Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1974, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1974, Qupperneq 15
 BÖRNIN TEIKNA OG YRKJA Lögga að laumast Þetta er lögregluþjónn, en hann er uppi á fjöllum, samanber: Ein er upp til fjalla, yli húsa fjær. Löggan reykir nefnilega í laumi, þess vegna er maðurinn svona gulur i framan. Það kemst áreiðanlega allt saman upp. Teiknað hefur Agnar Helgi, Miðvangi 99, Hafnarfirði. Hann er aðeins 7 ára. SKÓLAFRÍ Þegar þú færð frí skemmtu þér í því. Ekki húka inni að læra, því þó að þú sért klár og vitir upp á hár öll nöfn og ártöl í öllum bókum og blásir út úr þér reykjarstrókum, þá útilífið er það bezta sem ég hugsa mér. Að vera úti það á við mig, ég held það sé eins um þig. Hildur, 1 2 ára. Ingplfur á leið til íslands . . . Hér er þjóðhátíðarmynd eftir Aksel Jansen, Rauðalæk 6 í Reykjavík. Hann er 7 ára. Myndin sýnir Ingólf Arnarson standa í stafni og gnæfir hann jafnvel yfir seglið. Sem sagt, vigalegur landnáms- maður eins og vera ber. Sú yngsta . . . Hér er víst íslenzki ballettinn á ferðinni. Teiknað hefur Marta Skúladóttir, SafamýVi 25 í Reykjavík. Marta er aðeirrs þriggja ára og sú yngsta, sem við höfum birt mynd eftir. Heimilisiðnaður Franihald af bls. 12 Leirinn er líka skemmtilegur efniviður til margs konar skreyti- listar." „Ég verð líka vör við það,“ segir Tove, „þegar fólk heyrir, að ég stunda kennslu i keramik, þá er strax spurt: Ertu með mörg nám- skeið? Og hvað marga tíma á viku? Fólk skilur ekki, að þetta er ekki bara ,,hobby“, heldur list og iðngrein, sem menn þurfa að afla sér töluverðrar menntunar i til að stunda af alvöru. Hér vantarlíka meiri neytenda- kunnáttu, ef sVo mætti segja. ís- lendingar eru ekki nógu kröfu- harðir gagnvart þessari Iistiðn. Ég vildi gjarnan, að viðskiptahóp- urinn væri gagnrýnni. Það væri góð hvatning." „Einmitt," segir Robin. „Tökum til dæmis eitt atriði: Hingað er flutt inn mikið af vel hönnuðum matarstellum, sem fólk kaupir með glöðu geði, en gerir sér enga grein fyrir því, að þetta er allt þriðja flokks, með kúptum botni eða göllum í lit og brennslu. Þá á ég auðvitað ekki við vörur frá Bing og Gröndal eða „Konunglega danska", en þær vörur eru lika svo dýrar, að það er ekki á færi nema fárra að kaupa þær. Þó finnst okkur töluverð breyt- ing hafa orðið siðustu árih á af- stöðu fólks til leirmuna. Það gerir þó meiri kröfur en áður og kaupir margs konar muni til að prýða húsakynni sín. Áður voru þau kaup mest takmörkuð við einn kertastjaka fyrir jól.. .“ „Vel á minnzt, kertastjaka — mér finnst ég hafa séð viða i hús- um veggkertastjaka, sem mun upprunninn frá ykkur —“ Þau hlæja við. „Jú, hann hefur verið i stöðugri framleiðslu í 7 ár og hlýtur að vera kominn út um alltland. Það eru fleiri hlutir írá okkur, sem stöðugt er spurt eftir, og þá verð- um við auðvitað að sinna eftir- spurninni, vegna þess að við erum fjárhagslega háð framleiðslunni. En skemmtilegast finnst okkur auðvitað að búa til nýja og sér- stæða hluti.“ „Hefur leirkeragerð verið stunduð hér úr íslenzkum leir?“ „Guðmundur frá Miðdal notaði leir frá Búðardal," segir Tove „og Gestur Þorgrímsson hefur lika reynt íslenzka leirinn. Hér er sjálfsagt til leir, sem hægt er að nota. Það tekur bara tíma að leita og leika sér við tilraunir. Yfirleitt er jarðvegur þó hér of ungur jarð- fræðilega til þess að teljast hent- ugur. Við höfum mest unnið úr inn- fluttum leir frá Danmörku, sem brenndur er við 1000 gráða hita i mesta lagi. En ætlunin er að fá steinleir frá Bretlandi til vinnslu. Hann er töluvert frábrugðinn hinum, áferðin verður öðruvisi og sömuleiðis litirnir og hann er brenndur við meiri hita, eða 1300 gráður.“ „Eruð þið þá þeirrar skoðunar, að þessi listiðn eigi sér góða fram- tíð hér á landi?“ ,Já, vissulega," segir Robin. „Og mér finnst, að íslendingar ættu að leggja meiri áherzlu á leirmunagerð til útflutnings, því að þótt hráefnið sé dýrt, er mikil verðmætaaukning i leirkerasmiði — og þar er tækifæri til að gera sérstæða vöru. íslendingar eru of fáir til að fara inn á markaði, þar sem magn skiptir máli. Gæðin eiga að vera aðalatriðið.“ „Nokkrar framtíðaróskir í tengslum við leirmunagerð?" „Ekki aðrar en þær að fá tíma og tækifæri til að vinna við þessa grein á sem flestum sviðum,“ segja ungu hjónin að lokurn. H Góbelín Framhald af bls. 5 — Svo sem engu meginmáli — alla vega ekki upp á heimsfriðinn að gera, sagði hún. — En ef þú ert búin með enskuna, held ég að þú ættir að koma þér i rúmið. — Ég er eiginlega ekki i neinu stuði til þess, sagði táningurinn. — Ég er að hugsa um að yrkja ljóð um dáldið, sem mér datt í hug. Finnst þér ég ekki hafa fer- lega fílapensla á enninu? — Eg skal gefa þér fyrir and- litshreinsun, þegar ég fæ útborg- að, sagði hún. — Að öðru leyti skaltu yrkja þitt ljóð og fara svo að sofa. Ég ætla að fá mér kaffi og svo kem ég mér lika i háttinn. Táningurinn hafði staðið á fæt- ur og setti ryksuguna þyngslalega inn í skáp. — Þig langar auðvitað ekkert til að vita um hvað þetta Ijóð er, eða sjá það, þegar ég er búin, sagði táningurinn og horfði eftir- væntingarfullur á hana. — Jú, ég vil gjarnan sjá það. Svo skaltu fara að sofa og ekki gleyma að slökkva á plötuspilar- anum. Og mundu að stilla klukk- una. Þú mátt fá þér appelsinu. Táningurinn stóð um stund á stofugólfinu, ögn ráðvilltur. — Að minnsta kosti mættirðu taka ábyrgari afstöðu, sagði hann i umvöndunartón. —■ Þd held ég að þér sé ekki alls varnað, svoleið- is sko. En alla vega þoli ég ekki kerfið. — Akkúrat, sagði hún. — Og farðu nú að sofa. Eg skal vekja þig, ef klukkan dugar ekki til. — Og alla vega fer ég til Ind- lands — nú eða á Strandirnar kannski, sagði táningurinn, teygði sig eftir appelsínu f ís- skápnum og letihlunkaðist upp stigann. i ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.