Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1974, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1974, Side 7
10 ár, þegar þau hjón kynntust. Hann hafði því fengið þá þekk- ingu og reynslu, sem nauðsynleg er, þegar taka á til við að reka verkstæði af þessari gerð. Robin er danskur að uppruna, en orðinn svo fslenzkur, að eiginkonan fær jafnvel aðstoð hans, þegar hana skortir orð til að tjá sig. Tove fæst einnig við kennslu í keramik við Myndlista- og handíðaskólann og hefur því minni tima til að sinna verkstæð- inu, en hjá þeim starfa einnig við framleiðsluna ung stúlka og pilt- ur. Fyrstu skipti Robins af islenzku atvinnulífi voru þau, að hann fór í fiskvinnu, síðan var hann tvö ár við gull- og silfursmíði hjá Jó- hannesi Jóhannessyni. Þá vann hann einnig við uppsetningu fjölda þeirra sýninga, sent haldn- ar hafa verið í Laugardalshöll- inni. Árið 1965 stofnuðu þau hjónin leirkeraverkstæði á Seltjarnar- nesi, voru siðan þrjú ár við verk- stæðisrekstur í Hveragerði, eða þar til þau fluttust í Laugarásinn 1971 og við hann hefur Robin eingöngu starfað siðan. Talið berst að islenzkri leir- keragerð og við furðum okkur á því, að þessi listgrein — elzt allra listgreina með mönnum — skuli vera svo img hér á landi. Engar sögur fara af þvi, að leir- keragerð hafi verið stunduð hér til forna og engar leifar slíks hafa fundizt i haugum eða við upp- gröft. ,,Ég hef ekki kynnt mér þetta nóg til að fullyrða nokkuð,'1 segir Framhald á bls. 14. Eins og tíðkaðist að mynda hjón áður fyrr (meðan maðurinn hafði húsbónda- vald, segja sumir) Robin Lökken og Tove Kjarval. Hún er sonardóttir Jóhannesar heitins Kjarval. „ENNÞA LITIÐ Á ÞETTA SEM KERLINGA- DÚTL” Rætt við Tove Kjarval °g Robin Lökken Merkilegt apparat, sem minnir á list frum- stæðra þjóðflokka. Þetta eru í rauninni þrír kertastjakar úr keramik, sem raða má saman. Höfundar eru Tove og Robin Lökken. ■ viiiot.ii. ixciigoijaiu u i gerður til að hanga á vegg. 1 norðanverðum Laugarásnum við Brúnaveg 8 stendur gamalt og merkilegt timburhús — reyndar eitt elzta hús i Reykjavfk, byggt árið 1846. Upphaflega var þetta fyrsta pósthúsið í höfuðborginni og stóð við Pósthússtræti, enda götunafn- ið dregið af því. Síðan átti það nokkra dvöl i Skerjafirði, en varð að vfkja þaðan vegna flugvallar- gerðar og hafnaði þá i Laugarásn- um, þar sem það sómir sér vel innan um steinsteypu og glerhýsi okkar tima. Þetta er hús með „karakter", hlutföllin hið innra verka vel á sálina og unga fólkið, sem þar býr, ljær andrúmsloftinu þann hlýleika, sem allri grósku er nauðsynlegur. Það eru hjónin Tove Kjarval og Robin Lökken, bæði leirkerasmiðir að mennt. í litlu húsi ofar á lóðinni hafa þau komið sér upp góðu leirmuna- verkstæði með öllum nauðsynleg- um útbúnaði og má þar merkast- an telja brennsluofn, sem „hugs- ar“, að sögn Robins. Tove stundaði nám i leirmuna- gerð við Kunsthandværkerskolen f Kaupmannahöfn. Það er þriggja ára nám og greinist í ýmsa þætti, teiknun.mótun, hönnun, brennslu og efnafræði, svo nokkuð sé nefnt. En Robin hlaut sína mennt- un á verkstæðum í Danmörku, var verkstjóri hjá Björn Winblad, sem er þekkt og virt fyrirtæki þar i landi, og hafði unnið að leir- munagerð og starfað við kennslu í ■ '•V I vmnustofurini á Brúnavegi. Þarna er eitthvað, sem kisu þykir stórmerkilegt. *l

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.