þeg
ar við stóðum hlið við hlið, þar
sem vel má sjá yfir, og hann
var að segja mér nöfn á sum-
um útvörðum fjalíahringsins,
efnislega voru þau á þessa
leið: og vil ég biðja þá, sem
þessar linur lesa, að hafa þau
í huga:
Hvenær, sem leið ykkar ligg-
ur um Möðrudalsöræfi í góðu
veðri og undir heiðum himni,
hvort sem er um sólreðnar næt
ur eða við mánaskin, fá gefið
ykkur tíma til að fara út úr
bílnum, þar sem vel sér yfir,
ganga afsiðis og litast um. Þá
mun andi öræfanna vitja ykk-
ar og hvísla þeim vinarorðum,
sem þið ekki gleymið. Og þá
munu líka augu ykkar opnast
fyrir þeim töfrum, sem landið
okkar á í svo rlkum mæli, i
óbyggð og öræfum, þar sem
þögnin ræður rikjum.
Þegar ég er að enda þessar
línur, blikar fyrir augum mér
þessi mánabjarta desember-
nótt, þar sem kirkjan í
Möðrudal rís hátt og hvít eins
og mjöllin. Og i turni hennar
blikar stjarnan eins og áður.
Ef til vill er hún að minna á,
að þau, sem völdu sér hinzta
hvilustaðinn sólarmegin við
hana, hafi enga ósk átt heit-
ari en þá, að Möðrudalur mætti
verða áfram hvíldar- og hress-
ingarstaður fyrir þá, sem kom-
ast í hann krappan við nátt-
úruöflin, eins og svo oft áður.
Þótt flestir nú leggi leið sina
þar um í upphituðum farartækj
um, má slá þvi föstu, að vetur
konungur þeysi þar oft á 'hvít-
um fákum eftir fannbreiðum,
óvænt og með ofsahraða, svo
að ekki sjái handaskil. Og þá
getur allíaf hent, að farartæki
bili og alvarlegan vanda beri
að höndum. Það væri því bæði
hyggilegt og vel til fallið, að
þjóðin öll sameinaðist um, að
þarna yrði alltaf séð um, að
ferðamenn mættu treysta á
góða heimvon, þegar þess ger-
ist mest þörf. Ekkert er þeim,
sem er á ferð í myrkri, og veit,
að hann er kominn á villigöt-
ur, eins mikils virði og að sjá
ljós, Ijós, sem hann veit, að
treysta má.
Á myrkum nóttum á Möðru-
dalsöræfum mundi það ljós oft
vekja svipaðar tilfinningar og
innri varma í brjóstum þeiira,
sem koma auga á það, — og
margir hafa orðið snortnir af,
þegar suðrænan srtrauk um
vanga þeirra á heiðum maí-
morgnum í Möðrudal.
Ritað í desembermánuði 1971.
Theodór Gunnlaugssion
frá Bjarmalandi.
»Mamma
,mamma...Þadþurítiekke
s
Colgate MFP* fluor tannkrem verndar
tennurnar gegn skemmdum.
Það er sannað með vísindalegum tilraunum.
Reynsluprófað á þúsundum
barna í síðustu 8 ár.
Vísindamenn í mörgum löndum hafa á
síðustu 8 árum gert tilraunir á þúsundum
barna, og óháðir hver öðrum sannað,
að Colgate MFP fluor tannkrem herðir
glerung tannanna og styrkir þær.
Þess vegna kaupa mæður um allan heim
frekar Colgate MFP tannkrem en annað
tannkrem, - og fleiri og fleiri börn
hafa tennur með stöðugt minni
tannskemmdum.
hið
- og börnin sækja
Vörumerki fyrir Colgate special
fluor tannkrem með sérstakri
efnasamsetningu, þar á meðal
0.76% natriummonofluoride-
phosphats.
ferska Colgate bragð.